Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1966, Blaðsíða 39

Íþróttablaðið - 01.02.1966, Blaðsíða 39
Keppendur á móti Skotfélags Reykjavíkur. íþróttir sprottin upp úr þeirri við- leitni karlmanna að verða liðtækir hermenn eða hraustir veiðigarpar, og hemaðarþjóðir hafa lagt áherzlu á að þjálfa menn í skotfimi í sam- bandi við heræfingar. Flestir her- fræðingar líta nú samt á venjuleg- an herriffil sem jafn frumstætt og úrelt tæki í nútímahernaði og kylfa steinaldarmannsins eða riddarasverð frá miðöldum. Skotfimi hefur hinsvegar verið frá upphafi talin til íþróttagreina og er keppnisgrein á Olympíuleikun- um. Þar hafa löngum verið fremstar í flokki friðsamar menningarþjóðir eins og frændur okkar frá hinum Norðurlöndunum. Jafn fjarri sanni var sá misskiln- ingur að Skotfélagið hafi frekar en erlendir skotklúbbar, sem starfa á sama grundvelli, veiðiskap á stofn- skrá sinni. 1 félaginu er auðvitað fjöldi manna sem hafa gaman af veiðiskap með byssu og telja sig ekki menn að verri, og sú þekking, sem félagsstarfsemin hefur veitt mönnum í meðferð skotvopna, kem- ur auðvitað þar að góðu gagni. Fé- lagið hefur auk þess veitt ótal mörg- um leiðbeiningar um rétt val skot- vopna og þess háttar svo að veiðar yrðu stundaðar á sem mannúðleg- astan hátt, t.d. í vali skotvopna við hreindýraveiðar. Þó hefur sú sorg- lega reynsla orðið, að lög og reglu- gerðir um skotvopn og veiðiskap hafa verið sett án þess að þar væru til kvaddir fróðir menn til umsagnar. Á hinn bóginn er jafnvíst að fé- lagið hefur stuðlað að því beint og óbeint að vernda fugla með þvl að veita fjölda skotmanna, einkum hin- um yngri, tækifæri á því að spreyta sig á því i stað fugla og dýraveiða að gera göt á pappaspjöld með byssukúlum, m.ö.o. að skjóta til marks og auka og sýna hæfni sína við það, en þetta er fyrsta og síðasta takmark Skotfélags Reykjavíkur. Félagið fékk við upphaf starfsemi sinnar svæði til umráða við útiæf- ingar í landi Grafarholts þar sem heitir í Leirdal. Þar hefur verið reist skýli, komið upp skotmörkum og verið byggður fyrsti Skeet-skotvöll- ur hér á landi. Skeet er íþrótt sem enn vantar íslenzkt nafn á en miðar að því að kenna skyttum að skjóta hraðfleygar leirdúfur eða kringlur á lofti með haglabyssum við sem fjöl- breytilegastar aðstæður. En þar sem enn er allt óvíst um framtíð þessa landrýmis hefur félagið ekki viljað leggja þar í meiri kostnað, þótt stað- urinn sé á allan hátt hinn ákjósan- legasti og vandfundinn annar jafn- góður. Félagið hefur jafnan haft innan- húsæfingar á miðvikudagskvöldum í íþróttahúsinu að Hálogalandi, en sér nú fram á húsnæðisleysi er það verð- 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.