Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1966, Blaðsíða 51

Íþróttablaðið - 01.02.1966, Blaðsíða 51
2. dagur: 100 m skriðsund karla 100 — bringusund karla 200 — bringusund kvenna 200 — flugsund karlax 400 — skriðsund kvennax 200 — baksund karla 100 — baksund kvenna 200 — fjórsund karla 4X100 m skriðsund kvennax 4X100 — fjórsund karla 3. dagur: 400 m skriðsund karla 100 — flugsund kvennax 200 — bringusund karla 100 — bringusund kvenna 100 — baksund karla 100 — skriðsund kvenna 100 — flugsund karla 200 — fjórsund kvenna 4X200 m skriðsund karla 4X100 — fjórsund kvennax. Nýjar greinar merktar með x. Meðal annara samþykkta þingsins var sú ef til vill merkust að ákveðið var að koma á aldursflokkakeppni í sundi, en eftir árangur hinnar vel- heppnuðu aldursflokkakeppni (age group) Bandaríkjamanna kom í ljós á Ólympíuleikunum í Róm og nú síðast I Tokyo, hefur hver þjóðin á fætur annarri tekið þá sér til fyrir- myndar. Nú hefur stjórn SSl sam- þykkt reglugerð, en eftir henni fer keppnin fram á tímabilinu 1. febr. til 31. ágúst ár hvert, keppt verður í þremur aldursflokkum, 15—16 ára, 13—14 ára og 12 ára og yngri. Reglu- gerðin birtist í heild í 9. tölublaði Iþróttablaðsins. Pramkvæmd keppn- innar hefur verið falin sérstakri nefnd, unglinganefnd SSl, en hana skipa Torfi Tómasson, Guðbrandur Guðjónsson og Siggeir Siggeirsson. Meistaramót Norðurlanda í sundi 1965. Sundsamband Islands sendi 6 manna hóp á Sundmeistaramót Norð- urlanda, sem haldið var I Pori í Finn- landi, dagana 14. og 15. ágúst. Er- lingur Pálsson formaður sundsam- bandsins var fararstjóri, en kepp- endur þeir Fylkir Ágústsson, Vestra, Davíð Valgarðsson, IBK, Árni Þ. Kristjánsson SH, og Guðmundur Gíslason ÍR. Siggeir Siggeirsson stjórnarmeðlimur SSl, fór sem þjálf- ari flokksins þar sem landsþjálfar- Davíð Valgarðsson, Keflavík. inn Torfi Tómasson gat ekki komið því við að fara. Flokkurinn fór utan nokkuð fyrir mótið til að stunda æfingar í 50 metra laug og einnig til að venjast kuldanum í laugunum í Finnlandi, en mismunur á hitastigi í laugum hér og erlendis er allt upp í 10 stig á Celeíus. Árangur íslenzku keppendanna var sæmilegur þó hvergi næðu þeir verðlaunasæti. TJr- slit af mótinu hafa áður birzt í blað- inu. TJnglingameistaramót lslands 1965 fór að þessu sinni fram á Sauðár- króki og fór vel á því vegna þess að driffjöðrin £ sundmálum staðarins Guðjón Ingimundarson er sá sem átti upphaflegu hugmyndina að unglinga- meistaramótinu. Mótið fór hið bezta fram. Mörg góð afrek voru unnin á mótinu, en Ármenningarnir unnu stigakeppni mótsins með nokkrum yfirburðum. Hlutu þeir 114 stig, en Selfoss 79 stig og Ægir hlaut 48 stig. Landskeppnin við Dani 1966. Svo sem kunnugt er þá háðu Danir og Islendingar landskeppni í sundi árið 1964 og sigruðu Danir með einu stigi 39 gegn 38 stigum Islendinga, en keppnin fór fram í Danmörku. I júlímánuði næstkomandi er gert ráð fyrir að smíði hinnar nýju laugar I Laugardal verði það langt komin að hægt verði að vígja laugina með þess ari landskeppni. Gert er ráð fyrir að vatni verði hleypt í laugina í byrjun maí og fái landsliðið þá laugina til umráða fyrir æfingar fram að keppni. Laugin verður síðan opnuð almenningi eftir vígslumótið. Sundknattleikur hefur átt erfitt uppdráttar hér á landi sem og víðar. Iþróttin krefst geysimikils þreks og mjög góðrar sundkunnáttu, en ef þetta tvennt er til staðar er leikur- inn allra íþrótta skemmtilegastur bæði fyrir leikmenn og áhorfendur. Á Islandi eru líklega ekki nema ef til vill 30 til 40 menn sem æfa íþrótt- ina og stundum taka ekki nema tvö lið þátt í mótum. Undanfarinn ald- arfjórðung hafa Ármenningar verið svo til einráðir í keppninni um meist- aratitlana, en helztu keppinautarnir nú eru KR sem á ungt lið og efnilegt, en áður fyrr voru það Ægiringar sem veittu Ármenningum harðasta keppni. Urslit í mótum vetrarins urðu þessi: Á Reykjavíkurmeistara- mótinu sigruðu Ármenningar KR- inga í úrslitum með 8 mörkum gegn 4. Á Sigurgeirsmótinu sem fram fór í marz sigruðu Ármenningar KR- inga í úrslitum með 7 mörkum gegn 1. Á Islandsmótinu sem fram fór 1 maí sigruðu Ármenningar KR-inga ennþá og nú með minni mun eða 5 gegn 3. Urslit á Haustmótinu urðu sem hér segir: KR—Ægir 9—1, Ár- mann—Ægir 9—-1, en í úrslitaleikn- um unnu svo Ármenningar KR-inga með 8—1. Nú I vor er ráðgert að smíði hinn- ar nýju laugar í Laugardal verði 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.