Morgunblaðið - 10.01.2020, Side 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2020
Ást og kærleikur eru helstuyrkisefnin í þriðju ljóðabókEyrúnar Óskar Jóns-dóttur, Mamma, má ég
segja þér? En kærleikanum getur
verið misskipt eins og sést í einu
fyrstu ljóða bókarinnar. Þar situr
Anna Frank efst í klifurgrind á tóm-
um leikvelli í Innri-Njarðvík, krækir
fótunum um rimlana og lætur sig
hanga á hvolfi:
Heimurinn er hvort sem er
iðulega á hvolfi
svo óskiljanlega
á röngunni.
Í afbakaðri veröld
þar sem upp snýr niður
og niður snýr upp
og þeir sem eiga að hjálpa
valda skaða
hafnar Útlendingastofnun
umsókn hennar um hæli
[…]
Anna virðist frjáls þar sem hún
hangir ósnertanleg í loftinu í ljóði Ey-
rúnar en síðar segir:
Árla morguns
í fjólubleikri maíbirtu
bankar lögreglan upp á
og vísar kærleikanum úr landi.
Á Miðnesheiði
syngur lóan inn sumarið
vorboðinn ljúfi
nánast helgur í augum landans
á meðan enn eitt barn á flótta
er rekið út í dauðann.
Eyrún Ósk hefur hlotið athygli fyr-
ir fyrri bækur sínar en hún hlaut
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guð-
mundssonar fyrir Góðfúslegt leyfi til
sígarettukaupa (2016). Texti ljóða
hennar er iðulega tær og afslapp-
aður, laus við að vera uppskrúfaður,
og hún fer vel með myndir, eins og í
þessu ljóði þar sem tært íslenskt vor
er í hrópandi andstöðu við framkom-
una gagnvart
barninu Önnu
Frank, sem er
táknmynd allra
þeirra barna sem
misrétti eru beitt.
Ljóðmæland-
anum er misboðið
hér en í fyrsta
hluta bókarinnar
af þremur, „Stríð, friður og skæru-
velgjörðir“, er fjallað um grimm al-
heimsmál. Í öðru ljóði þar er lífið veg-
samað en „fólk deyr á landamærum /
og við sofum / loftslagsbreytingar
vofa yfir / og við sofum / dýr deyja
með kjaftinn fullan af plasti / og við
sofum,“ og lesendur eru hvattir til að
vakna af þyrnirósarsvefninum.
Í öðrum ljóðum þessa hluta bók-
arinnar erum við hvött til að vera góð
við börn, þau segi okkur til syndanna
en svo er fjallað um nokkur raun-
veruleg börn sem við brugðumst. Og
lesendur eru hvattir til aðgerða, fyrir
heimsfrið.
Í seinni hlutum bókarinnar breyt-
ist tónninn nokkuð, ljóðmælandinn
lítur sér nær og lífið er hyllt. Í öðrum
hluta, „Berum kærleikanum vitni“, er
mikil birta og hann er litaður af trú á
góðan og fagran heim. Textinn er
hlýlegur og jafnframt meðvitað
bernskur á köflum, þar sem hnykkt
er á verðmæti lífsins og fegurðinni
allt um kring:
Sólin skín á bakvið blikuna
og myndar rosabaug á himni
til að minna okkur á
að landið er heilagt.
Og gert er lítið úr myrkrinu og ótta
við það; myrkrið sé aðeins fjarvera
ljóss:
Ljóstýra getur á augabragði
lýst upp þúsund ára gamalt myrkur
án erfiðis
án áreynslu
segir ljóðmælandi sannfærandi og
að í þessu „ástar kærleiks lífsins ljósi
/ ætti að vera enginn vandi / að hrekja
burtu myrka sögu mannkyns / með
ljósgæðum / með hjartasól“.
Lokahluti bókarinnar, „Silfur-
bjöllur og regnbogar“, er sannkall-
aður ástarbálkur. Fyrri ljóðin fjalla á
einlægan hátt um ást á maka:
Glitský
böðuð sólskini
þó aldimmt sé á Jörðu
líkt og ást þín
er ég týni mér
um stundarsakir
í myrkrinu.
Og síðustu ljóð bókarinnar fjalla
hlýlega um ástina á litlum dreng, syni
sem á lífið fram undan og er að upp-
götva heiminn. Heim sem ljóðmæl-
andinn hvetur okkur til að hjálpa til
við að bæta, fyrir þá sem á eftir okk-
ur koma og fá veröldina í fangið. Ljóð
bókarinnar eru misvel lukkuð hvað
áhrifamátt og kraft ljóðmálsins varð-
ar en boðskapurinn er bæði mikil-
vægur og fallegur.
Skáldið Ást og kærleikur er meginefni nýrrar ljóðabókar Eyrúnar Óskar
Jónsdóttur. Ljóðmælandinn deilir á illa meðferð á börnum og hyllir lífið.
Heimurinn er hvort
sem er iðulega á hvolfi
Ljóð
Mamma, má ég segja þér? bbbmn
Eftir Eyrúnu Ósk Jónsdóttur.
Bjartur, 2019. Kilja, 76 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Málþing um
mimesis í dönsk-
um bókmenntum
og list verður í
Veröld – húsi
Vigdísar í dag,
föstudag, milli
kl. 9.30 og 17.
Þingið fer fram á
dönsku. Erindi
flytja Gísli Magn-
ússon, Marianne
Stidsen, Bettina Perregård, Steffen
Arndal, Anders Ehlers Dam og
Markus Floris Christensen.
„Gríska orðið „mimesis“ þýðir
eftirlíking og oft er talað um
mimesis í tengslum við birtingar-
mynd lista og bókmennta af raun-
veruleikanum. Í bókmenntum, sál-
fræði og heimspeki hefur hugtakið
mimesis snúið aftur sem mótsvar
við staðhæfingu póststrúktúralism-
ans um skort tungumálsins til að
endurspegla raunveruleikann,“
segir meðal annars í kynningu á
málþinginu og bent á að Stidsen
hafi í doktorsritgerð nýtt sér þessa
merkingu orðsins. Meðal þess sem
fyrirlesarar beina sjónum sínum að
í erindum sínum er mimesis í Min
kamp eftir Karl-Ove Knausgård og
Det eftir Inger Christensen.
Málþing um
mimesis í listum
Marianne
Stidsen
Nýtt sýningarár hefst í Listasal Mosfellsbæjar í dag kl.
16 með opnun sýningarinnar Hafið: Í minningu sjó-
manna. Á henni sýnir Hjördís Henrysdóttir málverk af
úfnum sjó og bátum í sjávarháska og er hún í tilkynn-
ingu sögð ástríðufullur frístundamálari sem fengist
hefur við margs konar listsköpun í yfir 50 ár. Hafið,
fjaran og brimrót hafa í gegnum árin reglulega ratað
á strigann, segir m.a. í tilkynningu og að myndirnar á
sýningunni eigi sér rót í djúpstæðri virðingu og trega
vegna þeirra hrafnistumanna sem hafið hafi ekki
hleypt í land.
Sýningin stendur yfir til 7. febrúar.
Sýning í minningu sjómanna
Hjördís
Henrysdóttir
Samantha Barbash, fyrrverandi fata-
fella, hefur höfðað skaðabótamál gegn
framleiðendum kvikmyndarinnar Hus-
tlers og krefst hún 40 milljóna banda-
ríkjadala í skaðabætur. Barbash er
fyrirmyndin að einni persónu kvik-
myndarinnar, Ramónu, sem Jennifer
Lopez leikur. Barbash heldur því fram
að líkindin með sér og sögu sinni og
Ramónu séu slík að hún eigi rétt á bót-
um.
Fyrirtækin sem Barbash hefur farið
í mál við eru STX og Nuyorican Pro-
ductions sem Lopez er eigandi að.
Handrit myndarinnar byggist á grein í
New York-tímaritinu sem sagði af hópi
fatafella sem rændu hóp viðskiptavina
með klækjabrögðum.
Krefst skaðabóta vegna Hustlers
Lögsótt Jennifer Lopez í Hustlers.
Shakespeare verður ástfanginn (stóra sviðið)
Sun 12/1 kl. 19:30 15. sýn Lau 18/1 kl. 19:30
LOKASÝNING
Hrífandi og skemmtileg stórsýning fyrir áhorfendur á öllum aldri
Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) (Kassinn)
Sun 12/1 kl. 19:30 22. sýn Lau 18/1 kl. 19:30
LOKASÝNING
Ágengt og tragíkómískt nýtt íslenskt verk sem spyr stórra spurninga
Atómstöðin (Stóra Sviðið)
Sun 19/1 kl. 19:30 síðustu
sýningar
Fös 24/1 kl. 19:30 síðustu
sýningar
Nýtt og framsækið leikverk byggt á skáldsögu Nóbelskáldsins Halldórs Laxness
Engillinn (Kassinn)
Fös 10/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 16/1 kl. 19:30 7. sýn
Lau 11/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 17/1 kl. 19:30 8. sýn
Leiksýning byggð á textum og myndlist eftir Þorvald Þorsteinsson
Meistarinn og Margarita (Stóra Sviðið)
Fös 10/1 kl. 19:30 5. sýn Fim 16/1 kl. 19:30 7. sýn Fös 31/1 kl. 19:30 9. sýn
Lau 11/1 kl. 19:30 6. sýn Sun 26/1 kl. 19:30 8. sýn Lau 1/2 kl. 19:30 10. sýn
Hnyttin háðsádeila, gædd myrkum töfrum
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Fim 27/2 kl. 19:30 29. sýn Sun 1/3 kl. 19:30 30. sýn
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Eyður (Stóra Sviðið)
Mið 15/1 kl. 19:30 Frums Mán 20/1 kl. 19:30 2. sýn
Sviðslistahópurinn Marmarabörn
Þitt eigið leikrit II (Kúlan)
Fös 14/2 kl. 18:00 Frums Fös 21/2 kl. 18:00 auka Lau 29/2 kl. 15:00 6. sýn
Lau 15/2 kl. 15:00 2.sýn Lau 22/2 kl. 15:00 4.sýn Sun 1/3 kl. 15:00 7. sýn
Sun 16/2 kl. 15:00 3.sýn Sun 23/2 kl. 15:00 5.sýn
Hvert myndir þú fara? Þú mátt velja núna!
Dansandi Ljóð - Leikhúslistakonur 50+ (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 18/1 kl. 20:00 Fös 24/1 kl. 20:00
Sun 19/1 kl. 16:00 Sun 26/1 kl. 16:00
Kynngikraftur kvenna birtist í leiklist, ljóðum og tónlist
Konur og krínólín - Leikhúslistakonur 50+
(Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 15/2 kl. 16:00 Lau 22/2 kl. 16:00
Sun 16/2 kl. 16:00 Sun 23/2 kl. 16:00
Tískugjörningur sem allir hafa beðið eftir! Fegurð, fræðsla og fjör.
Útsending (Stóra Sviðið)
Fös 21/2 kl. 19:30 Frums Lau 29/2 kl. 19:30 3. sýn Sun 8/3 kl. 19:30 5. sýn
Lau 22/2 kl. 19:30 2. sýn Lau 7/3 kl. 19:30 4. sýn
Magnað verk um átök innan fjölmiðlaheimsins og vald fjölmiðlanna
Bara góðar (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 23/1 kl. 20:00 Fim 30/1 kl. 20:00
Sprenghlægilegt uppistand!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
BORGARLEIKHÚSIÐ
Sex í sveit (Stóra sviðið)
Fös 17/1 kl. 20:00 39. s Lau 25/1 kl. 20:00 42. s Lau 1/2 kl. 20:00 45. s
Lau 18/1 kl. 20:00 40. s Sun 26/1 kl. 20:00 43. s Fös 7/2 kl. 20:00 46. s
Fös 24/1 kl. 20:00 41. s Fös 31/1 kl. 20:00 44. s Lau 8/2 kl. 20:00 47. s
Sprenghlægilegur gamanleikur!
Matthildur (Stóra sviðið)
Sun 12/1 kl. 13:00 82. s Lau 18/1 kl. 13:00 83. s Sun 19/1 kl. 13:00 Lokas.
Allra síðustu aukasýningarnar í janúar.
Vanja frændi (Stóra sviðið)
Lau 11/1 kl. 20:00 Frums. Sun 19/1 kl. 20:00 5. s Sun 2/2 kl. 20:00 9. s
Sun 12/1 kl. 20:00 2. s Mið 22/1 kl. 20:00 6. s Fim 6/2 kl. 20:00 10. s
Mið 15/1 kl. 20:00 3. s Fim 23/1 kl. 20:00 7. s Sun 9/2 kl. 20:00 11. s
Fim 16/1 kl. 20:00 4. s Fim 30/1 kl. 20:00 8. s Sun 16/2 kl. 20:00 12. s
Er líf okkar andlegt frjálst fall?
Helgi Þór rofnar (Nýja sviðið)
Fös 17/1 kl. 20:00 Frums. Lau 25/1 kl. 20:00 4. s Lau 1/2 kl. 20:00 7. s
Lau 18/1 kl. 20:00 2. s Sun 26/1 kl. 20:00 5. s Sun 2/2 kl. 20:00 8. s
Fös 24/1 kl. 20:00 3. s Fös 31/1 kl. 20:00 6. s
Lífið getur verið svo niðurdrepandi!
Um tímann og vatnið (Stóra sviðið)
Þri 14/1 kl. 20:00 5. s Þri 21/1 kl. 20:00 6. s
Kvöldstund með listamanni.
Kæra Jelena (Litla sviðið)
Fös 10/1 kl. 20:00 25. s Sun 19/1 kl. 20:00 29. s Fim 30/1 kl. 20:00 34. s
Lau 11/1 kl. 20:00 26. s Mið 22/1 kl. 20:00 30. s Lau 1/2 kl. 17:00 Lokas.
Mið 15/1 kl. 20:00 27. s Fim 23/1 kl. 20:00 31. s
Fim 16/1 kl. 20:00 28. s Sun 26/1 kl. 17:00 32. s
Aðeins örfáar aukasýningar.
Skjáskot (Nýja sviðið)
Þri 21/1 kl. 20:00 3. s Þri 11/2 kl. 20:00 4. s
Kvöldstund með listamanni.
Club Romantica (Nýja sviðið)
Mið 12/2 kl. 20:00 21. s Fös 14/2 kl. 20:00 22. s
Allra síðustu sýningar.
Gosi (Litla sviðið)
Sun 23/2 kl. 13:00 Frums. Sun 8/3 kl. 13:00 5. s Sun 22/3 kl. 13:00 9. s
Sun 23/2 kl. 15:00 2. s Sun 8/3 kl. 15:00 6. s Sun 22/3 kl. 15:00 10. s
Sun 1/3 kl. 13:00 3. s Sun 15/3 kl. 13:00 7. s Sun 29/3 kl. 13:00 11. s
Sun 1/3 kl. 15:00 4. s Sun 15/3 kl. 15:00 8. s Sun 29/3 kl. 15:00 12. s
Eitt ástsælasta ævintýri allra tíma
Er ég mamma mín? (Nýja sviðið)
Sun 9/2 kl. 20:00 Frums. Sun 23/2 kl. 20:00 4. s Fim 5/3 kl. 20:00 7. s
Fim 13/2 kl. 20:00 2. s Fim 27/2 kl. 20:00 5. s Sun 8/3 kl. 20:00 8. s
Sun 16/2 kl. 20:00 3. s Sun 1/3 kl. 20:00 6. s Fim 12/3 kl. 20:00 9. s
Tvær sögur ■ eða alltaf sama sagan?
Kynntu þér matseðil Leikhúsbarsins á
borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is