Bókasafnið - mar 2020, Qupperneq 24
24 Bókasafnið
sem heimamenn eru oft fengnir til þátttöku en á árinu
2018 var tekin ákvörðun um að fá reglulega rithöfunda í
heimsókn eða aðra sem kynna bókmenntir, bæði fyrir börn
og fullorðna. Viðburðurinn er með kostnaðarsamari liðum
vegna fjarlægðar við suðvesturhornið. Þetta hefur verið
vinsælt og við höfum verið í samstarfi við Grunnskólann
á Ísafirði þegar barnabókahöfundur kemur og einu sinni
með Menntaskólanum á Ísafirði. Bókasafnið hefur alltaf átt
gott samstarf við öll skólastig á svæðinu, frá leikskólum til
háskólastigs.
Annar taktur er nú á sumrin á bókasafninu vegna komu
skemmtiferðaskipa sem eru mörg og fara stækkandi. Það
er vinsælt hjá ferðamönnunum að koma við í Safnahúsinu,
þannig myndast öðruvísi álagstímar og það er stundum
opnað fyrr á morgnana og um helgar ef von er á mörgum.
Bókasafnið er með sama opnunartíma allt árið, þar með
talin laugardagsopnun en laugardagar eru ekki síður vinsælir
á sumrin.
Framundan er svo Landsfundur Upplýsingar 2020 sem
verður haldinn á Ísafirði í fyrsta sinn og við viljum bjóða alla
velkomna!
Svipmyndir frá Haustþingi Upplýsingar á Garðatorgi í Garðabæ þann 29. nóvember 2019. Fyrirlesarar á pallborði f.v. Helga Einarsdóttir, verkefnastjóri
fræðslu og miðlunar í Bókasafni Kópavogi, Pálína Magnúsdóttir, borgarbókavörður og Rauha Maarno, framkvæmdastjóri finnska Félags bókasafna
og upplýsingafræða. Einnig má sjá Öldu Hrannardóttur, forstöðumann bókasafnsins á Patreksfirði flytja erindi sitt (á skjámynd: Hlaðvarpsstúdíó) og
gestafyrirlesarinn Rauha Maarno, frá Finnlandi sést í pontu að flytja erindi sitt. (Ljósm. Barbara H. Guðnadóttir).