Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1966, Page 45

Íþróttablaðið - 01.02.1966, Page 45
en allt gengið Rússunum I hag. Byrj- unin var sú, að Birgi Björnssyni var vlsað af leikvelli í 2 mínútur, þegar klukkan sýndi, að 11 mínútur voru eftir. Fimm á móti sex rússneskum útispilurum, tókst ísl. leikmönnunum illa upp. Hvað eftir annað glopruðu þeir knettinum í hendur rússnesku ieikmannanna og vissu tæplega sitt rjúkandi ráð. Svo einkennilega vildi til, að Gunnlaugur Hjálmarsson, bezti maður ísl. liðsins, var fyrir ut- an, þegar ósköpin dundu yfir, en ný- liðarnir inn á. Má segja, að klaufa- leg skipting leikmanna hafi orðið dýrkeypt. Þegar 7 mínútur voru eft- ir, höfðu Rússar jafnað, 14:14, og náð undirtökunum. Þeir bættu svo tveimur mörkum við og unnu 16:14. Af einstökum leikmönnum stóð Gunnlaugur Hjálmarsson sig bezt í báðum leikjunum. Karl Jóhannsson sýndi góðan leik í fyrri leiknum og Hörður Kristinsson í þeim síðari. Mörk Islands skoruðu: F Gunnlaugur 5 Karl Jóh. 4 Hörður 2 Ingólfur Birgir 2 Ragnar 1 Ágúst 1 Stefán 1 Guðjón 1 S 4 1 4 4 0 1 0 0 0 Sænskur dómari, Hans Carlsson, dæmdi báða leikina. Tókst honum vel upp fyrri daginn og hafði þá góð tök, en síðari leikinn dæmdi hann ekki af eins mikilli festu. Þjálfari landsliðsins var Karl Benediktsson. Þátttaka ísl. kvennalandsliðsins í heimsmeistarakeppninni. Eftir hina ágætu frammistöðu ísl. kvennalandsliðsins í Norðurlanda- mótinu 1964, þar sem ísl. stúlkumar hlutu sigur, var ákveðið að taka þátt í heimsmeistarakeppninni inn- anhúss. Isl. stúlkurnar þurftu að leika 1 undanrás gegn Dönum, og voru báð- ir leikimir leiknir í Danmörku I ná- grenni Kaupmannahafnar, um mán- aðamótin október—nóvember, eða nokkm fyrr en íþróttahöllin í Laug- ardal var tilbúin til notkimar. Frammistaða ísl. stúlknanna var verri en búizt hafði verið við fyrir- fram, en þær töpuðu báðum leikjun- um með nokkmm mun, 9:16 og 6:15. Með því var útilokað, að þær kæm- ust í lokakeppni HM, sem háð var nokkm síðar í V.-Þýzkalandi, en Ungverjar urðu heimsmeistarar. Islenzka liðið var skipað eftirtöld- um stúlkum: Rut Guðmundsdóttir, Ármanni Margrét Hjálmarsdóttir, Fram Sigríður Sigurðardóttir, Val Sigrún Guðmundsdóttir, Val Islandsmeistarar Vals í kvennaflokki 1965. 45

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.