Íþróttablaðið - 01.12.1947, Page 30
20
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
Torfi Bryngeirsson stekkur 3,80 í stangarstökki.
andinn brá tvívegis of snemma við og
var visað úr leik. Hlupu þvi aðeins 8
keppendur þessar sögulegu undanrásar.
2. riðill. 1. Ásm. Bjarnason, KR, 11,3 sek.
2. Þorbj. Pétursson, Á. 11,5 sek. 3. Þór-
arinn Gunnarsson, ÍR. 11,8 sek. 3. riðill:
1. Finnbjörn Þorvaldsso**, JR. 10,9 sek.
2. Trausti Eyjólfsson, KR. 11,5 sek. 3.
Pétur Sigurðsson, KR. 11,7 sek. — Fyrri
milliriðill: 1. Haukur Clausen, ÍR. 10,9
sek. (nýtt drengjamet), 2. Ásm. Bjarna-
son, KR. 11,2 sek. 3. Reynir Gunnarsson,
Á. 11,0 sek. — Síðari milliriðill: 1. Finn-
björn Þorvaldsson, ÍR. 10,7 sek. (nýtt
íslandsmet), 2. Þorbjörn Pétursson, Á.
11,4 sek. 3. Trausti Eyjólfsson, KR. 11,4
sek. Þegar hér var komið, var úrslita-
lilaupinu frestað, enda þótt greinilegur
stígandi væri i árangri keppenda. Gamla
metið var 10,8 sek. sett af Finnbirni á
meistaramótinu í fyrra.
Nýtt met í stangarstökki.
Torfi Bryngeirsson, KR. setti að þessu
sinni þriðja íslandsmetið í stangar-
stökki — og sigraði skæðustu keppi-
nauta sína með miklum yfirburðum. —
Hann fór vel yfir methæðina 3,75 m.,
en mistókst á næstu liæð — 3,85 m. —
kom illa niour og hætti við svo búið.
Hefði verið hyggiíegra að hækka aðeins
um 5 cm., í 3,80 m. Stíll Torfa fer
batnandi og virðist liann hafa góð skil-
yrði til að komast yfir 4 metra næsta
sumar, æfi hann vel og reglulegá,. •—
Bjarni Linnet, Á. og Kolbeinn Kristins-
son, Selfossi voru báðir lakari en þeir
eiga vanda til — og stukku aðeins 3,45
og 3,20 m. Úrslit: íslandsmeistari 1947.
Torfi Bryngeirsson, KR, 3,75 m. (nýtt
íslandsmet) 2. Bjarni Linnet, Á, 3,45 m.
3. Kolbeinn Kristinsson, Self. 3,20 m.
Meistari í fyrra: Torfi, 3,40 m.
Ovænt úrslit í 400 m. hlaupi.
Af sjö skráðum þátttakendum mættu
aðeins 4 til leiks og var því jafnframt
um úrslitahlaup að ræða. Methafinn
Haukur Clausen hætti við hlaupið, urðu
það mörgum vonhrigði. íslandsmeistar-
inn Kjartan Jóhannsson sem hljóp á 4.
braut tók strax forustuna og virtist hafa
hlaupið í hendi sér. Á beinu brautinni
liafði hann enn gott forskot, en keppni
virtist ætla að verða hörð um 2. sætið
milli Reynis Sigurðssonar, IR, á (2.
braut) og hins efnilega nýliða, Magnús-
ar Jónssonar, KR. (á 3. braut). Fáeina
metra frá marki tókst Reyni að komast
fram úr Magnúsi, er þá voru þeir báð-
ir svo nálægt Kjartani, að erfitt reynd-
ist að skera úr um hvor hefði unnið
hlaupið, Revnir eða Kjartan. Þar- við
hættist að Magnús hrasaði, en það stutt
frá marki að hann datt inní það.
Lá við að allir þrír fengju sama tíma.
í spenningnum tóku fáir eftir fjórða
keppandanum, Páli Halldórssyni, KR.,
sem þó var aðeins 6—7 metrum á eftir,
og á tíma, sem var mettími fram á árið
’44. Um tíma voru menn ekki á eitt sátt-
ir um það hvor hefði unnið hlaupið og
konm fram óskir um að hlaupið yrði
dæmt jafnt og umhlaup látið fara fram.
Um siðir tók hlaupstjórinn rögg á sig
og dæmdi Reyni sigurinn: Úrslit: ís-
landsmeistari: Reynir Sigurðsson, IR.
51, 5 sek. 2. Kjartan Jóhannsson, ÍR, 51,5
sek. 3. Magnús Jónsson, KR. 51,6 sek. 4.
Páll Halldórsson, KR, 52,6. Meistari í
fyrra: Kjartan Jóhannsson, ÍR, 51,3 sek.
2 yfir 40 metra í kringlukasti.
Enda þótt enginn þeirra Huseby, Jóns
Ólafss. eða Braga Friðrikssonar væri
meðal keppenda, varð keppnin bæði jöfn
og spennandi og 2 komust yfir 40 m.
Ólafur Guðmundsson, ÍR, kastaði 40,09
m. strax í fyrsta kasti og svaraði Frið-
rik því með 40,14 m. í öðru kasti. í
fyrsta úrslitakastinu tryggði Ólafur
sér sigurinn með 41,84 m., en Friðrik
tókst ekki að bæta við sig. Er Friðrik 6.
íslendingurinn, sem kastar yfir 40 m.
Af 12 á skrá mættu 11 og eru það góðar
heimtur. Úrslit: íslandsmeistari 1947:
Ólafur Guðmundsson, ÍR. 41,84 m. 2.
Friðrik Guðnmndsson, KR. 40,14 m. 3.
Jóel Sigurðsson, ÍR. 37,54 m. 4. Hjálm-
ar Torfason HSÞ 36,05 m. 5. Gunnar Sig-
urðsson, KR. 35,45 m. 6. Gunnlaugur
Ingason, Hvöt 35,43 m. Meistari í fyrra:
Huseby, 41,69 m.
Farið of hratt af stað í 1500 m. hlaupinu.
Af 6 á skrá mættu 4. Óskar tók strax
forustuna og fór helzt til geyst framan
af. Hefði tími hans getað orðið enn
betri með jafnari ferð. Annars var ekki
um neina samkeppni að ræða, því næsti
maður var 10 sek. á eftir. Var það hinn
efnilegi nýliði Pétur Einarsson, ÍR, sem
virðist vera jafn vígur á 400 og 1500 m.
hlaup og á vissulega eftir að láta til sín
lieyra síðar með bættum stíl og meiri
þjálfun. Ármenningarnir Hörður og
Stefán börðust um 3. sætið og vann sá
fyrrnefndi. í þetta hlaup vantaði til-
finnanlega þá Þórð Þorgeirsson, Ind-
riða Jónsson og Sigurgeir Ársælsson.
Úrslit. íslandsmeistari: Óskar Jónsson,
ÍR. 4:07,2 mín. 2. Pétur Einarsson, ÍR.
4:17,0 mín. 3. Hörður Hafliðason, Á.
4:20,4 mín. 4. Stefán Gunnarsson, Á.
4:21,6 mín. Meistari i fyrra: Óskar 4:00,6