Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.08.1995, Blaðsíða 7

Íþróttablaðið - 01.08.1995, Blaðsíða 7
„Miðað við frammistöðu kepp- endanna í sumar er dálítið erfitt að spá í spilin. PÉTUR GUÐMUNDS- SON hefur ekkert kastað í sumar sök- um meiðsla og því er spurning i hvernig ástandi hann verður á HM. Þótt hann verði búinn að ná sér af meiðslunum er vitanlega óvíst hvort tæknin verður í lagi. Á góðum degi hefur Pétur alla burði til að komast í úrslit og jafnvel á verðlaunapall. Hann er mjög sterkur um þessar mundir, frískur eftir veturinn og kannski hefur hvíldin gert honum gott. SIGURÐUR EINARSSON hefur verið mjög þungur í sumar, líklega vegna þess að hann hefur ekki byrjað nógu snemma á snerpuæfingunum. Hann er mikill keppnismaðuroggæti hæglega komist í úrslit en það kæmi mér þó á óvart. Hann þarf líklega að kasta um 80 metra til að komast í úrslit en þó hefur 12. maður á mörg- um stórmótum komist í úrslit á 78 metrum. Árangurinn í spjótkasti fer dálítið eftir vallaraðstæðum en þær eru góðar í Gautaborg, völlurinn er opinn, og því ættu margir að geta kastað yfir 80 metra. VÉSTEINN HAFSTEINSSON hefur verið nokkuð jafn í sumar og ég trúi því staðfastlega að hann komist í úr- slit og líklega í átta manna úrslit. Til þess að það gangi upp þarf hánn að hækka meðaltalið um einn og hálfan metra. Vésteinn þarf líklega að kasta yfir 62 metra til að tryggja sig í átta manna úrslit. Hann hafnaði í 7. sæti á móti í Moskvu á dögunum þar sem allir bestu kastarar heims voru meðal keppenda og það eru fyrirheit um góðan árangur á HM. GUÐRÚN ARNARDÓTTIR á mik- ið inni í 400 metra grindahlaupi og verði hún heppin með riðil á hún góða möguleika á að komast áfram. Ég hef mikla trú á að hún setji ís- landsmet á mótinu. Nái Guðrún að einbeita sér að 400 m grindahlaupi á hún eftir að ná verulega langt á al- þjóða mælikvarða því hún hvað tækni viðkemurá hún svo mikið inni. MARTHA ERNSTDÓTTIR gæti átt erfitt með að finna keppanda í 10 km hlaupi til að hlaupa með, eins og sagt er. Ef hún finnur einhvern^ til að hanga í á hún að geta bætt íslands- metið. Þó hefur mér heyrst að alvara hennar í íþróttinni sé orðin of mikil á kostnað gleðinnar. Fyrir Evrópu- Jón Arnar Magnússon, Ólafur Guðmundsson, Friðgeir Halldórsson og Theó- dór Karlsson kepptu fyrir íslands hönd í Evrópubikarkeppninni í fjölþraut og fóru með sigur af hólmi. meistaramótið í fyrra átti hún við veikindi að stríða en samt talaði hún um að það mætti ekki brjóta upp æf- ingaprógramið sem var búið að gera. Það kann ekki góðri lukku að stýra þegar maður heldur því fram að það verði að klára það sem stendur á ein- hverju blaði þóttheilsan segi kannski til um annað. Fólk verður að hlusta á líkamann og treysta honum. Af við- tölum, sem voru tekin við hana eftir víðavangshlaupin í vetur, að dæma fannst méralvaran veraorðin of mikil en kannski er hún tilkomin vegna þess að hún er farin að finna smjör- þefinn af því að ná verulega góðum árangri. Ég hef alltaf haldið því fram að Martha ætti að snúa sér að mara- þonhlaupi en kannski þarf hún að hlaupa 10 km aðeins betur áður en hún lætur verða að því. Hún getur komist í allra fremstu röð í maraþon- hlaupi — allt að áttunda sæti á stór- mótunum en það væri frábær áran- gur í svo erfiðri grein. Ég tel að JÓN ARNAR MAGNÚS- SON hafni aldrei neðar en í 10. sæti og hitti hann á toppþraut getur hann komist á verðlaunapall. Hann er að vinna í þeim greinum þar sem at- rennu er þörf, eins og langstökki, há- stökki, spjótkasti og stangarstökki, og verði hann búinn að slípa þær til fyrir HM er ég mjög bjartsýnn fyrir hans hönd. Hann er orðinn það sjálfs- öruggur að 3.-6. sætið er í sjónmáli, aðmínu mati.Jón Arnarámjögmikið inni í hverri einustu grein en það hef- ur hann fram yfir þá sem hafa verið að ná betri árangri en hann í heimin- um. Mér vitanlega er ekkert tugþraut- arefni eins ogjón Arnar annars staðar í heiminum. Þegar hann verður búinn að slípa tæknina f öllum grein- unum verða honum allir vegir færir. EINAR VILHJÁLMSSON gæti komist á HM en ég held að hann jaurfi eitt ár í viðbót til að ná sér og hann verðurvel klárfyrirÓlympíuleikana í Atlanta. Hann er á góðri leið, laus við þrálát meiðsli og hefur verið að bæta sig á hverju einasta móti. Einar, ásamt Pétri, Sigurði og Vésteini, er hugsanlega á síðasta snúningi og því má ætla að Ólympíuleikarnir í At- lanta séu það stórmót sem þeir ætla að stefna að. Ólympíunefndin, með Júlíus Hafstein íbroddi fylkingar, hef- ur verið að bæta sig verulega hvað varðar jákvæða hugsun gagnvart íþróttamönnunum og skilning á því hvað þarf til að komast í fremstu röð og ég hef trú á því að hún muni gera þessum mönnum kleift að helga sig íþrótt sinni fram að Ólympíuleikun- um. Ég trúi því að þeim verði gefinn kostur á að dvelja í æfingabúðum næsta vetur ásamt þjálfurum sínum og ekkert verði til sparað til að þeir geti náð sínu besta á næsta ári. Ég finn mjög jákvæða strauma núna og er bjartsýnn á næsta ár hvað þetta varðar." 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.