Íþróttablaðið - 01.12.1947, Side 24
14
IÞRÓTTABLAÐIÐ
Siguröur Jónsson, KR, fyrsti Islend-
ingurinn, sem Tcemst í úrslit í álþjóöa-
sundmóti.
synti í kafi. 7. maðurinn í úrslitunum
ógilti sund sitt.
Eg hefi nú drepið á það markverð-
asta, sem gerðist á mótinu, en skal
að lokum aðeins iítillega minnast á
heimferðina.
Þriðjudaginn 16. september fórum
við frá Monte Carlo áleiðis til Parísar
með járnbraut. Liggur leiðin meðfram
Riveraströndinni til Marseille. Gat þar
að líta marga einkabústaði milljóna-
// Islendingar úti í MiÖjarðarhafi.
mæringa frá ýmsum löndum. Virtist
fólk vera að baða sig með fram allri
ströndinni og njóta hins eilífa sum-
ars þar suður frá.
Við komum til Parísar daginn eftir,
17. sept. og fengum inni i sama gisti-
húsinu og við dvöldum á fyrir rúmri
viku á suðurleið.
Erlingur sagði, að nú skyldum við
hafa braðann á, því að nú ættum við
að skoða París. Þessu kalli var ræki-
lega hlýtt, því eftir 15 min. höfðum
við skipt um föt og vorum mættir i
forsal gistihússins, tilbúnir að leggja
í gönguferð um borgina, því margt
nýstárlegt bar þar fyrir augu okkar,
sem aldir erum upp á hjara veraldar.
Við fórum m. a. upp i Eiffelturninn
og sáum svo að segja yfir alla borg-
ina, skoðuðum aðalsafnhúsið og skauta-
höll, sem okkur þótti sérstaklega mik-
ið til koma. Dagurinn var því fljótur
að líða.
18. sept. höfðum við pantað flugfar
til Prestvick enda var farareyririnn
á þrotum, en í París hefir maður lítið
gaman af að dveljast peningalaus. Rétt
fyrir hádegið, þegar við ætluðum að
leggja af stað til flugvallarins, kom
í ljós að einn okkar átti afmæli. Er-
lingur ákvað þá, að við skryppum inn
veitingahús og fengjum okkur fína
máltíð í tilefni dagsins, og fóru siðustu
frankarnir í það.
KI. 4 síðdegis lögðum við af stað frá
flugvellinum í Paris og vorum komnir
til Prestwick eftir tvær klukkustund-
ir. Þar urðum við að bíða i þrjá daga
eftir flugfari heim. Þótt kaRt væri í
veðri og dimmviðri, þegar upp undir
land kom leið okkur vel á ieiðinni með
leiguflugvél Flugfélags íslands og lent-
um á Reykjavíkurflugvelli heilu og
höldnu eftir 17 daga útivist. Þar fögn-
uðu komu okkar forseti ÍSÍ, Ben G.
Waage, ásamt fríðu föruneyti og þökk-
um við þær mótttökur.
Enda þótt þessi för hafi ekki verið
nein sigurför fyrir okkur, þá held ég
þó að við höfum lært af henni, og að
árangur hennar muni i framtíðinni
geta komið i ljós og orðið íslenzkri
sundment að gagni.
En við náum aldrei langt í sund-
iþróttinni, frekar en öðrum iþróttum
nema æfihgaskilyrðin séu góð, og þau
Viðbragöiö í 200 m. bringusundi. Sig-
uröur KR-ingur sést fremst á myndinni.
þurfa að batna frá því sem nú er. —
Sundfélögin þurfa að fá meiri tíma til
æfinga, og ekki einungis að kvöldinu,
heldur einnig að deginum til, þegar
æft er undir harða keppni.
Að lokum vil ég þakka landsþjálfara
okkar,, Jóni Pálssyni, þá miklu rækt
sem hann lagði við æfingarnar, og far-
arstjóranum, Erlingi Pálssyni, ágæta
forsjá okkar.
Uppi á Eiffelturninum í París.