Íþróttablaðið - 01.12.1947, Page 36
26
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
FINNLANDSFOR ARMANNS
Íþróttahátíðin í Finnlandi 1947.
Stjórn Iþróttasambands Finnlands
hafði i samráði við utanríkismála-
ráðuneytið boðið til hátíðarinnar öllum
þeim þjóðum, sem Finnar liafa stjórn-
málasamband við.
Þessar þjóðir tóku boðdnu og sendu
íþróttamenn til hátíðahaldanna.
Belgia, Danmörk, Egyptaland, Eng-
land, Finnland, Holland, ísland, Ítalía
Noregur, Portugal, Luxemburg, Ung-
verjaland, Rússland, Tékkóslóvakía,
Tyrkland og Svíþjóð.
Rúmlega 60 þúsund íþróttamenn og
konur tóku þátt í þessari miklu í-
þróttahátð og fóru alls fram 83 sjálf-
stæðar íþróttasýningar og keppnir
mótsdagana, í öllum þeim íþróttum,
sem iðkaðar eru meðal menningar-
þjóða.
Sunnudaginn 29. júní kl. 7 árd. áttu
þátttakendur að mæta á leikvanginum
(Stadion og Bollplan). Því að nú
skyldi fara fram sú fjölmennasta og
tilkomumesta ganga íþróttamanna, er
sést hefði i Vestur-Evrópu. Kl. 8,45
hófst svo ganga þessara 60 þúsund
íþróttamanna, fyrst kom fánaborg,
síðan allir erlendir íþróttamenn,
þjóðirnar eftir stafrófsröð karlmenn
sem tóku þátt i hópsýningunum og
s. frv. Var bæði tilkomumikið og há-
tíðlegt að sjá skrúðgönguna. Gangan
stóð yfir i tvær klukkustundir um
götur Helsingfors og var fagnað ákaft
og innilega af hundruðum þúsunda
glaðra Finna í glampandi sólskini.
I borginni voru nú að minnsta kosti
tvöfalt fleiri íbúar en venjulega.
Skrúðgangan staðnæmdist á þren
ur aðaltorgum borgarinnar: Stórtorg-
inu, Sölutorginu og Járnbrautartorg-
inu. Kl. 11 árd. hófst útig'uðsþjónusta
og talaði Gulin biskup af tröppum
stórkirkjunnar, en þar á torginu fyr-
ir framan stóðu um 40 þúsund í-
þróttamenn og meðal þeirra allir er-
lendu íþróttamennirnár. Biskupinn
flutti kveðju finnsku kirkjunnar og
þakkaði það samstarf, sem löngu
Jens Guðbjörnsson, form. Ármanns og
fararstjóri í Finnlandsförinni.
væri hafið milli kirkjunnar og íþrótta
hreyfingarinnar.
Kl. 2 þennan sama dag hófst svo
setning mótsins mjög hátíðlega á
Olympsleikvanginum, sem tekur 60 þús-
und áhorfendur. — Þar fluttu ræður
Kaikoski forseti iþróttasambandsins,
Kaskela framkvæmdastjóri hátíðar-
haldanna og Paasikivi forseti Finn-
lands, sem setti hátíðina. Var hon-
um aflient nafnaskrá með rúmum 800
nöfnum (íþróttaboðhlaupið). Finnar
söfnuðu peningum á þann hátt til
mótsins að hver maður sem skrifaði
nafn sitt á nafnaskrána greiddi 20
mörk (ca. 1 krónu).
Engin le:ð er að segja frá mótinu
í stuttri blaðagrein, en til gamans er
hér dagskráin einn daginn: Kl. 8 árd.
Skotkeppni, kl. 8 Finnskur knattleik-
ur, kl. 9 Áhaldaæfingar fimleika-
man'na, kl. 9 Körfubolti, kl. 9 Glímu-
keppni, kl. 10 Nútíma fimmtarþraut,
kl. 10 Veðreiðar, kl. 10 Frjálsar íþrótt-
ir, kl. 11 Herkeppni, kl. 12 kvenleik-
fimi, kl. 12 Róður, kl. 13 Veðreiðar,
kl. 14 Skilmingar, kl. 15 Kvenleik-
fimi, kl. 16 Tennis, kl. 18 Frjálsar
íþróttir, kl. 18 Glíma, kl. 19 Hand-
knattleikur, kl. 19 Fimleikar, kl. 19,30
Róður, kl. 20 Kvenleikfimi, kl. 22
Hlaup eftir áttavita.
Eins og kunnugt er fóru héðan þrír
Þátttakendur Islands í skrúögöngunni. Fremst ganga merkisberi, fánaberar,
Jón Þorsteinsson, Jens Guðbjörnsson og kona hans, sem skartar ísl. búningi. —