Íþróttablaðið - 01.02.1966, Blaðsíða 42
og áður segir um miðjan júlí. Síðar
á sumrinu voru þar 6 brautir sem
enn hafa ekki verið teknar í notkun,
slegnar og holum komið fyrir til
bráðabirgða þannig að unnt var að
leika 18 holur. Er þess að vænta að
ekki líði nú langur tími þar til unnt
verður að fullgera allar brautir vall-
arins. Er enda ekki vanþörf á því,
þar sem félagatala Golfklúbbsins hef-
ur aukizt allverulega á árinu.
Reykjavíkurmeistari 1965 varð:
Jóhann Eyjólfsson.
Golfklúbbur Suðurnesja hélt uppi
öflugri starfsemi. Er greinilegt að
golfíþróttin hefur þegar fest rætur
allvel á Suðurnesjum. Klúbburinn er
nú næst stærsti klúbburinn á land-
inu og telur nokkuð á annað hundr-
að félaga.
Unnið var áfram að byggingu
Golfskála á velli félagsins í Leiru og
brautir vallarins voru lengdar nokk-
uð á árinu. Þá hafa nokkrir félagar
í klúbbnum fest kaup á landi við
völlinn og er nú unnið að stækkun
Vallarins og breytingum á honum.
Er gleðilegt að sjá hversu mikill á-
hugi er meðal félaga í klúbbnum
fyrir vexti og viðgangi golfíþróttar-
innar á Suðurnesjum.
Á golfmeistaramóti Suðurnesja
1965 var sigurvegari Þorbjörn Kjær-
boe.
Golfklúbbur Vestmannaeyja starf-
aði af miklum eldmóði á síðastliðnu
ári eins og endranær. Félögum þar
hefur farið nokkuð fjölgandi en þó
ekki eins mikið og á öðrum stöðum
á landinu, en þátttaka klúbbfélag-
anna í golfiðkunum var nú með
mesta móti. Klúbburinn efndi til
leiðbeininga fyrir byrjendur og var
aðsókn sæmileg. Kappleikir á vegum
klúbbsins voru með mesta móti og
var þátttaka í kappleikunum mikil
allt sumarið. Á Golfmeistaramóti
Vestmannaeyja 1965 varð Sveinn Ár-
sælsson sigurvegari í tólfta sinn.
Eins og áður segir voru á síðast-
liðnu ári stofnaðir tveir nýir golf-
klúbbar, annar á Akranesi en hinn í
Neskaupstað. Félagar eru um 20 i
hvorum klúbbi og eru þegar hafnar
hjá þeim golfiðkanir enda hafa þeir
báðir fengið nokkra aðstöðu úr lönd-
um rétt við bæinn. Áhugi þeirra sem
byrjað hafa að leika golfíþróttina á
þessum stöðum er geysimikill og þá
sérstaklega í Neskaupstað, en þar
var þegar á hinu fyrsta ári efnt til
kappleika með góðri þátttöku.
Stjórn Golfsambandsins ákvað á
síðastl. ári að vinna að undirbúningi
þátttöku í alþjóðlegu áhugamanna-
móti, sem háð verður í Mexico 1966
um haustið. Sá undirbúningur er
þegar hafinn. Haft hefur verið sam-
band við Golfsambönd Norðurland-
anna og fyrir frumkvæði þeirra er
nú verið að vinna að athugun á því,
að öll þátttökuríki Evrópu taki sam-
eiginlega á leigu flugvél til fararinn-
ar en með því móti á að vera unnt
að komast að mun betri kjörum um
flutning til mótsins, og þar með að
draga úr útgjöldum vegna þátttök-
unnar. Þá hefur stjórnin og gert
áætlanir um fjáröflun vegna farar-
innar og ennfremur gert drög að
reglum um það með hverjum hætti
velja skuli þátttakendur til fararinn-
ar. Heitir stjórn G.S.l. á alla golfiðk-
endur og golfunnendur að veita henni
allan þann stuðning sem unnt er, til
þess að för þessi megi verða hin
sæmilegasta. Að lokum vill stjóm
G.S.l. þakka stjórnum golfklúbb-
anna og golfiðkendum almennt
ánægjulega samvinnu á síðastliðnu
ári.
Þorvaldur Ásgeirsson við golfkennslu.
42