Morgunblaðið - 10.01.2020, Síða 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2020
ICQC 2020-2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
LOKAKAFLINN Í SKYWALKER SÖGUNNI
F ROM T HE D I R E C TOR OF S K Y FA L L
TILNEFNINGAR TIL
BAFTA VERÐLAUNA9
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Mér finnst gott að ofhugsa verkin
ekki, heldur byrja bara á þeim og
láta þau fæðast án þess að ég viti
hvað eigi að gerast. Ef ég hugsa of
mikið um það þá geta þau hreinlega
dáið,“ segir myndlistarmaðurinn
Helgi Þórsson um verkin sín. Við
ræðum saman þar sem hann er að
setja upp sýningu í menningarhús-
inu Gerðubergi í Breiðholti, sýningu
sem hann kallar Á ystu nöf. Hún
verður opnuð á morgun, laugardag,
klukkan 15 og á henni verða verk
sem Helgi hefur skapað á síðustu
tveimur til þremur árum, hér á landi
en einkum í Belgíu þar sem hann var
búsettur undanfarin ár, þar til hann
flutti heim á dögunum með allt sitt
hafurtask.
Helgi nam myndlist í Hollandi og
lauk BA-gráðu í myndlist við Gerrit
Rietveld Academie árið 2002, síðan
MA-gráðu við Sandberg Institut í
sama landi tveimur árum síðar.
Myndverk hans, bæði málverk og
skúlptúrar, hafa lengi vakið eftirtekt
og lukku, þau eru oft skrautleg og
mótuð af frumlegri leikgleði.
Splunkuný og smjattpattar
Heiti sýningarinnar er vissulega
dramatískt, Á ystu nöf. Helgi segist
upphaflega ætlað að hafa sýninguna
án titils en svo hafi þessi kviknað út
frá stöðu karaktera sem sjá má á
tveimur málverkanna, en þeir
standa yst á klettabrún. Og Helgi
segist hafa verið upptekinn undan-
farið við flutninginn heim og hafi því
ekki náð að mála jafn mikið af nýjum
verkum fyrir sýninguna og hann
ætlaði. „Ég náði bara að vinna í
svona fimm daga hér heima fyrir
sýninguna, nýjustu verkin eru frá
síðustu dögum.
Svo sagði ég fólkinu hér í húsinu
að ég ætlaði að gera líka ný verk í
járn svo ég verð að byrja á því á eft-
ir,“ segir hann brosandi og mun bara
hafa einn dag til þess.
Helgi segist gjarnan vilja eyða
góðum tíma í verkin sín. En það
kemur viss hráleiki í þau þegar hann
flýtir sér og auðheyrilega kann hann
vel að meta það.
„Þess vegna hentar mér best að
nota efni sem hægt er að vinna hratt
í. Ég get til dæmis ekki notað olíu-
málningu, það truflar mig hvað hún
er lengi að þorna.“
Hann er ekki verkkvíðinn?
„Ég bíð oft fram á síðustu stundu
með að klára verk. Ég vinn oft hratt
þegar ég þarf en tek mér líka frí á
milli. Mér finnst þá meira gerast hjá
mér en þegar ég er eitthvað að
rembast á vinnustofunni. Bestu hug-
myndirnar koma þegar ég er að
hugsa um eitthvað allt annað.“
En hvaða hugmyndir eru það sem
sjást í þessum nýju verkum?
„Þessi málverk hér spretta aðal-
lega út frá teikningum sem ég gerði í
fyrra. Á mörgum þeirra eru ein-
hverskonar smjattpattar,“ segir
hann og bendir á málverk sem bíða
upphengingar en á þeim eru fígúrur
sem minna óneitanlega á það per-
sónugerða grænmeti sem sást fyrir
einhverjum áratugum í sjónvarps-
þáttum um svokallaða smjattpatta.
„En það er margt hér í bland,“
bætir hann við og bendir á önnur
málverk með fígúrum sem hann seg-
ist líta á sem einskonar gerla.
Helgi fer svo að tína alls kyns
skúlptúra úr kassa og raðar í kring-
um sig. Þar á meðal eru tveir haus-
ar, karl og kona. „Ég ætlaði fyrst að
gera þá vel og hafa þá mjög raunsæ-
islega en það hentaði bara ekki. Þeir
urðu of andstyggilegir við það.“
„Ég bíð oft fram á síðustu
stundu með að klára verk“
Myndlistarmaðurinn Helgi Þórsson opnar sýningu í Gerðubergi á morgun
Morgunblaðið/Einar Falur
Par Helgi Þórsson hampar við uppsetningu sýningarinnar í Gerðubergi skötuhjúum sem hann sýndi nýverið í Belgíu.
Sýningin Saga Ilkka Juhani, með
verkum eftir finnska myndlistar-
manninn Ilkka Juhani Takalo-
Eskola, verður opnuð í Ganginum,
heimagalleríi Helga Þorgils Frið-
jónssonar myndlistarmanns, í
Brautarholti 8, annarri hæð, klukk-
an 17 til 19 í dag, föstudag. Allir
eru velkomnir.
Takalo-Eskola fæddist árið 1937.
Auk þess að vera virtur myndlistar-
maður hefur hann komið að
kennslu finnskra listamanna í ára-
tugi en hann var um tíma prófessor
og yfir myndlistardeild Lista-
háskóla Helsinkiborgar. Á þeim
tíma stofnaði hann „akademíu fyrir
sauna, smóking, mýrarlíkamsmáln-
ingu og performans“ ásamt
samprófessor við skúlptúrdeild
Listaháskólans, Radoslaw Gryta.
Takalo-Eskola hefur verið fulltrúi
Finna á Feneyjatvíæringnum og
Tvíæringnum í Sydney.
Verk eftir Takalo-Eskola voru
sýnd nokkrum sinnum hér á landi á
árum áður en á sýningunni í Gang-
inum er fjöldi svokallaðra „mýrar-
málverka“ hans, teikningar og ljós-
myndaprent af ýmsu tagi, af
gjörningum hans og öðru.
Fjölbreytileg Hluti verkanna eftir Ilka Juh-
ani Takalo-Eskola á sýningunni í Gangi.
Verk eftir Takalo-
Eskola í Ganginum