Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1966, Page 46

Íþróttablaðið - 01.02.1966, Page 46
Vigdís Pálsdóttir, Val Sigrún Ingólfsdóttir, Val Edda Jónasdóttir, Fram Elín Guðmundsdóttir, Víking Sigríður Kjartansdóttir, Ármanni Sylvía Hallsteinsdóttir, FH Jónína Jónsdóttir, FH Sigurlína Björgvinsdóttir, FH Ása Jörgensdóttir, Ármanni Svana Jörgensdóttir, Ármanni Jóna Þorláksdóttir, Ármanni. Þjálfari kvennalandsliðsins var Pétur Bjarnason. Heimsóknir erlendra liða. Á árinu 1965 komu fjögur erlend handknattleikslið (félagslið) .til Is- lands. 1 apríl kom á vegum KR danska 1. deildar liðið Gullfoss og lék hér fjóra leiki. Þá komu í júlí á vegum Hauka í Hafnarfirði Færey- ingar frá félaginu Kyndli. Þá er að geta um komu tékkneska liðsins Karviná til Fram í desember. Og loks komu norsku kvennameistar- arnir, Skogn, til Vals vegna Evrópu- bikarleikja. Heimsókn GuIIfoss. Danskt 1. deildar lið með íslenzku nafni, Gullfoss, heimsótti KR um miðjan apríl-mánuð og lék fjóra leiki. Danirnir töpuðu 2 leikjum, gegn FH og landsliði, og gerðu tvö jafn- tefli, gegn gestgjöfum sínum, KR, og Fram. Annars urðu úrslit leikja þessi: KR—Gullfoss 31:31 Fram—Gullf oss 18:18 FH—Gullfoss 31:16 HSl-úrv.—Gullfoss 20:19 Tveir fyrstu leikirnir (KR, Fram) fóru fram að Hálogalandi, en leikir FH og landsliðsins fóru fram í íþróttahúsinu á Keflavíkurflugvelli. Danirnir voru mjög ánægðir með móttökur hér, og voru hrifnir af ís- lenzkum handknattleik. Lét fyrirliði danska liðsins, Jörgen Skipper Niel- sen, sem áður fyrr var kunnur lands- liðsmaður Dana, svo ummælt, að það væri lærdómsríkt fyrir danska hand- knattleiksmenn að heimsækja Is- land. Heimsókn Kyndils. Færeyska liðið Kyndill kom í heim- sókn til Hafnarfjarðarliðsins Hauka í júlí. Alls lék hið færeyska lið 8 leiki hér, vann 4 og tapaði 4. Allir leikirnir fóru fram utanhúss. Úrslit urðu eins og hér segir: Haukar—Kyndill 21:19 FH—Kyndill 31:14 IBH—Kyndill 19:28 FH:Kyndill 9:6 Haukar—Kyndill 5:7 IBK—Kyndill 6:9 lBA:Kyndill 16:17 lBA:Kyndill 21:20 Heimsókn Karviná. I byrjun desember-mánaðar fékk Fram heimsókn tékkneska liðsins Karviná, sem er eitt af þekktari og betri handknattleiksliðum Tékkó- slóvakíu. Heimsókn Tékkanna tengd- ist opnun nýju íþróttahallarinnar í Laugardal, en þeir léku fjóra leiki I höllinni, en fyrsta leikinn að Há- logalandi, sem var gegn KR og unnu Tékkar þann leik með 28:25. Annar leikur Karviná var gegn Reykjavíkurúrvali. Sá leikur var skemmtilegur og spennandi og lauk með sigri Reykjavíkurúrvalsins, 23: 20. — Þriðji leikur Tékkanna var gegn Islandsmeisturum FH. Lauk þeim leik með jafntefli, 19 mörk gegn 19. — 1 fjórða leik mættu Tékkarnir tilraunalandsliði. Lands- liðinu tókst mjög vel upp og sigraði með sex marka mun, 18:12. — Loks í síðasta leiknum í íþróttahúsinu unnu Tékkarnir leik, en það var gegn gestgjöfum sínum, Fram, sem styrkti lið sitt með Ingólfi Óskars- syni, fyrrum Fram-leikmanni, en hann hefur undanfarið verið búsett- ur í Svíþjóð. Þennan síðasta leik unnu Tékkarnir 26:24 eftir spenn- andi viðureign. Hurfu Tékkarnir því af landi brott með tvo sigra, eitt jafntefli og tvö töp. Þátttaka kvennaliðs Vals í Evrópubikarkeppni, og koma norsku meistaranna Skogn. Lið Islandsmeistara Vals í kvenna- flokki sendi þátttökutilkynningu í Evrópubikarkeppni kvenna, og varð með því fyrsta ísl. kvennaliðið til að taka þátt í slíkri keppni, en áður hafði Fram tvívegis tekið þátt í keppni karlaliða. Valsstúlkurnar drógust á móti norsku meisturunum Skogn í fyrstu umferð og samdist svo milli Vals og Skogn, að báðir leikir liðanna færu fram í Reykjavík. Það er skemmst frá því að segja, að Valsstúlkurnar stóðu sig prýðis- vel í þessari fyrstu Evrópubikarraun sinni og sigruðu norsku stúlkurnar í báðum leikjunum, sem fram fóru sunnudaginn 19. desember og mánu- daginn 20. desember. Fyrri leikinn unnu Valsstúlkurnar 11:9 og þann síðari 12:11, og slógu þar með norsku stúlkurnar út. Með þessum úrslitum var Valur komið í 8-liða keppni og mætti a-þýzku meisturunum frá SC Leipzig í næstu umferð. Þess má geta, að Sigrún Guð- mundsdóttir stóð sig langbezt í Vals- liðinu í báðum leikjunum og skoraði flest markanna fyrir Val. Þátttaka í Norðurlandamóti unglinga. Það er orðin föst venja að taka þátt í Norðurlandamóti unglinga, og þannig sendi Island nú lið til þátt- töku í Norðurlandamótinu, sem háð var í Nyköbing í Danmörku í apríl. Árangur ísl. piltanna varð svipaður og í fyrri mótum, en þeir höfnuðu í fjórða sæti, á undan Finnum, sem ráku lestina. Úrslit í leikjum ísl. liðs- ins urðu eins og hér segir: Svíþjóð—ísland 20:11 N or egur—Island 11:9 Danmörk—Island 14:11 Finnland—Island 14:20 Eini sigur Islands var gegn Finn- um I fyrsta leiknum, 20:14, en hinir leikirnir töpuðust. Úrslitin gegn Dönum og Norðmönnum voru viðun- anleg, en tapið fyrir Svíum var of stórt. Það er ekki mikill munur á ísl. unglingum og unglingum hinna Norðurlandanna, það vantar herzlu- muninn. Og kannski verður þetta litla bil brúað með tilkomu íþrótta- hallarinnar í Laugardal, en áberandi var í öllum leikjunum, hve ísl. liðið lék þröngt, rétt eins og það væri að leika í Hálogalandssalnum. Islenzka unglingalandsliðið 1965 var þannig skipað: 46

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.