Morgunblaðið - 10.01.2020, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2020
✝ Ragnar Gunn-laugsson fædd-
ist 26. febrúar 1949
á Sjúkrahúsinu á
Sauðárkróki. Hann
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi 30. des-
ember 2019. For-
eldrar hans voru
Ólína Ragnheiður
Jónsdóttir og
Gunnlaugur Jón-
asson, bændur í Hátúni í Seylu-
hreppi. Ragnar á einn bróður,
Jón Gunnlaugsson, kvæntur
Jónínu Stefánsdóttur. Eru þau
bændur í Stóru-Gröf.
Ragnar giftist Maríu J. Val-
garðsdóttur, f. 28.4. 1952. Þau
skildu 1985. Eignuðust þau fjög-
ur börn saman: Finnu Guðrúnu,
f. 29.1. 1969, Ólaf Gunnar, f.
16.12. 1970, d. 27.2. 1986, Val-
garð Inga, f. 27.7. 1974 og
Rögnu Maríu, f. 24.5. 1978. Eig-
inmaður Finnu Guðrúnar er
Ragnar ólst upp í Hátúni í
Skagafirði og bjó þar alla sína
tíð. Hann gekk í barnaskóla í
Varmahlíð. Síðar stundaði hann
nám við Bændaskólann á Hólum
í Hjaltadal og útskrifaðist þaðan
sem búfræðingur 1968 eftir
tveggja ára nám.
Ragnar hóf búskap ásamt
föður sínum í Hátúni ungur að
árum og bjó með kýr og kindur
til ársins 2007, þegar nýir
bændur, bróðursonur hans
Gunnlaugur Hrafn og kona
hans Helga Sjöfn, tóku við búi
hans og ævistarfi.
Ragnar sinnti ýmsum félags-
störfum af alúð og áhuga. Hann
var einn af stofnendum Lions-
klúbbs Skagafjarðar og starfaði
með honum alla tíð. Hann sat
um árabil í stjórn Bún-
aðarfélags Seyluhrepps, sat í
stjórn félags kúabænda í Skaga-
firði og var formaður sókn-
arnefndar Glaumbæjarkirkju í
fjölda ára. Hann var einnig mik-
ill áhugamaður um gamla bíla
og var félagi í Fornbílaklúbbi
Íslands.
Útför Ragnars fer fram frá
Glaumbæjarkirkju í dag, 10.
janúar 2020, og hefst athöfnin
klukkan 14.
Garðar Smárason
og eiga þau synina:
Ólaf Ragnar, Einar
Smára og Gunnar
Inga. Ólafur á son-
inn Garðar Leó og
Einar synina Stein-
þór Óla og Bergþór
Skorra. Eiginkona
Valgarðs Inga er
Jórunn Sigurðar-
dóttir og eiga þau
börnin Maríu og
Frosta. Eiginmaður Rögnu Mar-
íu er Guðmundur Hreinsson og
eiga þau synina Ragnar Svein
og Arnar Loga. Fyrir átti
Ragna Guðnýju Ósk með Jónasi
Tryggvasyni.
Árið 1993 giftist Ragnar
Önnu Margréti Stefánsdóttur.
Þau skildu.
Ragnar hóf sambúð með
Björgu Baldursdóttur frá Vigur
árið 2014. Björg á þrjá syni,
Baldur, Jónas og Hauk og 7
barnabörn.
Vormorgunn. Vorsólin hellir
geislum sínum yfir Glaumbæjar-
eyjarnar. Náttúran er að vakna
til lífsins. Húseyjarkvíslin liðast
eins og silfurborði gegnum lág-
lendið. Út um stofugluggann í
Hátúni má sjá mann og hund á
rösklegri göngu eftir veginum á
Eyjunum. Dagleg sjón nær alla
daga ársins, jafnt vetur, sumar,
vor og haust, hvernig sem viðr-
aði. Göngumaðurinn er samofinn
náttúrunni í öllum sínum marg-
breytilegu myndum og elskar
hana af öllu hjarta. Stundum
slæst hinn Hátúnsbróðirinn í för.
Þeir njóta þess bræðurnir að
ganga saman, verður tíðlitið upp
á Langholtið þar sem æskuheim-
ilið blasir við.
Að lokinni göngu kaffisopi,
lopakex og notalegt spjall við eld-
húsborðið í Hátúni. Stundum
mæta sveitungar og vinir til um-
ræðna um landsins gagn og nauð-
synjar. Þetta voru dásamlegar
stundir. Ekki er setið auðum
höndum eftir morgunkaffið. Ef
engin sérstök verkefni eru á dag-
skrá má þá að minnsta kosti finna
eitthvað að gera í Athvarfinu.
Þurrka rykið af bílunum, bóna
einhvern þeirra, dytta að lakki
eða annað smálegt. Svo þarf
kannski að skreppa á bæi og veita
aðstoð við eitt og annað.
Þessi mynd er ein af ótalmörg-
um sem birtast mér nú þegar
elsku Raggi minn er horfinn mér
yfir á grænar grundir annars
heims. Þessi alltof fáu ár sem við
áttum saman voru ómetanleg og
báru í sér samfellda hamingju,
ást, gleði og allt það sem þarf til
að gera lífið fullkomið. Allar ferð-
irnar okkar, einkum innanlands,
sem voru ófáar, eru dýrmætar
perlur í minningasjóðnum. Hann
elskaði landið sitt með öllum þess
fjölbreytileka og gerði sér far um
að fara með mig á staði sem við
höfðum ekki séð áður. Ekki var
hægt að hugsa sér dásamlegri
ferðafélaga bæði í ferðalögum og
á lífsins leið.
Þótt vágesturinn mikli,
krabbameinið, herjaði af mis-
kunnarleysi á elsku Ragga minn
síðustu mánuðina breyttist hans
innri maður ekki. Ástin, um-
hyggjan, virðingin, tillitssemin,
vináttan, ótrúlegt æðruleysi og
óendanleg ást hans á fallegu fjöl-
skyldunni hans var alltaf í fyr-
irrúmi, hversu þjáður sem hann
var.
Ég er svo ólýsanlega þakklát
fyrir að hafa kynnst og fengið að
elska þennan dásamlega mann og
fengið að eiga fjölskylduna hans
með honum, yndislegu börnin
hans, afa- og langafabörnin.
Sorgin nístir hjarta og sál
vegna þess hversu heitt hann var
elskaður.
„Mikil er sú gæfa
að geta öllum stundum af æðruleysi
lagt aðstæðurnar í Guðs almáttugu
hendur
og þannig falið sig og sína af einlægni
honum á vald.
Ævigangan verður svo ólýsanlega
léttbærari
maður fyllist óskiljanlegum friði,
þakklæti og auðmýkt.
Traustið og friðurinn, sem æðruleysinu
fylgir,
er Guðs gjöf.“
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Góður Guð geymi þig, elsku
hjartans Raggi minn. Minningin
um þig og samvistir okkar mun
lifa með mér að eilífu.
Björg Baldursdóttir.
Elsku pabbi minn. Það sem ég
er þakklát fyrir að hafa átt þig
fyrir pabba. Ég er svo þakklát
fyrir þá hluti sem þú kenndir mér
og ég geymi með mér. Þú varst
einstakur maður, ótrúlega hjálp-
samur hvort sem það voru við
fjölskyldan, nágrannarnir eða
aðrir, þú varst alltaf tilbúinn að
aðstoða. Þú elskaðir lífið og allt
sem það hafði upp á að bjóða.
Þrátt fyrir að vera orðinn mjög
veikur núna í desember sagðir þú
við okkur að þú nytir hvers dags
og það sagði svo mikið um þig. Þú
kenndir mér að elska landið okk-
ar Ísland, náttúruna, fólkið og
allt sem það hefur upp á að bjóða.
Þér fannst fátt skemmtilegra en
að ferðast um landið og höfum við
farið saman í margar ferðir, bæði
stuttar og langar. Ekki skemmdi
það ferðina ef eitthvað kom upp á
með bílana, eitthvað bilaði eða
veður versnaði. Þú varst yndis-
legur afi og börnunum mínum
fannst fátt skemmtilegra en að
hafa þig í kringum sig. Þau munu
geyma minningu þína með sér og
taka til sín það sem þú kenndir
þeim eins og að tína rusl og
ganga vel um landið. Guðný mun
svo feta í þín fótspor og gerast
bóndi eins og Raggi afi. Þú eydd-
ir síðustu vikunni þinni, jólavik-
unni, á líknardeild Landspítalans
í Kópavogi og þar leið þér ein-
staklega vel. Þér fannst starfs-
fólkið einstakt og andrúmsloftið
svo gott. Langar mig að færa
starfsfólkinu þar okkar innileg-
ustu þakkir fyrir einstaka
umönnun og hlýhug til okkar
allra.
Ég geymi síðustu setninguna
þína til mín með mér.
Ég elska þig, elsku pabbi
minn.
Þín
Ragna María.
Elsku pabbi.
Takk fyrir að gefa mér líf, takk
fyrir að gefa mér þrautseigju,
takk fyrir að gefa mér tilfinningu
fyrir náttúrunni, takk fyrir að
sýna mér hvað vinskapur skiptir
miklu máli, takk fyrir að sýna
mér að fjölskyldan skiptir öllu
máli, takk fyrir að gefa mér
systkinin mín, takk fyrir að
kenna mér að umgangast dýr,
takk fyrir að kenna mér að fara
vel með alla hluti, takk fyrir að
sýna mér hvað lífið er dýrmætt,
takk fyrir að leyfa mér að hugsa
um þig í veikindum þínum, takk
fyrir að gefa mér sorgina og takk
fyrir allar minningarnar, góðar
og erfiðar, sem við áttum saman.
Takk fyrir að vera pabbi minn, ég
elska þig eins og þú ert.
Þín
Finna.
Elsku afi minn.
Það sem ég get rifjað upp
margar dásamlegar minningar
um þig, mínar sterkustu minn-
ingar koma frá sveitinni, þegar
ég var um sex og sjö ára. Það
skemmtilegasta sem ég gerði var
að sitja með þér í traktornum. Ég
man eftir því þegar þú þurftir að
fara með New Hollandinn þinn í
viðgerð á Hofsós, ég fór með þér
og minnir að ég hafi sofið meiri-
hlutann af ferðinni. Öll sumrin
þegar við vorum að bagga, heyja
og rúlla voru dásamleg. Síðan má
ekki gleyma því þegar við fórum
saman til fátæka mannsins og
sóttum baggavélina, ég skildi
ekkert í því hvað hann átti gamla
traktora og hélt að hann væri
sárafátækur.
Ég elskaði að vera hjá þér í
sveitinni og hlakkaði alltaf til að
fara til þín. Einnig fannst mér svo
gaman þegar þú fórst með okkur
í ferðalög eins og þegar við fórum
á Patreksfjörð árið 2012. Í þeirri
ferð er einn dagur sem stendur
upp úr en það er þegar við fórum
öll í dásamlegu veðri upp að
Dynjanda. Þar voru teknar
margar góðar myndir af okkur
bræðrunum með þér og Hlunk.
Mér þykir alveg ofboðslega
vænt um þig afi og þú átt eftir að
lifa innra með mér allt mitt líf. Ég
hlakka til að segja mínum börn-
um frá því hversu frábæran afa
ég átti.
Þinn
Gunnar Ingi (Gunni).
Nú hefur hann elsku tengda-
faðir minn kvatt þetta jarðneska
líf, hann gerði það næstsíðasta
dag liðins árs, þar sem við öll
hans nánasta fjölskylda fengum
að vera við dánarbeð hans þegar
hann kvaddi. Það var erfið en
samt góð stund með fjölskyld-
unni.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
kvatt hann með þessum hætti.
Hann var búinn að berjast við
þetta illvíga krabbamein í bráð-
um tvö ár.
Elsku Raggi minn, það
kannski lýsir þér best að aldrei
kvartaðir þú í yfirstandandi veik-
indum. Þú varst ekki vanur að
kvarta yfir nokkrum sköpuðum
hlut, tókst öllum verkefnum af
æðruleysi. Það er synd að þú
skyldir ekki fá lengri tíma, því þú
varst svo lifandi, hafðir áhuga á
svo mörgu. Það var alveg sama
hvort það var mannfólk, skepnur
eða vélar. Þú áttir svo auðvelt
með að kynnast fólki, gafst þig á
tal við alla, enda fann maður allt-
af hvað fólki sem í kringum mig
var þótti gaman að hitta þig og
spjalla. Svo voru það skepnurnar,
þú hafðir alveg einstakt lag á því
að láta skepnum líða vel í kring-
um þig. Alltaf svo rólegur í kring-
um þær. Svo ég tali nú ekki um
vélar. Þú varst alltaf að passa upp
á smurningu. Það var ósjaldan
sem þú spurðir: „Garðar, geturðu
aðstoðað mig við að smyrja?“
Hann tengdafaðir minn hafði ein-
stakt lag á því að halda gömlum
vélum í lagi.
Ég má til með að segja frá því
þegar ég fyrst hitti Ragga í Há-
túni. Ég var þá að koma með
Finnu fyrst í Hátún. Húsbóndinn
var eðlilega í fjósi, ég beið
spenntur, smá stressaður að hitta
tilvonandi tengdaföður minn í
fyrsta sinn.
Svo kom að því. Hann kom inn
í bláa gallanum sínum, með húfu
á höfðinu, hávaxinn, tók í höndina
á mér, mín hönd hvarf inn í hönd-
ina á honum, þetta voru vinnu-
hendur og því mjög stórar. Ég
var hálffeginn að fá höndina mína
til baka, hann sagðist heita Ragn-
ar og bara vera „bóndaræfill“,
sem auðvitað var hluti af hans
húmor. Ég vissi ekkert á þeim
tíma hvernig ég ætti að taka
þessu. En þetta atvik lýsir Ragga
bara svo vel; kom til dyranna eins
og hann var klæddur, var ekki
mikið að flækja hlutina.
Ég hélt alltaf að ég fengi lengri
tíma með þér. Einir bestu tímar
sem ég hef átt voru þegar ég var
með þér í búskapnum. Það var al-
veg sérstaklega gaman að heyja
með þér, þar varstu alveg í essinu
þínu.
Ég má til með að minnast á
það, að einu sinni, þegar flestir
bændur voru á landsmóti hesta-
manna, þá fylltum við þurrheysp-
artinn, ég, þú og Ragna. Þú varst
svo ánægður með afraksturinn.
Já, þú varst bóndi af lífi og sál.
Eins var svo gaman að ferðast
með þér eftir að þú hættir bú-
skap.
Við fjölskyldan fórum með þér
svo margar skemmtilegar ferðir
og strákarnir mínir hafa oft á því
orð hversu ánægjulegar þessar
ferðir voru.
Ég get ekki lokið þessu án
þess að minnast á það hversu
tengdaföður mínum þótti vænt
um landið sitt.
Hann átti stóran þátt í að
græða upp landið með félögum
sínum í Lions. Síðasta ferðin sem
hann fór var farin síðastliðið vor.
Elsku Raggi minn, þú skilur
eftir þig stórt skarð í mínum
huga. Ég þakka þér fyrir öll góðu
árin sem við áttum saman.
Kveðja,
Garðar.
Ragnar Gunnlaugsson – Raggi
í Hátúni, hefur kvatt.
Ragnar var borinn og barn-
fæddur á þeim fagra stað Hátúni
á Langholti í Seyluhreppi hinum
forna, gegnt Glaumbæ í Skaga-
firði, bjó þar allt sitt líf – unni
þeim stað umfram alla aðra í
heimi hér og undi þar glaður við
sitt til æviloka.
Það var í fimmtugsafmæli
mágs míns, Jóhanns Þorsteins-
sonar í Miðsitju, sem leiðir okkar
lágu saman – og er skemmst frá
því að segja að ég var flutt í Há-
tún þremur mánuðum síðar, und-
ir haust 1986. Eldri dóttirin var
að fara að heiman en yngri börnin
tvö voru heima í Hátúni – handan
við hlaðið bjuggu svo foreldrar
Ragnars. Þau tóku mér öll ynd-
islega vel og daglegt amstur
sveitalífsins tók við. Ég naut bú-
starfanna – náttúrunnar, dýr-
anna og ekki síst samstarfsins við
minn besta vinnufélaga fyrr og
síðar: Ragga. En mikill skuggi
hvíldi yfir fjölskyldunni: Sonur
Ragnars og Maríu, fyrri konu
hans, hafði látist af slysförum
nokkrum mánuðum áður en við
kynntumst. Missirinn var óum-
ræðilegur og þjakaði Ragnar
meira en orð fá lýst.
Þrettán árum síðar yfirgaf ég
Hátún og við skildum. Við höfð-
um þá verið gift í 7 ár.
Á þessum árum var Ragnar
svolítið eins og stóri bróðirinn á
Glaumbæjartorfunni hvað bú-
skaparamstur varðaði: ráðagóð-
ur, greiðvikinn, hlýr og kíminn og
alltaf til í að lána vélar eða verk-
færi eða fara og hjálpa til ef hann
mögulega gat. Hann tók glaður
að sér ýmis trúnaðarstöf í nær-
samfélaginu en þó hann hafi sinnt
þeim öllum af alúð, þótti honum
vænst um starf sitt fyrir kirkjuna
sína, Glaumbæjarkirkju, sem
hann unni og hafði yndi af þeim
stundum sem fóru í störf fyrir
hana. Kirkjan var t.d. alveg end-
urgerð að innan á hans tíð sem
formanns og vorum við hjónin
með iðnaðarmenn og aðra sem að
verkinu komu, í mat, sumarið
sem endurbæturnar stóðu yfir.
Aldrei taldi Raggi heldur eftir
sér að vera byggðasafninu innan
handar ef hann mögulega gat og
á ég góðar minningar af torfristu
í góðra manna hópi á björtum
sumardegi á Eylendinu handan
við Kvíslina en þar er einhver
besta torftekja á landinu.
Síðustu árin átti Raggi með
þeirri sómakonu Björgu Baldurs-
dóttur frá Vigur í Ísafjarðardjúpi
og hefðu þau ár mátt vera svo
miklu fleiri. Björgu og börnun-
um, Finnu Guðrúnu, Rögnu Mar-
íu og Valgarði, sem og þeirra fjöl-
skyldum, sendi ég mínar dýpstu
samúðarkveðjur. Ég veit að trúin
er þeim styrkur í sorginni og er
það vel.
Að lokum:
Við Raggi vorum samhent í
búskapnum, töldum það ekki eft-
ir okkur að vinna flestar vökustu-
ndir og fannst það gaman – það
var inntak okkar daga og svona
vil ég minnast okkar tíma saman:
Að vera bóndi ó, guð minn góður!
í grænu fanginu á sinni móður
og finna ljós hennar leika um sig
og lyfta sálinni á hærra stig!
Og bónda hitnar í hjartans inni
við helgan ilminn frá töðu sinni,
og stráin skína í skeggi hans
sem skáldleg gleði hins fyrsta manns.
—
Og sumardagarnir faðma fjöllin
og fljúga niður á þerrivöllinn,
og stíga syngjandi sólskinsdans
við sveittan bóndann og konu hans.
(Jóhannes úr Kötlum)
Anna Margrét Stefánsdóttir.
Ragnar
Gunnlaugsson
Fleiri minningargreinar
um Ragnar Gunnlaugs-
son bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
✝ Sólveig GyðaGuðmunds-
dóttir fæddist 17.
júlí 1946 í Reykja-
vík. Hún lést á
líknardeild Land-
spítalans í Kópa-
vogi 30. desember
2019. Foreldrar
hennar voru Sig-
rún Klara Har-
aldsdóttir, f. 3. júlí
1927, og Karl
Ingimarsson, f. 20. september
1925.
Sólveig giftist Gunnari
Ólafssyni 16. des-
ember 1978. Sam-
an áttu þau tvö
börn; Ingu Maríu,
f. 5. desember
1979, og Gunnar
Óla, f. 11. maí
1984. Sólveig átti
úr fyrra sambandi
Guðmund Frey, f.
27. janúar 1974,
og gekk Gunnar
honum í föðurstað.
Sólveig verður jarðsungin
frá Árbæjarkirkju í dag, 10.
janúar 2020, klukkan 13.
Elskuleg systir og mágkona,
Sólveig Gyða, er látin 73 ára að
aldri. Sólveig kom inn í fjöl-
skyldu okkar þriggja ára gömul,
ættleidd af foreldrum Ásgeirs,
Ragnhildi Ólafsdóttur og Guð-
mundi Jónssyni, skólastjóra á
Hvanneyri. Sólveig var mikið
óskabarn en fyrir áttu hjónin
þrjá uppkomna syni á aldrinum
16-22 ára sem allir voru komnir í
framhaldsnám í Reykjavík. Sam-
skipti við litlu systurina voru því
ekki mikil á uppvaxtarárum
hennar, aðallega gafst tími til
samveru á sumrin og í fríum.
Þetta breyttist eftir að foreld-
ar Ásgeirs fluttu til Reykjavíkur
árið 1972 og Sólveig eignaðist sitt
fyrsta barn, Guðmund Frey
Magnús, árið 1974. Þegar börn
koma til sögunnar minnkar ald-
ursbil systkina og foreldra, nánd-
in og samskiptin eflast. Fjórum
árum síðar giftist Sólveig yndis-
legum manni, Gunnari Ólafssyni.
Ungu hjónin komu sér upp fal-
legu heimili í Keilufelli í Breið-
holti. Þau eignuðust þrjú börn
fyrir utan Guðmund Frey, Ingu
Maríu 1979, Sigrúnu Klöru 1982,
en hún lést nokkurra daga göm-
ul, og Gunnar Óla 1984. Öll hlutu
þau gott uppeldi og menntun og
eiga í dag frábærar fjölskyldur.
Við dáðumst oft að Sólveigu fyrir
dugnað hennar því oft var hún
ein með börnin vegna fjarveru
Gunnars sem starfaði sem vél-
stjóri fyrir Eimskip í siglingum
milli landa. Auk þess menntaði
hún sig og starfaði við blóma-
skreytingar á þessum árum.
Gunnar veiktist skyndilega í sigl-
ingu til lands. Við skoðun reynd-
ist hann vera með bráðahvít-
blæði. Hann lést eftir harða
baráttu árið 2012. Í veikindum
Gunnars sýndi Sólveig mikið
þrek og æðruleysi, studdi hann
m.a. í langan tíma í Svíþjóð þar
sem hann fór í mergskipti. Við
hjónin höfðum töluverð sam-
skipti við Sólveigu og Gunnar eft-
ir að þau keyptu sumarbústað við
Laugarvatn rétt hjá okkar bú-
stað. Þar áttu Sigurður bróðir og
Laufey einnig bústað. Áttum við
margar góðar og eftirminnilegar
samverustundir í bústöðum okk-
ar við veislumat og spjall.
Um ári eftir lát Gunnars flutti
Sólveig í íbúð eldri borgara í
Árbæ þar sem hún kom sér upp
fallegu heimili. Þar áttum við
saman yndislega stund stuttu
fyrir andlátið. Um nokkurn tíma
hafði Sólveig fundið fyrir tals-
verðum lasleika en Þrátt fyrir
læknaheimsóknir greindist hún
ekki með krabbamein fyrr en síð-
astliðið haust.
Var hún þá langt gengin með
þennan erfiða sjúkdóm og gerði
sér grein fyrir hvert stefndi. Í
veikindum sínum sýndi Sólveig
sem fyrr kraft sinn og æðruleysi
og naut stuðnings fjölskyldu
sinnar þar til yfir lauk. Hennar
verður sárt saknað af fjölskyldu
og vinum. Við og fjölskyldur okk-
ar vottum börnum Sólveigar
innilega samúð.
Ásgeir og Sigríður.
Sólveig Gyða
Guðmundsdóttir