Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.08.1995, Blaðsíða 11

Íþróttablaðið - 01.08.1995, Blaðsíða 11
INGI BJÖRN Ingi Björn Albertsson, „Leikmaður íslandsmótsins" 1976 tekur við ís- landsbikarnum úr hendi Ellerts B. Schram formanns KSÍ. — Ertu gamaldags þjálfari, lngi Björn? „Þessari spurningu er hvorki hægt að svara játandi né neitandi, þar sem þjálfun skiptist í ýmsa þætti. Hvað varðar þjálfun á undirbúningstímabil- inu er hugsanlegt að nota orðið gamal- dags um mig þar sem ég notast ekki við hinar ýmsu mælingar og próf sem nú eru svo mjög í tísku. Þær aðferðir eru hins vegar umdeilanlegar og alls ekki notaðar alls staðar. Ég hef ekki orðið var við það, nema síður sé, að þau lið, sem ég hef þjálfað, væru í verra formi en þau lið sem notast við þessar svo- kölluðu nýtísku aðferðir. Ef þær eru hinar einu réttu er verið að halda fram að knattspyrnumenn hafi ekki verið í fínu formi síðustu áratugina og undir það get ég ekki tekið. Ég tel mig hins vegarveraframariega ítaktískum, leik- rænum æfingum og einnig hvað varð- ar undirbúning fyrir leiki og leikskipu- lag. Því má segja að svarið sé nei." — Er rétt að þú sækir ekki þjálfara- námskeið eins og flestallir þjálfarar gera? „Það er ekki alls kostar rétt. Ég hef sótt námskeið og auðvitað fylgist ég mjög vel með í knattspyrnuheiminum. En hinu má ekki gleyma að námskeið eru ekki endilega svar við öllu því reynsla og tjáskipti við rétta aðila eru ekki síður nauðsynleg. Ég dreg mjög í efa að þjálfarar þekktari klúbba í Evrópu stundi mikið námskeið, nema þá helst til að halda fyrirlestra. Með þessu er ég ekki að gera lítið úr þátt- töku á námskeiðum, aðeins benda á að þau eru ekki svarið við öllu." — Hvað felst í nútímaþjálfun? „Knattspyrnan er í eðli sínu einföld íþrótt en hana má hins vegar gera flókna með allskyns pælingum og vís- indum. Það eru ýmsar leiðirtil að skila liði í góðu formi inni í mót og ekki skiptir höfuðmáli hvort menn fari eftir nýjustu fræðum, heldur hitt að skila liðinu tilbúnu í slaginn. Nútíma þjálf- un snýst því meira um það hverslags leikskipulag menn notast við og út- færslu á því, hvernig menn lesa leikinn og andstæðingana og hvernig liðið fer stemmt inn á völlinn. í þessu er fólgin töluverð sálfræði." — Studdist þú við mjólkursýru- mælingar? „Ég hef prófað þær en studdist ekki við þær í ár. Þessar mælingar eru um- deilanlegar en geta þó varla verið skaðlegar nema þá helst ef þjálfari tek- ur þær alltof hátíðalegar. í mínum huga er verið að færa þjálfunina of mikið úr höndum þjálfara yfir íhendur vísindamanna. Sumum þjálfurum þykir þetta vafalaust gott þar sem þetta minnkar vinnu þeirra og dregur úr þeirra ábyrgð. Eins og þessi þróun birt- ist mér finnst mér hún slæm, best væri að menn færu milliveginn — það að nýta sér reynsluna jafnhliða nýjung- um." 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.