Íþróttablaðið - 01.12.1947, Blaðsíða 19
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
9
Mótinu var slitiS mánudagskvöldið 8.
sept. Það var iiátiðleg stund, þegar 20
þús. manns sungu sænska þjóðsönginn
þarna inni á hinum upplýsta Olympiu-
velli. Þeirri stundu munum við, sem
þarna vorum, seint gleyma.
6. keppnin — í Shovde.
Sunnudaginn 7. sept. daginn eftir að
N'orðurlandakeppnin hófst, fóru 3 ÍR-
ingar, þeir Jóel Sigurðsson, Óskar Jóns-
son og Reynir Sigurðsson með járnhraut
til borgarinnar Shövde til þess að keppa
þar. En þvi miður aftraði veðrið því,
að ferðin heppnaðist sem skyldi, livað
árangur snerti, þvi rok var mikið þeg-
ar keppnin fór frarn. Þrátt fyrir þetta
stóðu ÍR-ingarnir sig allir vel. Jóel varð
2. í spjótkasti með 56,02 m. og Óskar 2.
i 800 m. á 2:02,4 mín. Reynir hljóp und-
anrás í 400 m. hlaupi og komst í úrslit,
en lestin, sem átti að flytja strákana til
Stokkhólms, átti að fara áður en úrslit
fóru fram, og gat Reynir ]iví ekki tekið
þátt i þeim. En Shövde-búum hefir víst
þótt Reynir svo líklegur til afreka að
þeir komu með verðlaunin til hans á
brautarstöðina, áður en úrslitablaupið
var útkljáð. Svei mér ekki svo afleitt,
að fá verðlaun fyrir að þykja líklegur
til sigurs.
7. keppnin — í Östersund.
Þriðjudaginn R). sept fóru þeir Finn-
björn, Örn Clausen og Óskar Jónsson
með næturlestinni norður til borgarinn-
ar Östursund til þess að keppa þar, en
þar býr Anton Bolinder, Evrópumeist-
ari í hástökki, og var það fyrir hans til-
stilli að við kepptum þar. Veður var
kalt og vindur all sterkur, en þrátt fyrir
það urðu árangrar okkar mjög sæmi-
legir. Finnbjörn vann 100 m. hlaupið á
11,0 sek. en Örn varð 4. á 11,2 sek. Það
skal tekið fram að báðir Svíarnir „þóf-
störtuðu“ all-freklega, svo að Örn og
Finnbjörn voru á báðum áttum, hvort
þeir áttu að lialda áfram eftir viðbragð-
ið, en þar sem ræsirinn gaf ekki merki
urðu þeir að sætta sig við það.
Langstökkið vann Finnbjörn einnig
og stökk 6,92 m., en Örn varð 4. með
6,57 m. Atrennubrautin í langstökkinu
var mjög laus i sér. 1 800 m. hlaupinu
varð Óskar 2. á 1:57,4 mín. Fyrstur varð
Hasse Liljekvist, sem nú hljóp á 1:55,6
mín. Á því geta menn bezt séð hversu
200 m. hlaupiö. Eftir 75 m. Frá vinstri: Bloch, Lundqvist, Strandberg, Haukur.
50 m. frá marki: Tranberg á 5. braut er enn fyrstur, en Haukur vinnur stööugt á.
1 markinu: Haukur hefir sigraö. Tranberg er annar og Lundqvist þriöji.