Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.08.1995, Blaðsíða 45

Íþróttablaðið - 01.08.1995, Blaðsíða 45
Anna var sjálf kringlukastari og það vill svo skemmtilega til að hún verður yfirdómari kringlukasts- keppninnará Heimsmeistaramótinu. „Gárungarnir segja að ég sé þegar búinn að semja um það fyrirfram hversu löng köstin komi til með að verða. Annars erum við með samn- ing okkar á milli. Hann er sá að ég sé að mestu um þrifnað og matseld þegar ég er heima. Anna vinnur frá sjö á morgnana til sjö á kvöldin þann- ig að ég verð að standa mig." Framtíðarplön kringlukastarans. „Ég ætla að kasta kringlu fram yfir Ólympíuleikana í Atlanta og jafnvel fjögur ár til viðbótar, fara á Ólympíu- leikana í Sydney árið 2000. Það væri gaman að afsanna að maður sé of gamall til að geta keppt um fertugt. Við stefnum á að flytja til íslands á næsta ári þar sem ég ætla að hefja nýtt líf sem fullorðinn maður og láta konuna læra íslensku!" SIGURÐUR SPJÓTKASTARI: „Ég er egóisti, kærulaus, metnað- arfu 11 u r og þekktu r fyri r að vera ekki á réttum tíma." Þetta er lýsing Sigurðar Einarssonar spjótkastara á sjálfum sér. Hann hefur verið búsettur í Tuscaloosa í Alabama í meira en ára- tug, fyrst við æfingar og nám en síðan sem fjölskyldumaður og atvinnu- maður í íþróttinni." Eiginkona Sigurðar heitir Debbie en hún er innanhússarkitekt að mennt. „Við kynntumst haustið 1985 og giftum okkur vorið '86. Það var ekki eftir neinu að bíða. Dæturnar heita Anna Viktoría og Alexandra Maren. „Þóttég hafi rifið upp ræturn- ar fyrir 13 árum hef ég ekki náð að festa þær hér. íslenskar fjallajurtir er hægt að flytja til annarra landa og rækta þar en þær þrífast samt hvergi eins vel og á íslandi!" Sigurður segir að íþróttamenn verði aðvera egóistartil að nágóðum árangri. „Ég er kannski ekki heimsins mesti egóisti en maður setur sig í visst sálarástand, byggir skei í kringum sig og verður að hafa 100% trú á því að það, sem maður er að gera, sé rétt. Það væri hægt að skrifa heila bók um það sem íþróttirnar hafa gert fyrir mig. Þaðmikilvægastaerað þærhafa hjálpað mér að halda stefnu í lífinu, Það er ekki bara Burt Reynolds sem kann að stilla sér upp! Stokkið til sigur! Vonandi kemur brostaktíkin að góð- um notum í Svíþjóð. Hvað með Sig- urð? sem er nauðsynlegt — ekki bara vaka, vinna, sofa og djamma." Sigurður hyggst taka sér þriggja vikna frí að HM loknu, áður en hann hefur undirbúning fyrir Ólympíuleik- ana. „Það er kominn viss leiði í mig sem ég þarf að sigrast á. Við Einar Vilhjálmsson spjótkastari erum að setjaástofn fyrirtæki sem viðstefnum á að geta unnið við eftir Atlanta 1996. Okkur langar að gera góða hluti á íslandi og teljum að við getum miðl- að af þeirri reynslu sem við höfum öðlast í gegnum tíðina. Við erum með alþjóðleg áform í gangi sem við hyggjust framkvæma, hvort sem ég flyt til Islands eða ekki. Heimurinnerstórog maður verður að gera áætlanir stig af stigi." PÉTUR KÚLUVARPARI: „Hefði ég ekki slitið hægri rassvöðv- ann og orðið að hætta námi í Alabama sökum þessárið1983 hefði égsennilega ekki hitt eiginkonu mína," segir Pétur Guðmundsson, fjögurra barna faðir og kúluvarpari. „Fjölskylulífið kemur í veg fyrir að maður verði geðsjúklingur af íþróttaiðkun. Ég ætlaði mér að verða knattspyrnuhetja en kynntist kúluvarpi þegar ég flutti ísveitlOáragamall. Þegar ég byrjaði f kúluvarpi var Hreinn Hall- dórsson uppásittbestaen mérdattekki í hug að ég ætti eftir að verða svipaður karakter og hann og kasta lengra — sem ég hef gert." Síðastliðið haust flutti Pétur með fjöl- skylduna til Bandaríkjanna. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég hef haft tækifæri til að vera erlendis og æfa við fullkomnar aðstæður, bæði hvað varða æfingar og ekki síst hitastig! Ég hef alltaf unnið fulla vinnu með æfingunum, ýmist sem trésmiður eða lögreglumaður. Það er að vissu leyti erfitt að vera ekki að vinna og aðlaga sig að því að gera kúluvarp að atvinnugrein. Það hlýtur þó að skila sér í betri árangri." Hvernig skyldu börnin spjara sig úti. „Þau hafa spjarað sig vel og ég er stoltur af þeim. Karen og Pálmi, sem eru á skólaaldri fengu bæði góðar einkunnir í vetur. Ég er þessi óvenjulegi pabbi, mik- ið heima við og hef því góðan tíma fyrir börnin. Búsetan hér hef líka gefið kon- unni, Lisbeth Pálmadóttur, tækifæri til að láta langþráðan draum rætast en hún hóf BA nám í uppeldis- og kennslufræð- um síðastliðið haust. Okkur gengur vel að samræma nám hennar við fjölskyldu- líf og æfingar, sennilega vegna þess að Lisbeth er svo dugleg." Árið 1994 var besta ár Péturs á alþjóð- legum vettvangi og í lok ársins var hann valinn, af Track and Field News (virtu bandarísku frjálsíþróttatímariti), í hóp 10 bestu kúluvarpara heims. „Ég var stoltur af því að komast á listann. Á meðan fjárhagslegi þátturinn gengur upp getég haldið þessu áfram.Og það er frábært að finna fyrir góðum stuðningi af hálfu Ól- ympíunefndar íslands og Frjálsíþrótta- sambandsins. Ég væri ekki hérna nema fyrir þeirra tilstuðlan." 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.