Morgunblaðið - 10.01.2020, Page 1
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Stærsta fjárfestingarleið lífeyris-
sjóðsins Frjálsa, Frjálsi 1, skilaði
12,4% raunávöxtun í fyrra sam-
kvæmt uppgjöri. Um 50 þúsund
sjóðfélagar eiga fjármuni í þessari
fjárfestingarleið. Heildareignir
hennar námu um 140 milljörðum
króna um nýliðin áramót. Aðeins
einu sinni áður, í þá rúma fjóra ára-
tugi sem þessi fjárfestingarleið hef-
ur verið í boði, hefur raunávöxtun
hennar verið meiri, það var árið
2003 þegar hún reyndist 16%.
Árangur sjóðsins er ekki síst
eftirtektarverður í samanburði við
árið 2018 en þá reyndist raunávöxt-
un aðeins 1,1% en ári fyrr var hún
5%. Þrátt fyrir hina miklu raun-
ávöxtun Frjálsa 1 var það ekki sú
fjárfestingarleið hjá lífeyrissjóðnum
sem skilaði bestri ávöxtun. Á toppn-
um trónir leið sem nefnist „Frjálsi
áhætta“.
Raunávöxtun þeirrar leiðar var
13,7%. Sé litið yfir árangur þeirrar
12,4% raunávöxtun
á aðalsafni Frjálsa
Flestir innlendir og erlendir eignaflokkar sterkir í fyrra
MRaunávöxtun Frjálsa … »4
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ávöxtun Árið 2019 reyndist Frjálsa
lífeyrissjóðnum einkar hagfellt.
leiðar frá árinu 2008, þegar henni
var komið á fót, er einnig um næst-
besta árangur að ræða. Það er að-
eins árið 2015 sem sker sig úr en þá
nam raunávöxtunin 15%.
Arnaldur Loftsson, framkvæmda-
stjóri Frjálsa, segir í samtali við
Morgunblaðið að nýliðið ár hafi að
flestu leyti verið mjög hagfellt fyrir
sjóðinn. Þannig hafi nafnávöxtun
fjárfestingarleiða sem sjóðurinn
býður upp á verið á bilinu 6,2-
16,7%. Bendir hann á að flestir
eignaflokkar, bæði innlendir og er-
lendir, hafi gefið vel af sér og að
talsverðu máli hafi skipt að inn-
lendur hlutabréfamarkaður rétti
talsvert úr kútnum á síðari hluta
ársins.
F Ö S T U D A G U R 1 0. J A N Ú A R 2 0 2 0
Stofnað 1913 8. tölublað 108. árgangur
GOTT AÐ
OFHUGSA
EKKI VERKIN
ÞVERT YFIR
BANDARÍKIN
Á REIÐHJÓLI
RÖKKURSÖNGVAR
Í SAMSTARFI VIÐ
ÍSLENSK TÓNSKÁLD
JÓN EGGERT 10 SVERRIR GUÐJÓNS 70 ÁRA 32HELGI ÞÓRSSON 36
Veðrið lék ekki við íbúa höfuðborgarsvæðisins í gær frekar
en víða annars staðar á landinu en gul viðvörun var þar í gildi.
Gerði vindur og há sjávarstaða það að verkum að sjór
flóðsins en tveir menn sem voru við störf við að setja upp
grindverk við sjóinn neyddust til að hlaupa undan kraftmiklu
briminu sem fór í háum skvettum yfir girðinguna. »2
flæddi inn á endurvinnslustöð Sorpu í Ánanaustum og olli
nokkru tjóni en meðal annars brotnaði girðing. Var starfs-
mönnum gert erfitt um vik að sinna störfum sínum vegna
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Neyddust til að flýja undan briminu
Flest bendir til þess að Íranar hafi
sjálfir skotið niður flugvél úkra-
ínska flugfélagsins Ukraine Int-
ernational Airlines, sem hrapaði í
Teheran aðfaranótt miðvikudags.
Myndband sem New York Times
birti í gær á heimasíðu sinni af flug-
slysinu virðist staðfesta þetta. Just-
in Trudeau, forsætisráðherra Kan-
ada, segir gögn renna stoðum undir
að flugskeyti hafi grandað vélinni.
Segist hann ætla að tryggja „ítar-
lega rannsókn“ á orsökum slyssins
en kanadísk stjórnvöld kröfðust
þess í gær að Íranar myndu leyfa
kanadískum sérfræðingum að taka
þátt í rannsókn flugslyssins sem olli
dauða 63 Kanadamanna. »13 og 14
Íranar taldir hafa
skotið vélina niður
AFP
Slys 176 farþegar létust í slysinu.
Áætlað er að
tjón það sem varð
í óveðrinu sem
skall á í desember
muni að minnsta
kosti kosta vel á
annan milljarð
króna. Kostn-
aðurinn gæti orð-
ið töluvert meiri
og jafnvel skipt
milljörðum sam-
kvæmt athugunum Morgunblaðsins.
Stofnanir, sveitarfélög, trygginga-
félög og fleiri eru að safna saman
upplýsingum um tjónið auk starfs-
hóps forsætisráðherra sem fundar
nú með fulltrúum fyrirtækja og
sveitarfélaga.
Er mesta tjónið í veðurhamför-
unum vegna bilana á raforkukerfinu
og afleiðinga þeirra en Landsnet
áætlar að kostnaður við viðgerðir á
flutningskerfinu verði rúmar 300
milljónir króna. Mesta tjónið hjá ein-
staklingum er í sveitunum, sér í lagi
hjá bændum en talið er að liðlega
100 hross hafi drepist á Norðurlandi
vestra. »6
Tjón vegna óveðurs-
ins talið kosta vel
á annan milljarð
Hross Tjón er
mikið hjá bændum.