Morgunblaðið - 10.01.2020, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2020
Í fannfergi Margir áttu í erfiðleikum í snjóbyljum sem gengu yfir borgina í gær. Vegfarandi sem ljósmyndari rakst á við Túngötu virtist þó komast leiðar sinnar á rafmagnshlaupahjóli.
Eggert
Breytingin eftir árið
2014 þegar Rússar inn-
limuðu Krímskaga og
hófu hernað með að-
stoð aðskilnaðarsinna
gegn stjórnvöldum í
Kænugarði er meiri en
menn sáu fyrir þá.
Hörku Vladimírs Pút-
íns Rússlandsforseta
vegna stjórnarskipt-
anna sem urðu
snemma árs 2014 í Úkraínu má
skýra með ótta hans við að verða
sjálfur fórnarlamb almennra mót-
mæla í eigin landi. Sami ótti setur
svip á stuðning Pútíns við Bashar al-
Assad Sýrlandsforseta sem stundar
grimmilegan hernað gegn eigin þjóð,
hefur drepið um 500.000 manns og
hrakið milljónir á flótta til þess eins
að halda völdum.
Íranir og herstjóri þeirra Qassim
Soleimani sem hafði það hlutverk að
breiða íranska klerkaveldið út um
Mið-Austurlönd lögðu sitt af mörk-
um til ófriðarins i Sýrlandi og náðu
með strengjabrúðum undirtökunum
í Jemen, Líbanon, Sýrlandi og Írak.
Þegar Soleimani ögraði Bandaríkja-
mönnum í Írak og hvatti til árása á
bandaríska sendiráðið í Bagdad lét
Donald Trump Bandaríkjaforseti
drepa hann.
Thomas K. Friedman, sérfróður
blaðamaður The New York Times
um málefni Mið-Austurlanda, segir
að ofríkisstefna Soleimanis gegn ná-
grönnum Írana hafi vakið svo mikla
andstöðu gegn þeim að þeir megi sín
í raun einskis nema í krafti málaliða
sinna.
Svipað viðhorf í garð Rússa hefur
mótast meðal nágrannaþjóða Pútíns
vegna ofríkisins sem
hann sýnir Úkra-
ínumönnum og
Georgíumönnum. Í
desember 2019 bárust
fréttir um mótmæli í
Hvíta Rússlandi, al-
ræðisríki að sovéskri
fyrirmynd.
Alræðisherrann leyf-
ir ekki mótmæli nema
þau séu honum þókn-
anleg. Fólk kom saman
til að láta í ljós and-
stöðu við nánari sam-
runa við Rússland að kröfu Pútíns í
skiptum fyrir hagstæðan orkusamn-
ing og fjárhagsaðstoð til að halda lífi
í efnahag Hvíta-Rússlands. Aleks-
ander Lukashenko, einræðisherra í
Hvíta Rússlandi, kann að spila á ótta
Pútíns við fjöldamótmæli og leyfir
hundruðum manna að koma saman í
Minsk og veifa fána eigin lands á
sama tíma og hann ræðir við Pútín.
Viðbúnaður nágranna
Vladimír Pútín tók við af Boris
Jeltsín sem starfandi forseti Rúss-
lands 31. desember 1999 og hefur
því farið með úrslitavald í landinu í
20 ár.
Fyrr á árinu 1999 höfðu Pólverjar,
Ungverjar og Tékkar gengið í
NATO og árið 2004 bættust Eystra-
saltsþjóðirnar þrjár í hóp NATO-
ríkjanna auk Búlgara, Rúmena, Sló-
vaka og Slóvena.
Allar kynntust þessar þjóðir al-
ræði kommúnista og þær sem næst
standa Rússlandi kröfðust aukins
viðbúnaðar af hálfu NATO í löndum
sínum eftir að ofríkisstefna Pútíns
birtist Úkraínumönnum árið 2014.
Síðan hefur á vettvangi NATO verið
gripið til margvíslegra ráðstafana til
að verða við þessum óskum, nú síð-
ast á leiðfogafundi bandalagsins í
London 4. desember 2019.
Ákveðið var árið 2016 að Bretar
héldu úti herfylki í Eistlandi, Kan-
adamenn í Lettlandi, Þjóðverjar í
Litháen og Bandaríkjamenn í Pól-
landi. Frá 2004 hafa NATO-ríki
skipst á að halda uppi loftrým-
isgæslu Eystrasaltsþjóðanna. Fyrst
með fjórum orrustuþotum hverju
sinni frá flugherstöð í Litháen en
eftir innlimun Krímskaga með 12
orrustuþotum frá flugvöllum í Lithá-
en og Eistlandi. Frá og með áramót-
um 2020 eru vélarnar átta, fjórar frá
Litháen og fjórar frá Eistlandi.
Árið 2014 var ákveðið að koma á
fót NATO-liðsafla sem ber enska
heitið Very High Readiness Joint
Task Force (VJTF) í þessum sam-
eiginlega herafla sem unnt er að
virkja með mjög skömmum fyr-
irvara eru sveitir úr land-, flug- og
sjóherjum bandalagsþjóðanna fyrir
utan sérsveitarmenn. Fyrsta janúar
2020 tóku Pólverjar við stjórn þessa
herafla af Þjóðverjum sem stýrðu
honum árið 2019. VJTF er hluti af
40.000 manna viðbragðsher NATO.
Atlantshafsflotinn virkjaður
Frá því snemma á áttunda ára-
tugnum hefur NATO efnt til svo-
nefndra BALTOPS-flotaæfinga á
Eystrasalti. Í júní 2019 varð sú
breyting á yfirstjórn æfinganna að
hún fór í hendur 2. flota Bandaríkj-
anna, Atlantshafsflotans, sem
ákveðið var að endurvekja árið 2018.
Flotinn hefur aukið aðgerðasvið sitt
stig af stigi. Nú um áramótin var til-
kynnt að frá og með 31. desember
2019 bæri að líta á flotann tilbúinn til
allra aðgerða.
Í fréttum af stjórn 2. flotans á
BALTOPS segir að aðalstjórnstöð
æfinganna hafi verið í Norfolk í
Virginíuríki í Bandaríkjunum en að-
gerðastjórn um borð í skipinu USS
Mount Whitney. Í september 2019
hafi síðan verið látið reyna á stjórn-
stöðvarbúnað, Maritime Operations
Center (MOC), 2. flotans á Keflavík-
urflugvelli með því að senda tíma-
bundið hingað til lands 30 menn.
Segja flotaforingjar augljósa hag-
kvæmni fólgna í rekstri slíkrar
stöðvar miðað við að 500 manns hafi
haldið úti stjórnstöðinni um borð í
USS Mount Whitney.
Þá er þess jafnframt getið í árlegu
yfirliti um bandarísku flotaumsvifin
á Norður-Atlantshafi að á árinu 2019
hafi tvær B-2 sprengjuflugvélar í
fyrsta sinn lent á Keflavíkurflugvelli
auk þess sem ferðum P-8 kafbáta-
leitarvéla um völlinn fjölgi. Þetta
megi rekja til þess að áhugi á Íslandi
aukist hjá stefnusmiðum í banda-
ríska varnarmálaráðuneytinu vegna
aukinna umsvifa Rússa á Norður-
Atlantshafi.
Litið til vesturs og norðurs
Hvað segir þessi frásögn?
Í fyrsta lagi sér enginn fyrir
hverjar verða afleiðingar ákvarðana
sem marka þáttaskil í alþjóðlegum
samskiptum. Til verður ný staða,
friðsamlegri eða hættulegri eftir at-
vikum.
Í öðru lagi birtast áhrif breyting-
anna í ýmsum myndum. Bylgjan frá
innlimun Krímskaga nær hingað úr
austri en fyrir vestan og norðan eru
einnig breytingar sem krefjast stig-
magnandi viðbragða.
Um jólaleytið birtust tvær fréttir
á Grænlandi sem hafa bein áhrif hér.
Skipafélagið Royal Arctic Line
(RAL) á Grænlandi kaupir nýtt
gámaskip til siglinga við austur-
strönd Grænlands og til Íslands.
Eimskip lætur smíða tvö skip í Kína
vegna samstarfs við RAL og yfirvöld
í Maine-ríki í Bandaríkjunum sjá ný
viðskiptatækifæri vegna siglinga
Eimskips milli Nuuk og Portlands.
Þessar fréttir berast um sama
leyti og miklar umræður eru í Dan-
mörku um tengsl Dana og Græn-
lendinga innan danska ríkja-
sambandsins.
„Grænland er annars vegar risa-
vaxin áskorun fyrir danska konungs-
ríkið og hins vegar mikilvægasti að-
göngumiðinn að alþjóðlegum
heimsvettvangi. Það gerir Grænland
að nýrri þungamiðju í danskri utan-
ríkisstefnu,“ segir Kristian Jensen í
grein í ársbyrjun en hann varð ný-
lega talsmaður danska Venstre-
flokksins í norðurslóðamálum.
Samhliða því sem danskir stjórn-
málamenn láta sig Grænland meira
varða en áður aukast bein tengsl
Grænlendinga við Íslendinga og
Bandaríkjamenn. Jafnframt er öll-
um ljóst að ekki er lengur unnt að
líta á norðurslóðir sem „lág-
spennusvæði“. Eftir að hafa hækkað
spennustig í austri hafa Rússar her-
væðst mjög í norðri og úr vestri
eykst þrýstingur um gagnaðgerðir.
Í ársbyrjun 2020 er ekki undan
þessum staðreyndum vikist við mat
á horfum í öryggismálum.
Eftir Björn
Bjarnason » Bylgjan frá innlimun
Krímskaga nær
hingað úr austri en fyrir
vestan og norðan eru
einnig breytingar sem
krefjast stigmagnandi
viðbragða.
Björn Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra
Spennustig hækkar í austri, norðri og vestri