Íþróttablaðið - 01.12.1947, Síða 45
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
35
Islandsmeistarar KR í II. flokki. Frá v. fremri röð: Atli Helgason, Har. Sig-
urðsson, Bergur Bergsson, Sverrir Kjœrnested og Helgi Helgason. — Efri röð:
Steinn Steinsson, Sig. Bergsson, Júlíus Gestsson, Björgvin Guðmundsson, Har.
Sveinbjarnarson og Ingi Guðmundsson.
aftur. Úrslit þessa sögulega móts urðu
þau, að Þór vann K. A. meo 3:1 og
þar með landsmót I. flokks í knatt-
spyrnu 1947.
Reykjavikurmótið hófst í júnilok
en lauk ekki fyr en í byrjun ágúst.
Úrslit urðu þau, að KR. bar sigur úr
býtum og hlaut 4 + 2 stig. Fram fékk
4, Valur 3 og Víkingur 1 stig.
II. flokkur:
Landsmótið hófst á Akranesi 23.
ágúst og var útsláttarkeppni þ. e. a. s.
félag var úr leik eftir 2 töp. Þetta
mót var all æfintýrlegt, bæði livað
snerti keppnisfyrirkomulag og þann
langa tima, sem það tók. — Sex
félög tóku þátt í mótinu, Reykjavík-
urfélögin, Hafnfirðingar og Akurnes-
ingar. Eftir 9 leiki liafði helmingur-
inn helzt úr lestinni, en eftir voru
Fram (með 1 tap) og KR. og Valur
(bæði taplaus). Nú áttu Fram og
Valur að keppa, en það tók þau ó-
vart 6 leiki að fá úrslit sín á milli. Að
lokum vann þó Valur með 1:0, 17.
nóv. gat úrslitaleikurinn milli KR. og
Vals loks farið fram og fóru þannig
leikar að KR. sigraði með 2:1. Varð
KR, því íslandsmeistari í II. flokki.
Watsonkeppninni i II. flokki (sem
er útsláttarkeppni) lauk 19. okt. með
leik inilli KR, og Vals. Sigraði KR.
með 1 :Ö og vann þar með keppnina.
Lið KR. í II. flokki hefur aðeins
tapað einum leik á öllu sumrinu, en
unnið 2 af 3. mótum í þessum flokki.
Er liðið skipað óvenju ungum og efni-
legum knattspyrnumönnum.
III. flokkur:
Landsmótið hófst 13. júlí og fór
fram í Hafnarfirði. Auk Reykjavíkur-
félaganna tóku Hafnfirðingar, Akur-
nesingar og Keflvíkingar þátt í mót-
inu. Mótið var útsláttarkeppni (úr eft-
ir eitt tap). 10. ágúst átti úrslita-
leikurinn að fara fram milli Vals og
Akurnesinga, en vegna fjarveru
margra liðsmanna urðu þeir síðar-
nefndu að gefa leikinn. Varð Valur
því íslandsmeistari i III. flokki.
IV. flokkur:
í Reykjavík hafa farið fram 2 mót
í þessum flokki vor- og haustmót og
vann Valur þau bæði.
Fagnaður fyrir Norðurl.farana.
23. sept. s. 1. hélt íþróttafélag Rvík-
ur móttökufagnað fyrir ÍR-ingana, sem
nýkomnir voru úr Norðurlandaförinni.
Formaður ÍR Sigurpáll Jónsson, setti
hófið og stýrði því, en Björn Ólafsson,
fyrrv. ráðherra bauð íþróttamennina
velkomna fyrir hönd félagsins.
Þá flutti Ben. G. Wáge, forseti ÍSÍ
ræðu og afhenti þeim íþróttamönnum,
sem mest afrek unnu, Finnbirni Þor-
valdssyni, Hauk Clausen og Óskari
Jónssyni, silfurbikara frá Iþróttasam-
bandinu, en næst tók til máls Bjarni
Benediktsson, utanrikisráðherra. Þakk-
aði hann íþróttamönnunum afrek þeirra
og kvaðst vonast til, að með þeim hefðu
þeir ekki náð neinu lokatakmarki, held-
ur héldu ótrauðir áfram á sömu braut.
Þá talaði Gunnar Thoroddsen, borgar-
stjóri. — Tilkynnti hann, að bæjarráð
hefði samþykkt að veita ÍR 10 þús. kr.
í viðurkenningarskyni fyrir iþróttaför-
ina, og var því mjög fagnað. Ennfremur
töluSu þeir A. J. Bertelsen, stofnandi ÍR.
Konráð Gislason, form. Frjálsíþrótta-
sambands íslands, Ólafur Sigurðsson,
formaður í. B. R., Sigurjón Pétursson
frá Álafossi, Haraldur Jóhannessen, Þor
björn Guðmundsson fararstjóri og Sig-
urpáll Jónsson, sem tilkynnti að stjórn
félagsins hefði ákveðið að sæma þá
Hauk Clausen, Finnbjörn Þorvaldsson
og Óskar Jónsson gullkrossi félagsins.
Lárus Salómonsson las upp l'rumsamið
kvæði til ÍR-inganna og loks flutti Olle
Ekberg, þjálfari Ölympiunefndarinnar
ræðu.
Víkingar eignast félagsheimili.
27. sept. s.I. opnaði Knattspyrnufé-
lagið Vikingur stórt og rúmgott fé-
lagsheimili i Trípoli kamp á Gríms-
staðaholti. Er þar stór funda- og sam-
komusalur, setustofa, skrifstofa, eld-
hús, fatageymslur, snyrtiherbergi og
geymslur. Hafa Víkingar með þessu
sýnt mikla framtakssemi og dugnað,
sem verða mætti öðrum íþróttasam-
tökum til fyrirmyndar.