Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1966, Blaðsíða 6

Íþróttablaðið - 01.02.1966, Blaðsíða 6
Örn Eiðsson: Frjálsar íþróttir ’65 Frjálsar íþróttir létu ekki mikið að sér kveða árið 1965. Við eigum marga unga og efnilega íþrótta- menn og konur, en það vantar herzlumun, til þess að afrekin verði frambærileg á erlendan mælikvarða. Aðeins tveir íþróttamenn náðu raun- verulega árangri, sem boðlegur er á stórmótum erlendis, þ.e. Valbjörn Þorláksson og Jón Þ. Ólafsson. Ungu mennirnir, sem gáfu góðar vonir 1964, sýndu nokkrar framfarir, en ekki nægar. En það eiga vonandi eftir að koma frekari framfarir, við verðum að vona og sýna þolinmæði, enginn verður óbarinn biskup, það getur tekið nokkur ár, að ná góðum árangri í frjálsum íþróttum, jafnvel þó að vel sé æft. Stærstu viðburðirnir gagnvart út- löndum 1965, var þátttakan í Norð- urlandamótinu i Helsinki og lands- keppnin við Skotland. Ellefu Islend- ingar kepptu á Norðurlandamótinu, einn þeirra, Valbjörn Þorláksson, hlaut verðlaunapening og hann var úr eftirsóttasta málminum, þ.e. gulli. Jón Þ. Ólafsson varð fjórði í há- stökki og Kristleifur Guðbjörnsson hlaut sjötta sæti í 10 km. hlaupi. Því miður náðu fæstir af þátttak- endunum þeim árangri, sem vonast var til. Skotar sigruðu Is- lendinga með töluverðum yfirburð- um í landskeppninni, 62:37 í keppni karla og 24:14 í keppni kvenna, en þetta var í fyrsta sinn, sem íslenzkt kvenfólk tekur þátt í landskeppni í frjálsum íþróttum. Stjórn FRl. Stjórn Frjálsíþróttasambands Is- lands síðasta starfsár var skipuð sem hér segir: Ingi Þorsteinsson, formaður, Þorbjörn Pétursson, vara- formaður, Svavar Markússon, ritari, Björn Vilmundarson, gjaldkeri, Jón M. Guðmundsson, fundarritari, Öm Eiðsson, formaður Laganefndar og Höskuldur Goði Karlsson, formaður TJtbreiðslunefndar. Formenn nefnd- anna eiga einnig sæti í aðalstjórn- inni. Einn veikasti hlekkurinn í skipu- lags- og útbreiðslustarfsem- inni fyrir frjálsíþróttum, er hversu mikill skortur er á nægjanlegum starfskröftum til að sinna hinu frjálsa starfi eins og skyldi, og hef- ur þetta frekar farið versnandi. Ástæður fyrir þessu eru vafalaust margar og misjafnar, en ef til vill er sú ástæðan veigamest, að fjár- skortur hefur hamlað framgangi og útbreiðslu íþrótta í landinu undanfar- in ár, þannig að starfsáhugi þeirra áhugamanna, sem fremstir stóðu hver í sínum flokki, fór smámsaman þverrandi eða þeir gáfust hreinlega upp I baráttunni, er þeir fundu, að áhuginn einn dugði skammt. Félög og félagasamtök hafa ekki greitt íþróttakennurum réttmæt laun fyrir störf sin, þannig að starf- andi sérmenntuðum kennurum í frjálsíþróttum í landinu hefur fækk- að í stað þess að aukast með aukinni fólksfjölgun. Þetta er staðreynd, sem horfast verður í augu við. Á s.l. tveim árum hefur dugmikilli framkvæmdastjóm I.S.I. tekizt eins og kunnugt er að koma skipulagi á fjármál og tekjuöflun íþróttahreyf- ingarinnar. Auk þessa hafa verið gerðar raunhæfar athuganir af hálfu I.S.I. á þörfinni fyrir aukningu á útbreiðslustarfi fyrir íþróttum i landinu og aukinni þörf á fjölgun leiðbeinenda í öllum íþróttagreinum. Engir sambandsaðilar beindu til- mælum til stjórnar FRl, að stjórnin annist fyrirgreiðslu um útvegun frjálsíþróttaþjálfara um skemmri eða lengri tíma. 1 náinni samvinnu við I.S.I. og Iþróttakennaraskóla íslands, fór fram námskeið á vegum FRl fyrir leiðbeinendur að Núpi 18.—28. júní 1965. Kennarar námskeiðsins vom Benedikt Jakobsson og Valdimar Örnólfsson og aðalhvatamaður og forstöðumaður fyrir þessu námskeiði Jón Þ. Ólafsson, IR. var Sigurður R. Guðmundsson íþróttakennari og formaður Héraðs- sambands V.-lsfirðinga. Einnig fór slíkt leiðbeinendanámskeið fram I sumar að Laugum á vegum Héraðs- sambands Suður-Þingeyinga. Bene- dikt Jakobsson og Stefán Kristjáns- son voru kennarar námskeiðsins. Að Núpi voru 5 nemendur útskrifaðir og 10 að Laugum. Á ársþingi FRl 1962 var sam- þykkt, eins og kunnugt er, að koma á Unglingakeppni, sem var fram- kvæmd í fyrsta skipti árið 1963, og tókst mjög vel og taldi stjórn FRl árangur keppni þessarar at- hyglisverðasta viðburðinn í frjáls- íþróttum það ár. S.I. ár fór Unglingakeppnin fram að Laugum dagana 14 og 15. ágúst og sá HSÞ um keppnina. Á þessu móti kepptu milli 30—40 unglingar og greiddi FRl helming í ferðakostnaði unglinganna. Þátttakendur voru færri í Unglingakeppni FRl 1965 en tvö árin þar á undan, þar sem á ársþingi FRl 1964 var sam- þykkt breyting á reglugerð keppn- innar og unglingaaldursflokkurinn felldur niður, aðeins keppt í sveina-, drengjaflokki og stúlknaflokki. Jó- hannes Sæmundsson íþróttakennari var fulltrúi F.R.I. að Laugum. 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.