Íþróttablaðið - 01.12.1947, Page 14
.4
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
Haukur, Dillard og Finnbjörn aö loknu 100 m. hlaupinu. Öskar og Hulse kasta mæðinni eftir 1500 m. hlaupið.
Og í greininni sjálfri segir m. a.: „Það
voru skemmtilegir drengir, sem koinu i
heimsókn frá sögueyjunni. í gær ióku
þeir ein fyrstu verðlaun, 3 önnur og 3
þriðju verðlaun....“
Þess skal getið hér, að verðlaunin á
Bislet voru mjög glæsileg, nær eingöngu
silfurbikarar mismunandi stórir.
„í 1500 m. hlaupinu gerði maður ráð
fyrir að keppnin stæði milli Sponb. og
Hulse...en það var Islendingur með
i spilinu, Óskar Jónsson, og með lion-
um hafði aldrei verið reiknað.“ Og enn-
fremur: „íslendingarnir Thorvaldsson
og Clausen eru eins og kunnugt er báð-
ir í Norðurlandaliðinu á móti Sviþjóð.
Þess vegna er fylgst með þátttöku þeirra
af enn meiri áhuga. Og menn urðu
vissulega ekki fyrir vonbrigðum. Við
höfum sjahlan séð betra „start“ en hjá
Thorvaldsson í gær. Hann hljóp fyrstu
60 metrana alveg sérstaklega vel og um
tima leit út fyrir að hann myndi sigra
Guida U.S.A.“
„Perkins U. S. A. og íslendingurinn
Jónsson menn dagsins,“ segir Várt land
í fyrirsögn og „íslendingurinn Óskar
Jónsson var „sensasjon“ í 1500 m.“ er
aðalfyrirsögnin hjá „Verdens Gang“ og
í greininni segir: „Ölluni til undrunar
voru 1500 metrarnir unnir af íslend-
ingnum Óskari Jónssyni á liinum glæsi-
lega tíma 3:53,4. Sigurinn á hann fyrst
og fremst að þakka því hve hann hljóp
tæknilega rétt“.... „í 100 m. hlaupi
barðist Peter Block við íslendingana
Thorvaldsson og Clausen og varð að
láta sér lynda síðasta sætið i fyrsta
skipti á ævinni.“ „íslendingurinn Jóns-
son vann Sponberg og Hidse í 1500 m.
og hlaut 3:53,4,“ segir Sportsmand-
en í fyrirsögn, og ennfremur í grein-
inni: „Einmitt þegar við sáum sigur
Sponbergs í 1500 m. kom fram íslend-
ingur, sem við hreinskilningslega sagt
höfðum alls ekki reiknað með. Hann
náði fyrst Hulse og síðan Sponberg og
sleil marksnúruna sem öruggur sigur-
vegari. Þessi hái sporlétti Islendingur
lét ekki mikið á sér bera fyrr en 300
m. voru eftir. Þá fór hann fram úr
Per Andresen og byrjaði þaráttuna við
Hulse og sigraði án þess að þeir gætu
nokkuð við gert.“
„Guida varð annar á 100 m„ eins
og vitað var, en svo kornu tveir ís-
lendingar, sem báðir taka þátt í Noro-
urlandamótinu og sýndu glöggt, að þeir
eiga þar lieima.
„í boðhlaupinu var Haukur Clau-
sen með alveg sérstaklega sterkan
endasprett. Síðustu 20 metrana hljóp
Iiann þannig að sjaldgæft er hjá nor-
rænum sprettldaupara.“
Þetta er aðeins hluti af öllum blaða-
ummælunum um íslendingana i Osló,
en hér verður ekki rúm fyrir meira,
Siðari dag Osló-leikanna á Bislet 28.
ágúst, kepptu íslendingarnir í 800 m.
hlaupi, kúluvarpi og spjótkasti. Pétur
Einarsson hljóp i B-riðli í 800 m. og
náði ágætum árangri. Hann varð 3. á
2:00,6 mín, sem er 4. bezti timi, sem
íslendingur hefir náð í þessu hlaupi.
Pétur hljóp heldur of hratt í byrjun,
og hefoi liann eflaust náð betri tíma, ef
hann hefði hlaupið tæknilega rétt. Sig-
urður Sigurðsson varð 4. í kúluvarpi
með 13,65 m. Fyrstur varð Fortune
Gordien U. S. A., með 15,51, en hann
er nú álitinn bezti kringlukastari
heimsins. Jóel Sigurðsson varð annar
í spjótkasti með 58,94. I.engsta kast
Jóels var um 62 m„ eu það var því
miður ógilt. í 200 m. hlaupi varð
Haukur 2. á eftir Guida U. S. A. Hauk-
ur fékk 22,2, en Guida 21,7 sek. Finn-
björn varð 3. á 22,5 og svo komu Norð-
mennirnir.
Þar sem við ÍB-ingarnir áttum að
keppa á Stockhoims-Stadion daginn
eftir eða 29. ágúst, urðum við að fara
með næturlestinni frá Osló. Svo naum-
ur var timinn, að eftir 200 m. hlaupið
urðu þeir Haukur og Finnbjörn að
hlaupa lafmóðir beint í Inlinn, sem
flutti okkur á járnbrautarstöðina, og
höfðu þeir ekki tíma til að klæða sig
í æfingabúningana. Noromönnunum
þótti þvi kynlegt að sjá þá hálfstríp-
aða koma út úr bílnum á stöðiuni.
Dvölin í Noregi er okkur ógleyman-
L