Morgunblaðið - 10.01.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2020
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Ferðalaginu miðar vel,“ segir Jón
Eggert Guðmundsson hjólreiðamað-
ur sem nú er á ferð þvert yfir Banda-
ríkin frá Flórída. Hann lagði upp frá
Talahassee í Flórida á gamlársdag
og stefnir á San Diego í Kaliforníu
við Kyrrahafsströnd. Þarna á milli
eru um 5.000 kílómetra þegar farin
er leiðin sem er kölluð Southern Tier
route og er þekkt meðal hjólreiða-
manna sem lengstu leggi velja.
Í byrjun mars
„Ég stefni á að vera kominn á leið-
arenda fyrstu vikuna í marsmánuði.
Núna er ég kominn langleiðina í
gegnum Flórídaríki og nálgast
landamærin yfir til Alabama. Er bú-
inn að hjóla um 300 kílómetra og
ferðin hefur gengið þokkalega utan
hvað hægri pedalinn á hjólinu hjá
mér brotnaði á fyrstu dögum ferðar.
Ég hef því tekið fótstigin áfram á
vinstri pedalanum einum á um það
bil 200 kílómetra leið. En mér skilst
að reiðhjólaverslun sé ekki langt frá
þeim stað sem ég nálgast nú, svo þá
ætti ég að fá stykkið sem þarf,“ segir
Jón Eggert þegar Morgunblaðið
ræddi við hann í gær.
Upphafleg ætlan Jóns Eggerts
var að enda ferð sína í La Paz í
Mexíkó. Nú er staðan hins vegar sú
að bandarísk stjórnvöld biðja fólk
um að forðast ferðir þangað vegna
óeirða. „Ég mun fylgjast með
ástandinu í Mexíkó meðan ég er á
ferðalaginu; en eftir Alabama-ríki
fer ég í gegnum Lúísíana, svo Texas,
því næst Arizona, Nýju Mexíkó og
loks Kaliforníu. Breytist ástandið til
hins betra skelli ég mér auðvitað til
Mexíkó. Ef ekki þá er ég sáttur við
að enda ferðina í San Diego í Kali-
forníu,“ segir Jón Eggert sem lætur
vel af sér á ferðalagi þessu. Hann
svo sem ekki heldur óvanur svona
verkefnum.
Þríþraut og austurströnd
Á sl. ári reyndi hann við opinbert
heimsmet Guinness yfir lengstu þrí-
þrautina og hljóp þá 1.456 km, hjól-
aði 5.700 km og synti 240 km frá 9.
febrúar til 26. ágúst, án þess að
missa dag. Síðasta vor fór Jón Egg-
ert svo í hjólaferð suður með allri
austurströnd Bandaríkjanna, frá
Halifax í Kanada og til Miami í Flór-
ída þar sem hann býr.
Hjólar frá Flórída til Kyrrahafsstrandar
Fer 5.000 kílómetra langa leið á reiðhjóli þvert yfir Bandaríkin og stefnir til San Diego í Kaliforníu
Nálgast nú landamæri Alabama-ríkis Fer hugsanlega alla leiðina til Mexíkó Á einum pedala
Leið Jóns Eggerts um Bandaríkin og Mexíkó
Hjólar frá Tallahassee í Flórída til La Paz í Mexíkó
Texas
Nýja-
Mexíkó
Arizona
Kalifornía
Flórída
Louisiana
Mississippi
Alabama
B A N DA R Í K I N
M E X Í K Ó
Kyrrahaf
Mexíkófl ói
La Paz
ÁÆTL UÐ LOK FEB. 2020
Tallahassee
30. DES. 2019
KALIFORNÍU-
SKAGI
Kortagrunnur: Colourbox
Morgunblaðið/Þórður
Garpur Jón Eggert á Íslandi 2016.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við erum auðvitað mjög ánægðir.
Þetta verður mjög skemmtilegt,“
segir Andri Þór Kjartansson, einn
eigenda brugghússins Malbygg.
Malbygg hefur fengið boð um
þátttöku á einni þekktustu bjór-
hátíð í heimi, bjórhátíð Mikkeller í
Kaupmannahöfn. Hátíðin kallast
MBCC og er haldin ár hvert í maí.
Andri og félagar hans þekkja vel til
hátíðarinnar enda hafa þeir sótt
hana sem gestir mörg undanfarin
ár. Nú verða þeir í nýju hlutverki
og ásamt um eitt hundrað öðrum
brugghúsum víðsvegar að úr heim-
inum munu Malbygg-menn kynna
sinn áhugaverðasta bjór.
„Þetta er sú hátíð sem okkur hef-
ur mest langað að fara á með Mal-
bygg enda eru jafnan mörg stór
nöfn þarna,“ segir Andri en brugg-
húsinu hefur einnig verið boðið á
fleiri hátíðir í ár. Í lok mars tekur
Malbygg þátt í bjórhátíð í Bergen í
Noregi og í nóvember er ferðinni
heitið á Billy’s Craft Beer Fest í
Antwerpen í Belgíu.
Fagna tveggja ára afmæli
Malbygg fagnar í næsta mánuði
tveggja ára afmæli en bjór brugg-
hússins hefur notið mikilla vinsælda
meðal bjóráhugafólks á Íslandi. Svo
mikilla að bæta þurfti við 3.000 lítra
gerjunartanki til að anna eftir-
spurn. Í vor kemur svo í ljós hvort
tegundir eins og Massaður kjúkl-
ingur, Sopi, King Kong eða Bjössi
bolla falla í kramið á alþjóðasviðinu.
Búast má við því að hátt í þrjú þús-
und gestir sæki hátíðina sem stend-
ur í tvo daga. Henni er skipt í fjóra
hluta og þurfa Malbyggs-menn að
mæta með átta tegundir af bjór til
leiks.
Morgunblaðið/RAX
Malbygg Bergur Gunnarsson og bræðurnir Andri Þór og Ingi Már Kjartans-
synir mæta með átta tegundir af bjór til leiks á bjórhátíð í Kaupmannahöfn.
Malbygg boðið á
vinsæla bjórhátíð
Fyrsta íslenska brugghúsið á Mikk-
eller Beer Celebration í Kaupmannahöfn
Átta umsækjendur sóttu um tvö
embætti dómara við Landsrétt
sem auglýst voru í desember en
umsóknarfrestur rann út 6. jan-
úar að því er fram kemur í til-
kynningu á vef dómsmálaráðu-
neytisins en mbl.is greindi frá
þessu í gær.
Sóttu sex héraðsdómarar um
embættið, skrifstofustjóri Lands-
réttar og einn prófessor.
Umsækjendur um embættið
eru: Ása Ólafsdóttir prófessor,
Ástráður Haraldsson héraðsdóm-
ari, Björn L. Bergsson, skrif-
stofustjóri Landsréttar, Bogi
Hjálmtýsson héraðsdómari, Hild-
ur Briem héraðsdómari, Ingi-
björg Þorsteinsdóttir héraðsdóm-
ari, Ragnheiður Snorradóttir
héraðsdómari og Sandra Bald-
vinsdóttir héraðsdómari.
Á vef dómsmálaráðuneytisins
kemur fram að sett verði í emb-
ættin eftir að dómnefnd um hæfni
umsækjenda hefur lokið störfum.
Átta sóttu um
embætti dómara
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Pronto bolli og undirskál
Verð 1.690 kr. / 1.190 kr.
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
Einfalt og nett hjartastuðtæki fyrir stofnanir og fyrirtæki. Tækið greinir sjálfkrafa
mögulega rafvirkni í hjartanu og sé þess þörf gefur það rafstuð.
Tækið talar til notandans og gefur fyrirmæli á íslensku*
*Einnig fáanlegt með ensku tali.
LIFEPAK CR PLUS
HJARTASTUÐTÆKI
TILBOÐSVERÐ
LIFEPAK CR PLUS
159.900
KR M/VSK
VEGGFESTING
19.000
KR M/VSK