Morgunblaðið - 10.01.2020, Qupperneq 33
smiður og tæknimaður hjá Þjóðleik-
húsinu.
Synir Sverris og Elínar eru 1) Ívar
Örn Sverrisson, f. 7.2. 1977, leikari og
leikstjóri í Osló. Börn hans með Örnu
Ösp Guðbrandsdóttur, arkitekt og fv.
maka, eru Arngrímur Ívarsson, f. 6.9.
2003, og Eyrún Sara Ívarsdóttir, f.
21.6. 2007; 2) Daði Sverrisson, f. 9.12.
1978, umhverfishagfræðingur og pí-
anóleikari, starfar hjá Landsvirkjun.
Maki: Eyrún Edda Hjörleifsdóttir,
kvikari og þýðandi. Börn þeirra eru
Sólrún Eldjárn Daðadóttir, f. 17.10.
2012, og Arnaldur Eldjárn Daðason, f.
12.1. 2017.
Systkini Sverris sammæðra eru
Sigríður Sigurðardóttir, f. 20.8.
1942, fv. handboltastjarna; og Svan-
hildur Sigurðardóttir, f. 12.7. 1944,
danskennari hjá Dansskóla Heiðars
Ástvaldssonar. Systir Sverris sam-
feðra er Sigríður Hansborg Lílý
Guðjónsdóttir, f. 22.6. 1944, býr á
Akranesi og starfaði á skrifstofu
Tónlistarskólans.
Foreldrar Sverris voru Guðjón
Matthíasson, f. 30.4. 1919, d. 14.12.
2003, harmonikkuleikari og hljóm-
sveitarstjóri, og Jakobína Guðríður
Guðmundsdóttir, f. 19.6. 1910, d. 2.3.
1985, verkakona og húsmóðir. Þau
voru í sambúð og bjuggu í Reykja-
vík.
Sverrir
Guðjónsson
Guðrún Pálsdóttir
húsfreyja í Sviðugörðum, f. í Gaulverjabæ í Flóa
Bjarni Þorvarðarson
bóndi í Sviðugörðum í
Flóa, f. í Sviðugörðum
Sigríður Bjarnadóttir
húsfreyja á Læk
Jakobína Guðríður Guðmundsdóttir
verkakona og húsmóðir í Reykjavík
Guðmundur Snorrason
bóndi, vegaverkstjóri og
oddviti á Læk í Flóa
Hólmfríður Eiríksdóttir
húsfreyja á Læk, f. á
Kílhrauni á Skeiðum
Snorri Þórarinsson
bóndi á Læk, f. í Þorleifskoti í Flóa
Elín Pálsdóttir húsfreyja í
Syðri-Gegnishólum í Flóa
Davíð Jónsson
lögregluþjónn og
bifreiðarstj. í Rvík
Davíð Davíðsson prófessor
í lífefnafræði og yfi rlæknir
rannsóknard. Landspítalans
Þórheiður (Heiða)
Kristjánsdóttir snyrtifr.
og kaupmaður í Kefl avík
Jón Ólafsson
vatnsframleiðandi og
stofnandi Skífunnar
Kristján Guðjón Jónsson
skósmiður á Akranesi og
í Kefl avík
Ásgerður Vigfúsdóttir
húsfreyja í Einarslóni, f. í
Pétursbúð á Arnarstapa
Jón Ólafsson
bóndi og skáld í Einarslóni í Breiðuvík, f. á Vætuökrum við Hellnar
Hansborg V. Jónsdóttir
húsfreyja á Hellissandi og í Rvík
Matthías Þorsteinn Björnsson
sjómaður í Hafnarfi rði
Gunnhildur Bjarnadóttir
húsfreyja í Sigguseli og í
Hafnarfi rði, f. á Borg á Mýrum
Björn Jónsson
bóndi og söðlasmiður í Sigguseli og innheimtumaður
í Hafnarfi rði, f. í Mýrartungu í Reykhólasveit
Úr frændgarði Sverris Guðjónssonar
Guðjón Matthíasson
harmonikkuleikari og
hljómsveitarstjóri í Rvík
DÆGRADVÖL 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2020
B Æ J A R L I N D 1 4 - 1 6 2 0 1 K Ó P AV O G U R S Í M I 5 5 3 7 1 0 0 L I N A N . I S
O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6
recast svefnsóf i kr . 149 .900
nú kr. 127.415
Janúarútsala
10 - 50% afslát tur af öllum vörum
„ÉG SKIL ÞETTA VEL. ÞÚ ERT UNGUR,
GÁFAÐUR, VEL MENNTAÐUR OG
ATVINNULAUS. ÞÉR LÁIST EKKI AÐ VERA
REIÐUR.”
„ÞÚ HELLTIR SJÓÐANDI OLÍU YFIR
GLUGGAHREINSIMANNINN!”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að láta hann um að
grilla.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
MJÁ…MJÁ…MJÁ…MJÁ…MJÁ…MJÁ…
MJÁ…
ÞETTA ER
MINN
ÞÖGN!
ÉG ÆTLA AÐ
TAKA ÞESSAR,
TAKK …
ÉG HÉLT AÐ ÞÚ VÆRIR
ÓLÆS!
ÉG ER ÞAÐ MIG VANTAR ELDIVIÐ!BÓKA-
SAFN
Eins og veðurhamurinn var áþriðjudagskvöld leið mér vel
að sitja við gluggann, hlusta á vind-
inn og blaða í ljóðabókum. Fyrst
festi ég mig við Svörtuloft Guð-
mundar á Sandi:
Lítur, þegar um sollinn sjá
syngur í bylgjuhvoftum,
inn í heima opna tvá
undir Svörtuloftum.
Faðir minn gaf mér ungum Ill-
gresi og síðan hefur Örn Arnarson
verið eitt af mínum skáldum:
Nepjan þennan næðingsdag
nísti inn að beini.
Sit ég eftir sólarlag
sunnan undir steini.
„Veðuruggur“ heitir eitt kvæða
Arnar og mætti á nútímamáli heita
„gul eða rauðgul veðurviðvörun“.
Kvæðinu lýkur svo:
Ömurlegum ómi í dag
ymur símaþráður.
Sama rómi sama lag
söng hann löngum áður.
Nú er engum hugarhægð
að horfa út um glugga.
Jökulbunga, frosti fægð,
felst í veðurskugga.
Himinninn er í hálfa gátt.
Heyrist þökum riðið.
Skýjatröll úr austurátt
æða fram á sviðið.
Nú er öllum djöflum dátt.
Dregur af mönnum gaman.
Himinglæva og austanátt
ætla að dansa saman.
Uggir mig um allra hag,
sem eiga mök við græði.
Stormurinn kaldi líksöngslag
leikur á símaþræði.
Halla Eyjólfsdóttir orti og kallaði
„Tækifærisvísur“:
Þó að blási móti mér
má ég vel því una;
storminn lægir, bátinn ber
beint í lendinguna.
Þó að ill og ósvífin
óhöpp sýnist voði,
eru þau sem óveðrin
aðeins vorsins boði.
Kristján Fjallaskáld orti þegar
hann frétti trúlofun Sveins kaup-
manns Guðmundsens og Kristínar
Siemsen:
Sveinn á Búðum fái fjúk,
fékk hann hana Stínu,
öndin spriklar öfundsjúk
innan í brjósti mínu.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Undir Svörtuloftum
og veðuruggur