Íþróttablaðið - 01.02.1966, Page 50
með þátttöku erlendra gesta. Hið
fyrra var sundmót Ármanns og KR,
haldið dagana 23. og 24. febr. Er-
lendir gestir á þessu móti voru Sví-
arnir Eva Fehrm, Thomas Johnson,
bringusundsmaður og Cleas Göran
Anderson sem er skriðsunds og flug-
sundsmaður. Sigraði Anderson í
þremur greinum en varð 3. í 200 m
fjórsundi á eftir Guðmundi og Davíð.
Johnson sigraði þá Árna Kristjáns-
son og Fylki Ágústsson auðveldlega í
200 m bringusundi, en þeir Hörður
Finnsson og Guðmundur Gíslason
veittu honum meiri keppni í 100 m
bringusundi, en Johnson sigraði þó
greinilega.
Davíð Valgarðson varð því eini
Islendlngurinn sem sigraði Johnson
á þessu móti, en það var í 100 m
baksundi. Eva Fehrm keppti í 5
greinum á mótinu og hlaut ávallt 3ja
Guðmundur Gíslason.
sæti. Hrafnhildur Guðmundsdóttir
IH, Matthildur Guðmundsdóttir Á
eða Hrafnhildur Kristjánsdóttir Á
skipuðu alltaf 1. og 2. sæti.
Síðara sundmótið með þátttöku er-
lendra gesta var sundmót UMFK og
Ægis 27. og 29. apríl. Gestir á því
móti voru Danirnir Kirsten Strange,
bezta sundkona Dana og hefur hún
komið hingað til lands oft áður.
Lars Kraus Jensen sem er bezti
sundmaður Dana og sá þriðji var
René Heitmann, en sá er beztur
Dana í nútíma fimmtarþraut, en er
auk þess liðtækur I bringusundi.
Lars Kraus Jensen sigraði í tveimur
greinum en varð tvivegis annar á
eftir Guðmundi Gíslasyni. René Heit-
mann sigraði auðveldlega í 200 m
bringusundi en Hörður Finnsson og
Árni Kristjánsson sigruðu hann í 100
m bringusundi. Kirsten Strange
sigraði með miklum yfirburðum í öll-
um sinum greinum 5 talsins. Vakti
það mikla ánægju meðal Dana hve
auðveldlega Kirsten Strange sigraði
Hrafnhildi Guðmundsdóttur, en þær
hafa oft háð harða og tvísýna bar-
áttu sín á milli. Verður gaman að
Karlar:
Sérstaka athygli á þessu móti
vakti Hrafnhildur Kristjánsdóttir Á
en lengi vel leit þannig út að hún
ætlaði að sigra nöfnu sína Guð-
mundsdóttur í 100 m skriðsundi
einnig vöktu athygli þeir félagarnir
frá Isafirði Fylkir Ágústsson sem
sigraði í 100 m bringusundi á öðrum
bezta tíma Islendings 1 greininni, og
hinn þrettán ára gamli Einar Ein-
arsson sem setti alls 9 sveinamet á
þessari viku sem hann dvaldi hér
syðra í þetta sinn.
fylgjast með þeim í landskeppninni
n. k. sumar.
Sundmeistaramót Isalnds 1965 var
haldið í Sundlaug Vesturbæjar dag-
ana 12 og 13. júní. Er þetta í fyrsta
sinn sem mótið er haldið í Sundlaug
Vesturbæjar og verður mótið að öll-
um líkindum ekki haldið í gömlu
höllinni oftar. Mótið fór fram með
nokkuð breyttu sniði nú en helzta
breytingin var sú að allar unglinga-
greinar sem hafa verið hafðar með
til uppfyllingar voru nú felldar nið-
ur.
Islandsmeistarar í einstökum
greinum urðu þessir:
Á þingi SSl, sem haldið var t
Breiðfirðingabúð í sambandi við
mótið var samþykkt breytt tilhögun
Islandsmótsins. Var einkum fjölgað
kvennagreinum, en hlutur kven-
fólksins hefur verið of smár hingað
til. Dagskrá mótsins er nú þessi:
1. dagur:
1500 m skriðsund karla
800 — skriðsund kvennax
400 — bringusund karlax
100 m skriðsund Guðmundur Gíslason, iR 57,4 sek.
400 — — Davíð Valgarðsson, tBK 4:41,5 min.
1500 — — Davíð Valgarðsson, IBK 19:16,5 —
100 — bringusund Fylkir Ágústsson, Vestra 1:13,8 —
200 — — Árni Kristjánsson, SH 2:42,6 —
Árni Kristjánsson, SH 5:55,5 —
400 — — (aukagrein)
100 — baksund Guðmundur Gíslason, iR 1:08,9 —
Davíð Valgarðsson, tBK 2:43,9 —
200 — — Davið Valgarðsson, ÍBK 1:02,7 —
100 — flugsund Isl. met
200 — fjórsund 4X100 m fjórsund Guðmundur Gíslason, iR 2:22,6 —
Sveit, SH 5:00,8 —
4X200 — skriðsund Sveit SH, 10:08,4 —
Konur:
100 m skriðsund Hrafnhildur Guðmundsdóttir, IR 1:07,9 —
800 m — Hrafnhildur Guðmundsd., IR 11:31,0 —
Isl. met (aukagr.)
100 — baksund Hrafnhildur Guðmundsd., IR Hrafnhildur Guðmundsd., ÍR 1:20,6 — 1:24,2 —
100 — bringusund
200 — — Hrafnhildur Guðmundsd., ÍR 3:03,1 —
200 — fjórsund Hrafnhildur Guðmundsd., ÍR 2:53,5 —
3X 50 m þrísund Sveit Ármanns 1:52,0 —
4X100 — skriðstund Sveit Ármanns 5:03,9 —
Isl. met (aukagrein)
50