Morgunblaðið - 10.01.2020, Qupperneq 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2020
✝ Jaap Schröderfæddist í Amst-
erdam 31. desem-
ber 1925. Jaap lést
í Amsterdam 1.
janúar 2020. Hann
nam fiðluleik í Par-
ís, hjá Calvet og
Pasquier við École
Jacques Thibaud,
og tónlistarfræði
við Sorbonne-
háskóla. Eftir tæp-
lega tveggja áratuga starf með
Hollenska strengjakvartettinum
hóf Jaap að einbeita sér að
spurningum um hljóm og stíl í
flutningsmáta tónlistar 17. og
18. aldar með hljóðfærum þess
tíma og var hann einn fremsti
frumkvöðull þeirrar hreyf-
ingar. Jaap starfaði m.a. með
Concerto Amsterdam, Quar-
tengslum við Sumartónleika í
Skálholti kom hann oft fram á
tónleikum víðar á Íslandi, m.a.
nokkrum sinnum í dómkirkj-
unni á Hólum. Jaap gaf Skál-
holtsstað drjúgan hlut af sínu
mikla bóka- og nótnasafni. Út-
gefnar plötur með leik Jaaps
eru yfir 150 talsins. Á Íslandi
gaf Smekkleysa út nokkra
geisladiska hans, bæði einleik
og með Bachsveitinni og Skál-
holtskvartettinum auk diska
með fiðlu- og sembalsónötunum
fyrrnefndu. Jaap hlaut fálka-
orðuna árið 2001 fyrir störf í
þágu tónlistarlífs á Íslandi. Eig-
inkona Jaaps, Agnes, sem var
barnalæknir, kom með honum í
Íslandsferðirnar á meðan henn-
ar naut við, en hún lést fyrir
nokkrum árum. Þau eignuðust
þrjár dætur, Laurence, Marion
og Cécile.
Útför hans og sálumessa fer
fram í Méreau í Frakklandi í
dag, 10. janúar 2020.
tetto Esterhazy og
Smithsonian String
Quartet. Jaap var
einnig kennari
m.a. við Schola
cantorum bas-
ilienses og Yale-
háskóla. Árið 1993
tók hann að sér
leiðarahlutverk
með Bachsveitinni
í Skálholti og
nokkrum árum síð-
ar stofnaði hann Skálholts-
kvartettinn sem hann leiddi í
tvo áratugi, en síðustu tón-
leikar kvartettsins voru í Skál-
holti sumarið 2015. Jaap lék
einnig reglulega einleik á Sum-
artónleikum í Skálholti, m.a.
allar sónötur J.S. Bachs með
Helgu Ingólfsdóttur semballeik-
ara. Auk starfa sinna í
Það var mikið gæfuspor þegar
ég þekktist boð Helgu Ingólfs-
dóttur, semballeikara og stofn-
anda Sumartónleika í Skálholts-
kirkju, um að taka þátt í að flytja
strengjakvartettana Sjö orð
Krists á krossinum eftir Joseph
Haydn í Skálholti með Jaap
Schröder sumarið 1996. Hann
var þá sjötugur og hefði það get-
að orðið með síðustu tækifær-
unum til að spila með þessum
mikla meistara. En það reyndist
öðru nær. Það varð aðeins byrj-
unin á ævintýri sem stóð í tvo
áratugi. Auk árlegra tónleika og
hljóðritana á Sumartónleikum í
Skálholti ferðuðumst við saman
víðs vegar um heiminn með
Skálholtskvartettinum, stundum
nokkrum sinnum á ári, í sam-
starfi við tónlistarfrömuði sem
Jaap hafði áður unnið með. Oft
var Stefanía konan mín og börn-
in okkar með í för, þannig að við
fengum öll að kynnast Jaap og
njóta samvista við þennan ein-
staka persónuleika. Fyrir hljóð-
færaleikara eins og mig sem var
frekar stutt kominn á ferlinum
var það augljóslega einstakt lær-
dómsferli að fá að njóta reynslu
Jaaps og vinna með honum að
tónleikahaldi og hljóðritunum af
þeirri stærðargráðu sem úr varð.
Jaap var óþrjótandi uppspretta
fróðleiks, húmors og lífsgleði.
Örlæti Jaaps var takmarkalaust,
og ástríða hans fyrir því að miðla
þekkingu sinni var hrífandi. Ís-
lenskt tónlistarfólk og tónlistar-
líf hlaut ríflegan skerf af þeirri
auðlind. Hann var agaður og
skipulagður og var alltaf kominn
nokkrum skrefum á undan hin-
um, búinn að kryfja allt til
mergjar í því sem verið var að
vinna að hverju sinni og þar að
auki streymdu óhindrað frá hon-
um nýjar hugmyndir að framtíð-
arverkefnum sem héldu áfram
að verða að veruleika fram á ní-
ræðisaldur. Hann var einstök
fyrirmynd. Ekki aðeins í tónlist-
arlegu tilliti heldur á allan hátt
sem manneskja og kær vinur.
Samband hans og Agnesar eig-
inkonu hans var einstaklega ná-
ið. Á meðan hennar naut við kom
hún oftast með honum í Skálholt.
Ég og fjölskylda mín þökkum
Jaap Schröder fyrir ómetanlega
og ógleymanlega vináttu og
tryggð.
Sigurður Halldórsson.
Í dag verður Jaap Schröder
fiðluleikari, kær vinur og læri-
meistari, lagður til hinstu hvílu í
kirkjugarði St. Martin í Méreau í
Frakklandi. Hann náði 94 ára
aldri á gamlársdag 2019 og lést á
nýársdag 2020. Méreau er lítið
sveitaþorp í Cher-héraði í
Frakklandi, um 220 km suður af
París. Eiginkona Jaaps, Agnes,
lést fyrir nokkrum árum, en fjöl-
skylda hennar hafði átt kastal-
ann Les Murs í nágrenni Mé-
reau frá því eftir byltinguna
1789. Þau Agnes og Jaap tóku
við herragarðinum að foreldrum
Agnesar látnum og dvöldust þar
á sumrin. Auk ótrúlegra vistar-
vera eru þarna varðturnar, síki í
kringum varnarveggina, dúfna-
hús mikið og úr stóru eikartré
hangir róla.
Það var mér mikið lán að
kynnast þeim heiðurshjónum Ja-
ap og Agnesi í Skálholti um
miðjan tíunda áratug síðustu
aldar. Jaap var þar kominn til að
leiðbeina okkur í leik á barokk-
hljóðfæri og varð strax okkar
mentor, fyrst í barokktónlist og
síðar í tónlist klassíska tímabils-
ins eftir að hann stofnaði Skál-
holtskvartettinn 1997 með okkur
Svövu Bernharðsdóttur og Sig-
urði Halldórssyni. Jaap var einn
þekktasti fiðluleikari heims í leik
á upprunahljóðfæri og hafði leitt
hljómsveitir og strengjakvar-
tetta um áratugaskeið. Þegar um
hægðist hjá honum tók hann ást-
fóstri við Ísland og dvöldu þau
hjónin í Skálholti á hverju sumri
í um tvo áratugi. Jaap leiddi og
leiðbeindi Barokksveitinni í
Skálholti, lék einleik, lék með
Skálholtskvartettnum og verkin
voru mörg tekin upp til útgáfu.
Á 25 ára afmæli Kammer-
sveitar Reykjavíkur 2008-9 flutti
Jaap með Kammersveitinni alla
Brandenborgarkonserta Bachs
sem einnig voru teknir upp og
gefnir út hjá Smekkleysu. Fékk
sú útgáfa einróma lof í íslenskum
blöðum og erlendum tímaritum
og hlaut Kammersveitin Ís-
lensku tónlistarverðlaunin 2013
fyrir útgáfuna.
Um alla Evrópu og víða í
Bandaríkjunum átti Jaap góða
vini sem opnuðu okkur Skál-
holtskvartettnum dyr að glæst-
um sölum og fögrum kirkjum
þegar Jaap langaði að koma og
leika Schubert, Mozart og Ha-
ydn. Þessar ferðir okkar á næst-
um hverju sumri í 10 ár voru oft-
ast undirbúnar í vikulangri dvöl í
Les Murs. Gjarnan var það í
byrjun vors og er ógleymanlegt
að hafa dvalið með þeim hjónum
þar. Ég hafði yndi af að aka á
frönsku sveitavegunum og
bauðst til að kaupa inn og bætti
þá gjarnan við vorboðanum beg-
óníu handa Agnesi fyrir blóma-
pottana útivið. Agnes kunni því
vel þegar einhverjir voru með
sem töluðu frönsku og var ein-
staklega gaman að spreyta sig á
heimspekilegum samræðum við
hana.
Ferðirnar með Skálholtskvar-
tettnum tóku okkur víða, til Lu-
bliana, í Esterhazy-höllina í
Ungverjalandi, til Napoli og
Capri, Mallorca, allt í kringum
Méreau, til Norðvestur-Frakk-
lands, í frönsku Alpana, víða um
Holland og til Boston og New
Haven í Bandaríkjunum. Í Skál-
holti dvöldum við vikum saman
hvert sumar við tónleikahald og
upptökur. Jaap var það kapps-
mál að ná að taka upp sem mest
af kammermúsík Schuberts. Í
þeirri útgáfu spilum við
strengjakvartettana og strengja-
kvintettinn þekkta með honum.
Blessuð sé minning Agnesar
og Jaaps Schröder.
Rut Ingólfsdóttir
Það var mikil gæfa fyrir konu
mína sálugu, Helgu Ingólfsdótt-
ur semballeikara, þegar hinn
virti fiðluleikari Jaap Schröder
gerðist liðsmaður Sumartón-
leikanna í Skálholtskirkju fyrir
nær aldarfjórðungi. Þátttaka
hans við uppbyggingu Bach-
sveitarinnar í Skálholti og Ská-
holtskvartettsins var mikil
hvatning fyrir þessa tónlistarhá-
tíð Helgu. Einn af hápunktunum
á ferli hennar var samleikur
þeirra Jaaps á öllum sex són-
ötum Bachs fyrir fiðlu og semb-
al, sem þau fluttu tvisvar í heild í
Skálholti og var síðan gefinn út á
hljómdiskum.
Jaap og kona hans Agnes
unnu Skálholti, kirkjunni, staðn-
um og fjallahringnum. Jaap, sem
var iðinn myndasmiður, fór oft á
kreik um miðja nótt til að fanga
húm sumarnæturinnar á filmu.
Á Sumartónleikunum gistu þau í
Skálholtsskóla. Agnes lagði ríka
áherslu á að hún gæti alltaf haft
kirkjuna fyrir augunum hvar
sem hún var í skólahúsinu.
Jaap Schröder var ekki aðeins
mikill tónlistarmaður og tónlist-
arfræðingur heldur líka baráttu-
maður fyrir mannréttindum,
frelsi og lýðræði. Þetta endur-
speglaðist í bókasafni hans, en
drjúgan hlut þess gaf hann Skál-
holtsstað. M.a. lagði hann sig eft-
ir að safna ritum Thomasar Jef-
fersons, þriðja forseta Banda-
ríkjanna, sem Jaap taldi einn
ötulasta talsmann þeirra gilda
sem hann mat hvað mest. Vissi
hann þó vel að Jefferson var
ekki við eina fjölina felldur í
þeim efnum enda tvístígandi í af-
stöðu sinni til þrælahalds. Jef-
ferson var líka frumkvöðull á
sviði kosningafræða, svo þannig
mættust áhugamál okkar
beggja.
Ég minnist Jaaps Schröders
fyrir tónlistina, manngæskuna
og vináttuna við okkur, konu
mína sálugu og mig. Blessuð sé
minning hans.
Þorkell Helgason
Það var örlagaríkt þegar ég
ákvað að bregða mér á „master-
class“ í Juilliard þegar ég var
þar í námi. Þar kenndi Hollend-
ingurinn Jaap Schröder, sér-
fræðingur á barokkfiðlu og
frumkvöðull í upprunaflutningi,
þ.e. að spila tónlist frá barokk-
og klassíska tímanum á hljóðfæri
og með aðferðum þeirra tíma.
Þetta var á miðri Manhattan í
New York, þar sem alltaf er ys
og þys, fólk á þönum, neðanjarð-
arlestir á fleygiferð og í skól-
anum var oft viðkvæðið: „Ég get
spilað þetta hraðar og sterkar en
þið!“ Að koma inn í salinn og
hlusta á Jaap kenna og spila tón-
list með allt öðru viðhorfi og tón-
myndun var eins og að finna vin í
eyðimörkinni. Eða eins og hann
sagði: „Barokktónlist byrjar út
frá þögn, vex í boga og endar svo
í þögn.“ Kyrrðin sem fylgdi var
önnur en sú sem maður átti að
venjast í spennuvæðingu nútíma-
hljóðfæra. Ég gaf mig á tal við
hann og úr varð að ég skráði mig
í nám í Schola Cantorum Bas-
iliensis í Basel í Sviss, skóla sem
sérhæfir sig í upprunaflutningi,
en þar kenndi Jaap.
Helga Ingólfsdóttir, sembal-
leikari og stofnandi Sumartón-
leika í Skálholti, hafði samband
og hafði áhuga á að fá Jaap til
Íslands til að leiða Bachsveitina í
Skálholti. Úr varð áratuga sam-
starf. Jaap og konan hans Agnes
hrifust af Íslandi, komu hér eins
oft og þau gátu og eignuðust
marga vini. Skálholtsstaður tal-
aði til þeirra og að lokum gaf Ja-
ap Skálholti nótnasafn sitt og
bókasafn, afrakstur áratuga
rannsóknarvinnu. Þeir voru ófáir
tónleikarnir og upptökurnar sem
Jaap lék með Bachsveitinni,
einnig lék hann með Helgu Ing-
ólfsdóttur og sumarið 1998 stofn-
uðum við Skálholtskvartettinn
sem var ásamt honum skipaður
Rut Ingólfsdóttur, Sigurði Hall-
dórssyni og undirritaðri. Nú tók
við langt og spennandi ferðalag í
gegnum kvartettbókmenntirnar
undir leiðsögn manns sem hafði
helgað líf sitt kvartettum og tón-
list frá klassíska tímabilinu.
Kunnátta hans, innsæi og
reynsla var dýrmæt. Hann hafði
mikla yfirsýn og vann verkin
gjarnan í löngum köflum án þess
að hökta í smábútum. Túlkunin
hafði flæði, dýpt og fegurð.
Jaap hélt mikið upp á Joseph
Haydn og ógleymanlegt var þeg-
ar okkur hlotnaðist tækifæri til
að spila í Esterhazy-höllinni í
Ungverjalandi - eins og Haydn.
Jaap hafði mikið tengslanet enda
átti hann langan og góðan feril
sem tónlistarmaður um allan
heim.
Þess nutum við og fengum að
spila á hátíðum í ýmsum Evr-
ópulöndum og Bandaríkjunum
og taka upp geisladiska, m.a.
með Haydn- og Schubert-kvart-
ettum. Einnig var dásamlegt að
dvelja í miðaldahöll þeirra hjóna
í Frakklandi í æfingabúðum. Þá
sátum við gjarnan úti í garði yfir
kvöldmatnum við dúfuturninn og
hlustuðum á sögur Jaaps af
þekktu tónlistarfólki sem hann
hafði starfað með eða spaugileg-
um atvikum, sem hann hafði
næmt auga fyrir. Jaap var
herramaður af gamla skólanum,
víðförull og fróður, ljúfur með
glettni í auga. Í sumar var hann
heiðraður fyrir framlag sitt sem
barokkfiðluleikari á Utrecht-tón-
listarhátíðinni.
Hafðu þökk, hvíl í friði.
Svava Bernharðsdóttir.
Jaap Schröder
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Minningargreinar
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
RÚRIKS NEVELS SUMARLIÐASONAR
húsgagnasmiðs,
Vogatungu 33, Kópavogi.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á lungnadeild Landspítalans í
Fossvogi fyrir góða umönnun, virðingu og hlýju.
Megi árið 2020 færa ykkur öllum gæfu, gleði og góðar stundir.
Guðlaug Björnsdóttir
María Rúriksdóttir Hilmar A. Alfreðsson
Helena Rúriksdóttir Jón Pétur Kristjánsson
Hulda Rúriksdóttir Lárus Finnbogason
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐFINNA HELGADÓTTIR,
lést 26. desember á
hjúkrunarheimilinu Skjóli. Útförin fer fram
frá Fossvogskirkju í dag, 10. janúar, klukkan
11. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vilja
minnast hinnar látnu er bent á Blindrafélagið.
Edda Sigurgeirsdóttir Þórður Kristinsson
Helgi Sigurgeirsson Gerður Garðarsdóttir
Svanberg Sigurgeirsson Rannveig Ása Reynisdóttir
Gunnar Guðjónsson
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
BÁRA EGILSDÓTTIR,
lést fimmtudaginn 27. desember.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Bjarni Ólafur Bjarnason Gyða Einarsdóttir
Egill Kristján Bjarnason Elfa Rún Antonsdóttir
Hrafnhildur Bjarnadóttir Þröstur Sævar Steinarsson
Jón Guðbjörn Bjarnason Signý Sigurðardóttir
Sævar Bjarnason Hulda Saga Sigurðardóttir
Guðfinnur Stefánsson Linda Kristjánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÚLÍUS GESTSSON
rafvirkjameistari,
lést miðvikudaginn 8. janúar.
Útförin auglýst síðar.
Halldóra Guðmundsdóttir
Jón Júlíusson
Sigríður S. Júlíusdóttir
Helga Júlíusdóttir Arnfinnur Róbert Einarsson
Bjarni Júlíusson Þórdís Klara Bridde
Hrönn Júlíusdóttir Ársæll Hreiðarsson
Sigríður Rut Júlíusdóttir Hjalti Már Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
GUÐLAUGS VALDIMARS
EIRÍKSSONAR
trésmiðs,
Núpalind 2.
Einnig þökkum við starfsfólki Hrafnistu,
Boðaþingi fyrir góða umönnun.
Þórey Björnsdóttir
börn, tengdabörn
barnabörn og langafabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
VILBORG VILMUNDARDÓTTIR,
lést sunnudaginn 5. janúar.
Útförin fer fram frá Garðakirkju
miðvikudaginn 15. janúar klukkan 13.
Vilmundur Þorsteinsson Bjarney J. Sigurleifsdóttir
Gísli Þorsteinsson Jólanta Þorsteinsson
Hrefna Björg Þorsteinsdóttir Guðmundur Löve
Þorbjörg St. Þorsteinsdóttir Aðalbjörn Þórólfsson
barnabörn og barnabarnabörn