Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.08.1995, Page 58

Íþróttablaðið - 01.08.1995, Page 58
RODMAN RAUÐHAUS! Körfuboltastjarnan DENNIS RODMAN segist ekki vera íþróttamaður heldur skemmtikraftur. Honum halda engin bönd! Rodman hefur sett sínar eigin regl- ur og lifir lífinu án skipulags en lætur stjórnast því hvernig honum líður hverju sinni. Honum þykir best að undirbúa sig fyrir leiki með því að hlusta á eftirlætisgrúbbuna sína, Pearl Jam, og þá nemur styrkurinn yfirleitt um 7000 desibelum. Það, sem fer um huga hans á þeim stund- um, er t.d. pælingar um góða staði þar sem hægt sé að fremja sjálfs- morð, gott pyntingarherbergi, hann uppi í rúmi með mörgum konum samtímis. Svona er Rodman sem er jafnvel dekkri og klikkaðri en ímynd- anir hans. Það eru vissar ástæður fyrir því af hverju Rodman er besti „sókn- arfrákastari" í sögu NBA Körfuboltasnillingurinn og vill- ingurinn DENNIS RODMAN er lit- skrúðugasti leikmaðurinn í NBA deildinni. Á því leikur ekki nokkur vafi. Hann fer sínar eigin leiðir, gef- ur boðum og bönnum langt nef, enda segist kappinn ekki lengur nenna að vera íþróttamaður. Hann vill djamma og djúsa og segist vera skemmtikraftur. í nýlegu viðtali við Sports lllus- trated sýnir Rodman á sér ýmsar hlið- arog var honum mikið í mun aðtekn- ar yrðu af honum nektarmyndir fyrir tímaritið. Hann vildi sömuleiðis láta mynda sig í kvenmannsfötum og vera málaður í andliti en hvorugt var sam- þykkt. Honum líkar vel að klæðast einkennilegum fatnaði, ef það er þá rétta orðið yfir það sem hylur nekt hans dagsdaglega. „Mér er nákvæmlega skítsama um körfubolta þessa stundina," segir Rodman sem er með fimmtán út- lenska fugla og tvo þýska fjárhunda í íbúðinni sinni. „Ég er þegar búinn að útiloka mig frá NBA deildinni, á viss- an hátt, og er ekki lengur íþróttamað- ur, heldur skemmtikraftur."

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.