Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1966, Blaðsíða 61

Íþróttablaðið - 01.02.1966, Blaðsíða 61
Körjuknattleiksráðstefna F.I.BA., Varna, Búlgaríu. Magnús Björnsson, varaform. KKl, sótti hina árlegu ráðstefnu Evrópu- og Miðjarðarhafsdeildar FIBA, sem að þessu sinni var haldin í bænum Varna, á Svartahafsströnd Búlgaríu. Ráðstefnuna sóttu fulltrúar 32 þjóða af svæðinu og voru þar mörg mál rædd, m. a. er snerta okkur beinlínis. Noregur var nú samþykktur í FIBA og eru þá allar Evrópuþjóðir orðnar aðilar að alþjóðasambandinu og heildartala meðlima þess komin upp í 122 og er FIBA því fjölmenn- asta íþróttasamband í heimi I dag. Magnús veitti Finnum brautar- gengi við að fá að halda næsta Evrópumeistaramót árið 1967. Með góðri samstöðu Norðurlanda og nokkurra þjóða Vestur-Evrópu fékkst þetta samþykkt og verður EM haldið I Helsinki 1967. Polar Cup keppnin fékkst í fyrra samþykkt, sem undanrási í einum riðli EM. Þar sem Finnar sjá um keppnina 1967, þá ganga þeir beint inn i keppnina, án undankeppni. Tvö efstu lið P. C. hljóta rétt til þátt- töku I 16 liða úrslitakeppni. Þar sem Svíar unnu engan leik á EM í Rúss- landi s. 1. sumar, þá taldi þingið að P. C. væri of veikur riðill til að senda 2 lið auk Finna. Mun því annaðhvort Vestur-Þjóðverjar eða Pólverjar keppa við okkur, Svía, Norðmenn og Dani, um þessi tvö sæti. Þar sem ísland tapaði fyrir Svíþjóð með að- eins 6 stigum á síðasta Polar Cup, er ekki loku fyrir skotið, að Island geti hlotið annað sætið og komist á EM í Finnlandi. Ennfremur var á ráðstefnunni rað- að í riðla í undanrásum EM ung- lingalandsliða. Island lenti í riðli með Finnlandi, Svíþjóð, Póllandi og Vestur-Þýzkalandi. Keppnin fer fram I Finnlandi. Síðar barst okkur til- kynningum frá Finnum um að keppni þessi skuli fara fram 7.—11. apríl n. k. Þar sem þetta eru sömu dag- arnir og P. C. keppnin fer fram I Kaupmannahöfn, þá hefir stjórn KKl mótmælt þessu harðlega og krafist að keppnin fari fram um áramótin. Þrátt fyrir hörð mótmæli stjórnar KKl, fengust hvorki Finnar né Dan- ir til að breyta fyrirætlunum sínum um þessi mót. Varð KKl því að taka þá þungbæru ákvörðun að draga til baka þátttöku unglingaliðsins á úr- tökumótinu í Helsinki. Þrákelkni Dana, með að halda Polar Cup keppnina í Kaupmanna- höfn um páskana 1966, orsakar það að mótið hlýtur ekki viðurkenningu, sem undanrás í EM, þar sem keppn- in fer fram of snemma á árinu. Virð- ast forystumenn körfuknattleiks- mála hjá þessum tveim nágranna- þjóðum okkar hafa sýnt fremur litla fyrirhyggju í þessum málum. Verður nú að halda sérstakt úrtökumót fyr- ir sömu aðila, ef þeir ætla sér að sækjast eftir þátttöku í Evrópu- meistaramótinu. Evrópu Cup meistaraliða. Á árinu 1964 tóku Islandsmeistar- ar iR I fyrsta skipti þátt í Evrópu- bikarkeppni meistaraliða. Mættu þeir í fyrri umferð, meistaraliði Ir- lands og sigruðu iR-ingar glæsilega, bæði heima og heiman. Þannig urðu iR-ingar fyrstir ís- lenzkra liða til að komast í aðra umferð í Evrópubikarkeppni. önnur umferð fór fram í janúar á sama tíma og landsliðið, með Þorstein Hailgrímsson, var á keppnisferð í Bandaríkjunum. Fjarvera Þorsteins veikti iR-liðið að miklum mun og ekki hvað sízt, vegna þess að leik- menn IR voru alls óvanir að keppa án Þorsteins. iR-ingar töpuðu báðum leikjum sínum gegn hinum frönsku meistur- um A.S.V.E.L., fyrri leiknum hér heima, 74:42 og síðari leiknum I Frakklandi 84:19. Islandsmeistararnir 1965 — KR- ingar, tóku einnig þátt í Evrópubik- arkeppninni. Mættu þeir í fyrstu um- ferð, sænsku meisturunum Alviks Basketboli Club frá Stokkhólmi. KR-ingar töpuðu báðum leikjun- um, þeim fyrri hér heima og viku síðar í Stokkhólmi. Þátttaka þessara liða í Evrópubik- arkeppninni var skemmtileg tilbreyt- ing I hinu fátæklega íþróttalífi okk- ar í skammdeginu og væri æskilegt að þátttaka í Evrópubikarkeppni verði fastur liður í verkefnaskrá Is- landsmeistara okkar í framtíðinni. Skýrsla útbreiðslunefndar. 1 útbreiðslunefnd K.K.l. störfuðu þeir Þorkell Steinar Ellertsson og Einar Ólafsson, auk formanns nefnd- arinnar Helga Ágústssonar. 1. Bikarkeppni: Megin verkefni nefndarinnar varð skipulagning og undirbúningur bik- arkeppninnar. Nefndin varð sammála um, að bezti tilgangur keppninnar væri aukin þátttaka utanbæjarliða, en körfuknattleikur hefur átt sívaxandi vinsældum að fagna út á landsbyggð- inni, en liðum þar einungis veitzt staðbundin keppnisreynsla. Bezta fyrirkomulag keppninnar var talin vera svæðakeppni og kæmu þau lið, er sigruðu innan síns svæðis til úrslitakeppni, en í því augnamiði, að fækka löngum og erfiðum ferða- Iögum keppenda, var ákveðið, að stjórn K.K.l. hefði heimild til að láta fara fram keppni milli svæðanna, áður en komið væri til lokakeppn- innar. Það var einróma álit nefndarinn- ar, að með tilliti til þeirra utanbæj- arliða sem í úrslitakeppni kæmust, bæri að útiloka I. deildarliðin frá keppninni, a.m.k. til að byrja með. Víst mætti telja, að það utanbæjar- lið sem lenti í úrslitaleik við sterkt I. deildarlið veigraði sér við frekari þátttöku og drægi kjark úr öðrum. Svæðaskiptingin var bezt talin miðast við bandalög og sambönd, en beint tekið fram í reglugerðinni, að ætlast væri til, að einstök félög inn- an þeirra vébanda sendu lið sín, en ekki sameiginlega í þeim tilgangi, að fá sem flesta til þátttöku. Tala svæðanna þótti heppilegust verða ákveðin 8. Ljóst má vera, að ýmsir vankant- ar kunna að vera á reglugerðinni og sumt kunni betur á annan veg að fara. Slíkt mun reynslan leiða I ljós og æskilegt er, að keppnisaðilar komi athugasemdum sínum og tillögum á framfæri. 2. Tceknimerki: Mjög mikill áhugi á knattþrautum ríkti á landsbyggðinni á liðnu stafs- ári og gefur það glögga hugmynd um áhuga unglinga fyrir körfuknatt- leik og gefur glæstar vonir um körfuknattleiksmenn framtíðarinn- ar. 61
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.