Íþróttablaðið - 01.12.1947, Side 26
16
IÞRÓTTABLAÐIÐ
Frjjálsíþró
. Meistaramót Reykjavíkur
hið þriðja i röðinni hófst 14. júlí s. 1.
en lauk ekki fyrr en 6. sept. Stafaði
sá dráttur af óþarfa mistökum í sam-
bandi við framkvæmd mótsins. Svo
var mál með vexti, að fyrsta árið var
mótig' haldið á fjórum dögum svo sem
reglugerð þess mælti fyrir um. Þetta
fyrirkomulag gafst svo illa að íþrótta-
ráð Reykjavíkur breytti reglugerð þess
í svipað horf og reglugerð Meistaramóts
íslands. — Var keppt með þvi fyrir-
komulagi s. 1. ár (1946) og gafst ágæt-
lega. Með öðrum orðum mótið var
haldið á 2 dögum og boðhlaupin og
fimmtarþrautin á þeim þriðja. Auk
þess bætti ráðið þá inn tveim grein-
um, sem hafði verið sleppt fyrsta ár-
ið, þrístökki og sleggjukasti. Að þessu
sinni skeði sá óskiljanlegi atburður,
að mótið var auglýst með hinu gamla,
úrelta fyrirkomulagi. Mun hafa verið
kvartað yfir þessu við rétta aðila, í-
þróttaráðið, og framkv.nefnd mótsins,
Í.R., en án árangurs að þvi er virðist.
Hefir fréttzt að ráðio liafi að vísu tek-
ið mótmælin til greina, en ÍR ekki farið
eftir því. Og hvernig sem það var, þá
er eitt vist að ÍR hélt mótið á 4 dögum
samkvæmt hinu úrelta fyrirkomulagi
og sleppti úr þeim 2 greinum, sem áð-
ur er minnst á. Nokkru síðar auglýsti
ráðið að það ætlaði að láta keppa i
áðurnefndum tveim greinum og tókst
það eftir nokkrar tilraunir. Fór sleggju-
kastskeppnin fram 20. ágúst, en þrí-
stökkio 6. sept. eða 1 %—2 mánuðum
eftir að aðalmótið fór fram. Ná svona
vinnubrögð vitanlega engri átt, hverj-
um sem um er að kenna. — Helztu
úrslit mótsins urðu þessi:
14. júlí.
100 m. hlaup:
Finnbjörn Þorvaldsson, ÍR, 11,1 sek.,
2. Haukur Clausen, ÍR, 11,1 sek., 3.
Örn Clausen, ÍR, 11,4 sek., 4. Ásm.
Bjarnason, KR, 11,7 sek. (örlítill mót-
vindur).
Haiiiól in ■
Eftir Jóhann Bernhard
110 m. grindahlaup:
1. Skúli Guðmundsson, IvR, 16,3 sek.,
2. Ólafur Nielsen, Á, 17,1 sek. (Fleiri
kepptu ekki).
800 m. hlaup:
1. Óskar Jónsson, ÍR, 1:57,8 mín.,
2. Kjartan Jóhannsson, ÍR, 1:58,5 mín.,
3. Pétur Einarsson, ÍR, 2:02,3 mín., 4.
Hörður Hafliðason, Á, 2:04,4 mín.
Kúluvarp.
1. Vilhj. Vilmundarson, KR, 13,92
m., 2. Ástvaldur Jónsson, Á, 13,79 m.,
3. Sigurður Sigurðsson, ÍR, 13,34 m.,
4. Friðrik Guðmundsson, KR, 13,19 m.
Langstökk:
1. Finnbjörn Þorvaldsson, ÍR, 6,87
m., 2. Magnús Baldvinsson, ÍR, 6,56
m., 3. Torfi Bryngeirsson, KR, 6,25 m.
4. maður, Örn Clausen, ÍR, meiddist
á fæti og varð að hætta keppni. Var
þetta skaðd mikill, þvi að hann átti all-
lengi í þessu og komst aldrei i fulla
þjálfun aftur það sem eftir var sum-
arsins. Veður var hálfleiðinlegt þenn-
an dag, kalsi og rigningarsuddi.
15 júlí.
200 m. hlaup:
1. Haukur Clausen, ÍR, 22,2 sek.,
(Nýtt drengjamet) 2. Finnbjörn Þor-
valdsson, ÍR, 22,3 sek., 3. Ásmundur
Bjarnason, KR, 22,8 sek., 4. Trausti
Eyjólfsson, KR, 23,4 sek.
Tími Hauks er aðeins einum tíunda
sek. lakari en íslandsmet Finnbjarn-
ar, sem er sett erlendis og jafnframt
bezti tími á Norðurlöndum það sem af
er árinu. Annars náðu allir keppend-
urnir óvenju góðum tímum, svo seni
t. d. Ásm. Bjarnason, KR, sem er 3.
íslendingurinn, er fer undir 23 sek.
og hefir þó ekki keppt fyrr en í sumar
i spretthlaupum. Vindur var allhvass
og hagstæður fyrir beygjuna.
Kringlukast:
1. Friðrik Guðmundsson, KR, 39,51
m., 2. Ólafur Guðmundsson, ÍR, 38,88
Reykjavík
m., 3. Jóel Sigurðsson, ÍR, 37,17 m., 4.
Gunnar Sigurðsson, KR, 36,95 m.
Hástökk:
1. Skúli Guðmundsson, KR, 1,80 m.,
2. Rúnar Bjarnason, ÍR, 1,55 m. 3.
keppandinn felldi byrjunarhæðina.
400 m. grindahlaup:
1. Haukur Clausen, ÍR, 61,1 sek.,
2. Reynir Sigurðsson, ÍR, 61,1 sek., 3.
Sveinn Björnsson, KR, 64,2 sek.
1500 m. hlaup:
1. Óskar Jónsson, ÍR, 4:06,8 min., 2.
Hörður Hafliðason, Á, 4:23,4 mín., 3.
Pétur Einarsson, ÍR, 4:24,6 mín.
Eins og áður er tekið fram var all-
hvasst og veður frekar óhagstætt. Háði
það betri árangri í hinum íþróttagr
16. júlí.
400 m. hlaup:
1. Kjartan Jóhannsson, ÍR, 52,3 sek.,
2. Ásm. Bjarnason, KR, 53,0 sek., 3.
Reynir Sigurðsson, ÍR, 53,1 sek.
Spjótkast:
1. Finnbjörn Þorvaldsson, ÍR, 54,24
m., 2. Halldór Sigurgeirsson, Á, 52,13
m., 3. Þorvarður Arinbjarnarson, KR,
51,21 m., 4. Friðrik Guðmundsson, KR,
46,81 m.
5000 m. hlaup:
1. Þórður Þorgeirsson, KR, 16,46,6
mín., 2. Indriði Jónsson, KR, 17,26,6
mín., 3. Steinar Þorfinnsson, Á, 18,42,6
Stangarstökk:
1. Torfi Bryngeirsson, KR, 3,72 m.
(Nýtt ísl. met.), 2. Bjarni Linnet, Á,
3,65 m. 3. keppandinn felldi byrjunar-
hæðina. Torfi setti þarna annað met
sitt á árinu, þrátt fyrir óhagstætt veð-
ur. Bjarni Linnet stökk einnig hærra
en hann hefir gert áður.
4x100 m. boðhlaup:
1. ÍR 44,2 sek., 2. KR 45,1 sek., 3. KR
(B) 47,0 sek. Sveit ÍR var þannig
skipuo: F'innbjörn, Reynir, Haukur og
Kjartan, en sveit KR: Trausti, Pétur,
Magnús, Ásm.
17. júlí.
4x400 m. boðhlaup:
1. ÍR 3:26,6 mín. (Nýtt isl. met), 2.