Íþróttablaðið - 01.12.1947, Qupperneq 29
ÍÞRÖTTABLAÐIÐ
19
Jóel Sigurösson, 1. R.
stökk, en Halldór Lánisson lengdi sig
smátt og smátt upp i 6,81 m., sem er
óvenju góður árangur og mun betri
en hann hefur náö áður. Úrslit: ís-
landsmeistari 1947: Finnbjörn Þorvalds-
son, ÍR 7,14 m. 2. Oliver Steinn, FH 6,86
m. 3. Halldór Lárusson, Ums. K. 6,81 m.
m. 4. Magnús Baldvinsson, ÍR 6,64 m. 5.
Þorbjörn Pétursson* Á. 6,39 m. 6. Óli P.
Kristjánsson, HSÞ. 6,35 m. 7. Stefán Sör-
ensson, HSÞ. 6,27 m. Meistari i fyrra,
Oliver Steinn 6,99 m.
Fyrsti íslendingur yfir 60 metra.
Loks komst spjótið yfir hið langþráða
takmark 60 metra. Jóel var i essinu sínu
og kastaði strax í fyrsta kasti vel yfir
60 metra merkið, sem síðar reyndist ná-
kvæmlega 60,82 m. Hin köstin voru öll
styttri, enda var takmarkinu náð með
fyrsta kastinu. Fyrra metið sem Jóel
setti á Afmælismóti IR. var 59,07 m. svo
að hann bætti það um 1,75 metra. Til
fróðleiks má geta þess, að þetta kast Jó-
els er 1 cm. lengra en Evrópumeistarinn
Atterwall kastaði á afmælismótinu i júlí.
Hjálmar Torfason, HSÞ, sýndi að hann
er í stöðugri framför. Kastaði 55,17
'm., en á þó eftir að geta bætt sig mikið
með bættum stíl. Aðrir voru fyrir neðan
50 metra. Úrslit: íslandsmeistari 1947:
Jóel Sigurðsson ÍR. 60,82 m., 2. Hjálmar
Torfason, HSÞ. 55,17 m. 3. Halldór Sig-
urgeirsson, Á. 49,97 m. 4. Gísli Kristjáns-
son, ÍR, 47,24 m. Meistari i fyrra: Jóel
58,01.
Sama áhugaleysið fyrir langhlaupum.
Af 4 skráðum þátttakendum 5000 m.
hlaupsins mættu aðeins 2 til leiks, þeir
gömlu kapparnir Sigurgeir og Indriði.
Fóru þeir sér að engu óðslega í þessu
leiðinlega veðri þar til síðustu metrana,
að það kom i ljós, að báðir vildu vinna.
Aðeins öðrum þeirra tókst það að sjálf-
sögðu — og féll það í hlut Sigurgeirs.
Úrslit: íslandsmeistari 1947: Sigurgeir
Ársælsson, Á. 17:31,2 mín. 2. Indriði
Jónsson, KR. 17:32,0 mín. Meistari í
fyrra: Indriði 16:29,6 mín.
Nýtt met í 400 m. grindahlaupi.
Af 5 skráðum þátttakendum mættu
aðeins 3 til leiks. Haukur Clausen hætti
við þátttöku, en ahnennt hafði verið
búist við að hann setti met ef hann
keppti. Þrátt fyrir fjarveru Hauks var
sett nýtt met í hlaupinu. Gerði það hinn
bráðefnilegi hlaupari, Reynir Sigurðs-
son, IR. sem enn er drengur að aldri
og tími hans því jafnframt drengjamet.
Gamla metið var 59,7 sek. sett af Brynj.
Ingólfssyni, KR. í fyrra. Þetta nýja met
— 59,0 sek. — gefur 740 stig og sam-
svara 16,2 — 16,3 i 110 m. grindahlaupi.
Er því sjáanlegt að efniviður er hér
ágætur i góða grindahlaupara, enda þótt
áhugaleysið og þátttökufæð hafi enn
sem komið er komið i veg fyrir fyrsta
flokks árangur í þessari grein. Úrslit:
íslandsmeistari 1947: Reynir Sigurðsson
ÍR. 59,0 sek. nýtt isl. met. 2. Ólafur Niels
son, Á. 63,5 sek. 3. Örn Eiðsson, lR. 65,1
sek. Meistari i fyrra: Brynj. Ingólfsson,
IvR. 59,7 sek.
Annar dagur, þriðjudagur 12 ágúst.
3 íslandsmet í viðbót.
Nú var veður mun betra en kvöld-
ið áður, lygnt og hlýtt, en brautir
nokkuð blautar. Árangurinn varð og
eftir veðrinu, því að alls voru sett
3 glæsileg íslandsmet. Sú óhyggilega
ráðstöfun varð gerð í sambandi við
100 metra hlaupið að láta 8 menn
hlaupa i 3 riðlum og síðan tveim milli-
riðlum, en fresta siðan úrslitahlaup-
inu um óákveðinn tima, þótt tímarn-
ir í undanrásunum (íslandsmetið)
hefði átt að sannfæra menn um að
hlaupaskilyrði voru hagstæð. Mun þessi
ráðstöfun hafa haft mikil áhrif á úr-
slit hlaupsins og jafnvel komið i veg
fyrir enn betra met en sett var i milli-
riðlinum.
Finnbjörn 10,7 — Haukur 10,9.
Af 11 skráðum þátttakendum mættu
9 til leiks. Var þeim skipt í 3 þriggja
manna riðla. Úrslit urðu þessi: 1. riðill:
1. Haukur Clausen, ÍR. 11,2 sek. 2.
Reynir Gunnarsson, Á. 11,5 sek. 3. kepp-
Reynir Sigurösson, 1. R.