Íþróttablaðið - 01.12.1947, Side 15

Íþróttablaðið - 01.12.1947, Side 15
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ 5 iR-sveitin sem setti hiO glœsilega met í 1000 m. boöhlaupi á Ágústleikunum í Stokkhólmi. Frá vinstri: Kjartan IfOO m. Haukur 300, örn 100 og Finnbjörn 200. leg, og gestrisni Norska frjálsíþrótta- sambandsins verður seint fullþökkuð. Á meðan við dvöldum í Osló, bjó einn af stjórnendum sambandsins Birgir Rassmussen með okkur á Kjeholmen, og sá hann um að okkur vanhagaði ekki um neitt. — En nú var það Svíþjóð. Okkur varð ekki svefnsamt i lestinni um nóttina, og voru þvi margir þreytt- ir eftir ferðina, er keppnin fór fram. Við komum til Stokkhólms um klukk- an 7 morguninn eftir. Það sem okkur undraði mest var hve snemma Svíar rísa úr rekkju. Þá daga, sem við dvöld- umst í Stokkhólmi bjuggum við á heim- ilum félagsmanna i Skuru IK, en svo lieitir félagið, sem sá um mótttökur flokksins i Stokkhólmi. Við bjuggum allir i úthverfum borgarinnar, og urð- um því ætið að fara um það bil 10 km. i bil, til borgarinnar. Önnur keppnin — Ágústleikarnir í Stokkhólmi. Eins og áður er sagt, vorum við þreyttir eftir næturferðalagið, en þrátt fyrir það varð árangurinn ótrúlega góður. 100 m. hlaupið vann Finnbjörn á 10,9, en Lundqvist, sá hinn sami og kom hingað í sumar, varð annar, á sama tima. Um tíma leit þó út sem Lundqvist niundi sigra, þar sem hann hafði náð beztu „starti“. Haukur varð þriðji einnig á 10,9 sek. Fjórði varð Nisse Karlsson á 11,0 og 5. Hedin, sá Öskar Jónsson í keppni. sem hljóp 200 m. fyrir Svía í Norður- landakeppninni. Hann fékk 11,1 í 400 m. hlaupi varð Kjartan Jó- hannsson 3. í sínum riðli á 51,6, en komst ekki í úrslit. Ileynir Sigurðsson var'ð 6. i sínum riðli á 52,1. í 1500 m. varð Óskar Jónsson 9. á 3:57,4, sem er hans næstbezti árangur i þeirri grein. 1500 m. lilaup er eins og mörgum er kunnugt sterkasta grein Svíanna, og var því ekki mikil von um sigur þar. Sigurður Sigurðsson varð 5. í kúluvarpi með 13,13 m. en það er mun verri árangur en hann náði i Osló, enda var veður mjög kalt þetta kvöld þótt lyngt væri. Siðasta greinin, sem við tókum þátt í þetta kvöld var 1000 m. hoðhlaup. Þegar það fór fram var orðið mjög skuggsynt á „Stadion“, og hafði verið kveikt á fjölmörgum ljóskösturum. Var völlurinn mjög fagur á að líta þannig upplýstur. Auk ÍR-sveitar. og sænsku félaganna keppti þar úrvalssveit frá Frakklandi, en Frakkarnir voru þá á iþróttaferðalagi um Svíþjóð, og kepptu á Stadion þetta kvöld. Fyrir ÍR-sveit- ina hlupu þeir Örn Clausen, Finnbjörn, Haukur og Kjartan. Fyrstu 100 m. hljóp Örn og náði ágætu starti, aldrei þessu vant, Finnbjörn tók síðan við, eftir vel heppnaða skiptingu og hljóp 200 m. ágætlega. Skilaði hann keflinu til Hauks, á undan öllum keppninautum sínum. Eftir skiptirigu þeirra Finn- björns og Hauks, sem heppnaðist vel, voru Frakkarnir i öðru sæti og um það bil 3 metra á eftir ÍR-sveitinni. 300 m. hljóp svo Haukur fyrir IR, en Chef d’Hotel, sem Svíarnir kölluðu „Hotelchefen" (liótelstjórann), fyrir Frakkland. Chef d’Hotel er eins og kunnugt er annar bezti 400 og 800 m. lilaupari Frakklands. Þeir voru jafnir fyrstu 50 metrana, og bjuggumst við strákarnir við því á hverri stundu, að hinn þrautreyndi og þolgóði Frakki mundi fara að vinna á. Þá skeði það ótrúlega, að Haukur fór að vinna jafnt og þétt á, og er 300 metrunum var lokið, var ÍR-sveitin komin upp undir 20 metra á undan. Þess má geta að Chef d’Hotel tapaði nokkrum metrum á því að lilaupa beygjuna á 3. braut enda þótt hann mætti hlaupa á innstu braut. Haukur tók þó af honum að minnsta kosti 13 - 15 m. á sprett- inum. En nú var 400 m. spretturinn eftir. Kjartan var með um 20 m. for- gjöf á móti franska meistaranum Hansenne, sem hljóp stórkostlega vel og tókst á síðustu metrunum að kom-

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.