Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1966, Blaðsíða 7

Íþróttablaðið - 01.02.1966, Blaðsíða 7
XJnglingakeppni FRl hefur mikið útbreiðslugildi fyrir frjálsar íþróttir og er stærsta og fjölmennasta ungl- ingamót í frjálsum íþróttum, sem fram hefur farið s.l. þrjú ár. Leggur stjórn FRl mikla áherzlu á að þessi Unglingakeppni fari fram árlega og vanda ber ávallt til mótsins. Æski- legt væri að halda mótið utan Reykjavíkur t.d. annað og þriðja hvert ár og þá á víxl í landsfjórð- ungum landsins. Þegar sýnt þótti, að ekkert yrði úr landskeppni við V-Norðmenn og Dani s.l. sumar þá taldi stjórn FRl rétt að senda frekar stóran hóp þátt- takenda til NM í Helsingfors. Var úr að valdir voru 11 þátttakendur og með þeim Svavar Markússon, sem var aðalfararstjóri og Benedikt Jakobsson þjálfari. Eftirtaldir kepp- endur voru frá Islandi og árangur þeirra var sem hér segir: Valbjörn Þorláksson, keppti í tug- þraut og varð Norðurlandameistari í greininni, hlaut 6902 stig. Jón Þ. Ólafsson, keppti í hástökki og varð nr. 4 í greininni og stökk 2.05 m. Kristleifur Guðbjörnsson, keppti í 10000 m og varð nr. 6 á 31:46,4 mín. Kjartan Guðjónsson, keppti í tug- þraut, varð nr. 8 og hlaut 6268 stig. Guðmundur Hermannsson, keppti í kúluvarpi, varð nr. 7, varpaði 15.10 m. Ólafur Guðmundsson, keppti í 100 m, hljóp í undanrásum á 11.2 sek.; 200 m hljóp hann í undanrásum á 22,7 sek. og 400 m hljóp Ólafur í und- anrásum á 50,0 sek. Kristján Mikaelsson, keppti í 400 m, hljóp í undanrásum á 50,5 sek., og 400 m grindahl. hljóp Kristján í undanrásum á 57,2 sek. Halldór Guðbjörnsson keppti bæði í 800 og 1500 m hlaupi og hljóp í und- anrásum á 1:56,1 mín. og 4:03,4 mín. Erlendur Valdimarsson, keppti í kringlukasti, kastaði 43,50 m. Björk Ingimundardóttir, keppti í 100 og 200 m hlaupi og hljóp í und- anrásum á 13,1 sek. og 27,1 sek., sem er nýtt íslenzkt met. ►WWVWWVWWWVWWWWWWVWWWWWWWWWVWWWVWWWWWW* <> :: :: :: :: <► ii <► :: :: :: :: :: i* * 12. Landsmót UMFÍ Glæsilegasta íþróttarnót ársins 1965 var 12. Lands- mót UMFÍ, sem fram fór að Laugarvatni í byrjun júlí. Frjálsar íþróttir voru aðalgrein mótsins og keppnin og framkvæmd Landsmótsins til mikillar fyrirmyndar, eins og allt í sambandi við þetta mót. Að vísu voru afrek ekki í fremstu röð á íslenzkan mælikvarða nema í fáum greinum, en mótið sannaði, svo að ekki verður um villst, að slíkt er ekki ávallt nauðsynlegt, til þess að gera þau skemmtileg. íþróttablaðið hefur ekki skýrt frá úrslitum mótsins, enda hefur það verið gert rækilega, bæði í dagblöðum og Skinfaxa, tímariti UMFÍ. Iþrótta- blaðið leyfir sér í þessu blaði, að óska UMFÍ til ham- * ingju með 12. Landsmót UMFl og vonar, að fleiri slík eigi eftir að sjá dagsins Ijós, íþróttamennt landsins til heilla og eflingar. vvvwvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvwwvvvvvvvvvvwvvvvvvwwvvvvvvvvw Halldóra Helgadóttir keppti í 200 og 400 m hlaupi og hljóp í undanrás- um á 28,0 sek. og 64,6 sek. Lokaúrslit mótsins í karlagreinum urðu þessi: Finnland Svíþjóð Noregur Island Danmörk 184.5 stig 156.5 stig 110,0 stig. 11,0 stig 9,0 stig Næsta Norðurlandameistaramót fer fram í Osló 1967. Stjórn FRl telur, að nauðsynlegt sé að vinna fyrst og fremst að eftir- Valbjörn Þorláksson, KR, Norðurlandameistari í tugþraut. 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.