Morgunblaðið - 10.01.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2020
Það er heilmikið hagræði í því aðnú geti lögreglan hlaupið uppi
ökuníðinga í stað þess að þurfa að
elta þá á bifreiðum eða bifhjólum.
Frá því vargreint í
Morgun-
blaðinu í gær
að með um-
ferðarlög-
unum sem
tóku gildi um
áramót hefði verið tekin upp sú
regla að ekki mætti aka hraðar en á
10 kílómetra hraða á klukkustund á
svokölluðum vistgötum.
Þá segir í nýju lögunum að þegarekið sé meira en tvöfalt hraðar
en heimilt sé, skuli svipta ökumann-
inn skírteininu í þrjá mánuði hið
minnsta.
Starfsmaður samgöngu-ráðuneytisins sem Morgun-
blaðið ræddi við staðfesti að það
væri rétt skilið að ef farið yrði yfir
20 km/klst. á vistgötu ætti að svipta
ökumenn réttindum.
Þá sagði lögreglumaður í samtalivið blaðið að ekki yrði farið
fram með neinu offorsi við að fram-
fylgja þessu.
Ekki er ljóst hvað það þýðir enökumenn skyldu fara varlega
og hafa auga með fótfráum lög-
reglumönnum á vistgötum.
Fyrir lagabreytingu var há-markshraði á vistgötum 15
km/klst. Það telst vart ofsaakstur,
jafnvel í íbúðahverfi. Var virkilega
ástæða til að færa hraðann enn neð-
ar? Þá má líka spyrja: Ætli það
verði til einhvers annars en að
tryggja að allir sem um vistgötur
aka brjóti umferðarlögin?
Hlaupa uppi
ökuníðinga
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Síðasta ár var metár í Hörpu hvað
aðsókn varðar. Voru 2.155 viðburðir
af öllum stærðum og gerðum haldnir
í húsinu. Þar af voru 449 tónleikar.
Alls voru 191.319 miðar prentaðir út
í miðasölunni. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá Hörpu. Fram
kemur ennfremur að í fyrra voru
haldnir í húsinu 411 fundir, ráðstefn-
ur, veislur og móttökur. Þar af voru
28 alþjóðlegar ráðstefnur. Aldrei áð-
ur hafa svo margar alþjóðlegar ráð-
stefnur verið haldnar þar. Komnar
eru margar bókanir fyrir þetta ár og
næsta. Skoðunarferðir undir leið-
sögn voru 981 talsins. Flestar voru á
ensku fyrir ferðamenn en einnig var
efnt til sérleiðsagnar fyrir íslenska
hópa og fyrir börn.
Þá segir í fréttatilkynningunni að
glæsilegri fjölskyldudagskrá hafi
verið hleypt af stokkunum í lok sum-
ars og 144 viðburðir fyrir börn og
fjölskyldufólk farið fram í húsinu.
Loks er þess getið að hellt hafi verið
upp á 350.000 kaffibolla á árinu.
Þegar Morgunblaðið spurði um
fjárhag Hörpu á liðnu ári reyndist
ekki búið að telja peninga út og inn
jafn nákvæmlega og viðburði og
kaffibolla, en sagt að upplýsingar
yrðu veittar í ársskýrslu í vor. Í fyrra
nam tap á rekstrinum 243,3 milljón-
um króna. gudmundur@mbl.is
Aðsóknarmet í Hörpu á síðasta ári
Búið að telja viðburði og kaffibolla í
húsinu en ekki peningana út og inn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Harpa Fjölbreytt starfsemi er í hús-
inu. Frá sýningu á Svanavatninu.
Áform eru um að reisa vindorkugarð
í landi Sólheima í Dalabyggð og
gætu 27 vindmyllur risið á svæðinu í
tveimur áföngum með hámarks-
afköst upp á 115 MW. Fyrirtækið
Quadran Iceland Development ehf.
hefur lagt fram tillögu til Skipulags-
stofnunar að matsáætlun vegna
mats á umhverfisáhrifum vindorku-
garðsins.
Samkvæmt matstillögu er verk-
efninu við Sólheima skipt í tvo
áfanga. Í þeim fyrri yrðu 20 vind-
myllur með hámarksafköst upp á 85
MW. Í öðrum áfanga sjö vindmyllur
til viðbótar með hámarksafköst upp
á 30 MW. Áfangi 2 yrði í biðstöðu
þar til afkastagetan næst í raforku-
kerfinu.
Nálæg tenging við raforkukerfi
Í tillögunni segir að svæðið búi að
góðu aðgengi við vegakerfi og sé
með nálæga tengingu við raforku-
kerfi. Þar kemur fram að æskilegast
væri ef verkefnið tengdist kerfinu í
gegnum háspennulínur sem eru þeg-
ar til staðar á milli aðveitustöðva að
Glerárskógum og Hrútatungu.
Framkvæmdasvæðið á Laxárdals-
heiði er skilgreint sem mikilvægt
svæði fyrir fuglalíf og líffræðilega
fjölbreytni að því er kemur fram í
tillögunni. Við fyrstu athuganir á
svæðinu og úttekt á fuglalífi út frá
völdum athugunarstað snemma í
maí 2019 hafi verið tiltölulega lítill
fjöldi fugla skráður og fáar tegundir.
Í matinu er ætlunin að kanna
fuglalíf á svæðinu sérstaklega. Veð-
urmastur var reist þar í fyrrasumar
og var sjálfvirk myndavél sett upp í
mastrinu til að safna upplýsingum
um virkni fuglategunda á svæðinu.
aij@mbl.is
Vilja beisla vind
á Laxárdalsheiði
Tillaga um mat á
umhverfisáhrifum
Allt að 27 myllur
Loftmyndir ehf.
Sólheimar
Sólheimar í Dalabyggð
Búðardalur
Borðeyri
Vindorkugarður
Klettagörðum 11 | 104 Reykjavík | Sími 568 2130 | verslun@et.is | Opið mánud.-föstud. kl. 8.00-18.00
Mikið úrval af
KÖSTURUM OG AUKALJÓSUM
fyrir allar gerðir bíla