Íþróttablaðið - 01.12.1947, Side 37
IÞRÓTTABLAÐIÐ
27
Efri röð: Frá sýningum karla og kvenna í finnska ÞjóÖleikhúsinu. 1 miðið:
glímumenn á æfing^i. Neöri röö, til hægri: Islendingar kenna finnskum liðs
foringjum glímu. Til vinstri: Isl. flokkarnir kveöja eftir sýningu í Stokkhólmi.
íþróttaflokkar á mótið, úrvalsfim-
leikaflokkur kvenna og karla og glímu
flokkur frá félaginu Ármanni, allir
flokkarnir undir stjórn Jóns Þor-
steinssonar, en fararstjóri var Jens
Guðbjörnsson form. félagsins. Flokk-
arnir íslenzku höfðu 14 sýningar í
Helsingfors í sambandi við íþrótta-
hátðina auk þess 3 sýningar í Wieru-
maki, 3 sýningar í Heinola og 3 sýn-
ingar i Stokkhólmi.
Það má strax segja það hér, að ís-
lenzki flokkurinn á íþróttahátíð Finn-
lands hefur á mikilfenglegan hátt
komið fram fyrir hönd Islands og
íslenzkrar .íþróttaæsku og kynnt land
sitt eins og bezt verður kosið. Nafnið
Island og íslendingur er það, sem
maður heyrðá oft í Finnlandi um og
eftir íþróttahátíðina.
Enginn kvenflokkur sýndi jafnoft
og íslenzki kvenflokkurinn og' sögðu
blöðin hiklaust að hann væri fremst-
ur allra kvenflokka á Norðurlöndum
í jafnvægisæfingum á hárri slá.
Siðasta sýning íslenzku flokkanna
fór fram i þjóðleikhúsi Finna og
höfðu flokkarnir þar til umráða 1
tima. Þarna sýndu ennfremur Tékkar,
Danir, Norðmenn og Finnar. Lófatak-
Éð og fagnaðarlætin er stúlkurnar
sýndu jafnvægisæfingarnar, piltarn-
ir dýnustökkin og glímuna voru
Jón Þorsteinsson, stjórnandi.
meira en kurteisisviðurkenning. Hér
koma annars nokkur blaðaummæli
er sanna bezt frammistöðu íslenzku
flokkanna.
Helsingin Sanomat 4. júlí 1947:
tílímufélagið Ármann frá íslandi
sýndi hinn ágæta kvenflokk sinn
sem gerði æíingarnar bæði rösklega
og hárnákvæmar, undir stjórn Jóns
Þorsteinssonar. Æfingar þeirra á
hárri slá voru svo vel gerðar að
þær stóðu sænsku stúlkunum langt-
um framar. Hreyfingar voru svo ör-
uggar, stílhreinar og mjúkar og
valdið, sem þær höfðu yfir líkaman-
um var undravert. Sýningunni lauk
með því að stúlkurnar stóðu 5 á
slánni í einu, hæst uppi á stólpun-
um og gerðu þær æfingarnar þar eins
öruggar og þær væru niðri á gólfinu.
Uus: Suomi 4. júli:
Kraftur og fegurð.
Ef íslenzku stúlkurnar, sem sýndu
mjög fallegar og vandasamar æfing-
ar á hárri slá, hlutu aðdáun áhorf-
endanna, var það ekki siður hlut
skipti islenzku piltanna.
Með mikilli hrifningu og aðdáun
horfðu áhorfiendur á flug þeirra í
dýnustökkunum, sem voru svo himin-
há og kröftug að undrum sætti. Hin-
ar frjálsu æfingár þeirra voru svo
vel gerðar, sem frekast getur hugsast
og svo nákvæmar, sem einn maður
væri, en ekki flokkur.
Þá veittist áhorfendum sú ánægja
að kynnast íslenzku glímunni, sem
við fyrstu sýn virtist eins og skilmst
sé með fótunum, hún er bæði fögur
ög karlmannleg íþrótt. Við fengum
og að sjá hinn íturvaxna og fallega
glímukonung þeirra keppa við félaga
sína, sem þeir enn hafa ekki getað
sigrað.
Kennari og stjórnandi allra flokk-
anna var Jón Þorsteinsson. Það er
ósk vor að þessi _ heimsókn íslend-
inganna til Finnlands verði spor til
órjúfanlegs samstarfs þessara tveggja
þjóða, og að það eflist sem bezt í
framtíðinni. Krist Kemppi.
Helsingen Sanomat 2. júlí 1947.
Glímusýningar.
Á mánudagskvöldið fyrir úrslita-
leikina í glimukeppninni höfðu ís-
lenzku gHmumennirnir 13. sýning-
una í Tennishöllinni, þeir voru