Morgunblaðið - 10.01.2020, Qupperneq 40
Hildur Guðnadóttir tónskáld hlaut í
fyrradag verðlaun á verðlaunahátíð
samtaka tónskálda og textahöf-
unda í Los Angeles. Hlaut hún bæði
verðlaun fyrir tónlist sína í kvik-
myndinni Joker og þáttaröðinni
Chernobyl. Sunnudaginn síðastlið-
inn hlaut hún Golden Globe-
verðlaunin fyrir tónlistina við
Joker og Emmy-verðlaun í
fyrra fyrir Chernobyl.
Hlaut verðlaun fyrir
Joker og Chernobyl
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 10. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Garðbæingar eru illviðráðanlegir í
Dominos-deild karla í körfuknatt-
leik en í gærkvöldi vann Stjarnan
níunda leikinn í röð í deildinni.
Stjarnan vann ÍR í Breiðholtinu
93:75 en Stjarnan féll einmitt úr
keppni gegn ÍR í undanúrslitum á
síðasta Íslandsmóti. Keflvíkingar
eru einnig firnasterkir og burstuðu
Grindvíkinga. »35
Níundi sigurinn í
röð hjá Stjörnunni
ÍÞRÓTTIR MENNING
Margrét Einarsdóttir búninga-
hönnuður er tilnefnd til sænsku
kvikmyndaverðlaunanna, Guld-
baggen, fyrir vinnu sína við kvik-
myndina Eld & lågor, ástarsögu
sem gerist í Svíþjóð á tímum seinni
heimsstyrjaldarinnar. Er kvikmynd-
in tilnefnd til sex Guldbagge-
verðlauna.
Margrét hefur unnið
að ýmsum kvikmynd-
um og sjónvarps-
þáttaröðum á Norð-
urlöndum á síðustu
árum. Þá hefur hún
hreppt þrenn
Edduverðlaun
fyrir búninga
í íslenskum
kvikmynd-
um.
Margrét tilnefnd til
sænskra verðlauna
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Undanfarin 20 ár hefur Ragnar Leví
Jónsson spilað á harmoniku á „litlu
jólunum“ í Melaskóla. Hann hætti
þar sem húsvörður fyrir átta árum
en mætir alltaf fyrir jól til þess að
spila fyrir börnin.
Bogey Guðmundsdóttir, móðir
Ragnars, féll frá þegar hann var
þriggja ára. Jón Leví Sigfússon, fað-
ir hans, var organisti í Þingeyra-
kirkju í Húnaþingi og þar féll Ragn-
ar fyrir tónlistinni. „Pabbi kenndi
okkur bræðrunum að lesa nótur
þegar ég var sjö ára og ég fór með
honum á æfingar og í messur,“ rifjar
Ragnar upp. Hann segist fljótlega
hafa fengið lánaða harmoniku, síðar
eignast hljóðfærið og byrjað að spila
á böllum í sveitinni þegar hann var
15 ára. „Pabbi dó skömmu síðar og
þá flutti ég suður.“
Nikkan var með í farteskinu en
hún skemmdist í Nýfundnalands-
veðrinu í febrúar 1959. „Ég var 18
ára í mínum þriðja túr á Þorkeli
mána og við komumst af við illan
leik,“ segir hann. „Nikkan eyðilagð-
ist en einhvern veginn tókst mér að
öngla saman fyrir annarri.“
Vegna brauðstritsins var enginn
tími fyrir spilamennsku. „Þegar ég
var búinn að koma krökkunum til
manns tók ég harmonikuna fram á
ný og hef spilað reglulega á hana síð-
an, mest fyrir sjálfan mig en líka í
samkvæmum og á dansleikjum, sér-
staklega á samkomum Húnvetninga
og hjá Ljóði og sögu, anga út frá
Húnvetningafélaginu.“
Dansinn mikilvægur
Húnvetningafélagið í Reykjavík
átti félagsheimili í Skeifunni og þar
lék Ragnar oft með félögum sínum
fyrir dansi. „Þá spilaði ég líka á org-
el eða skemmtara, því við vorum
ekki með trommuleikara,“ segir
hann. Minnist líka spilamennsku
með félaga sínum fyrir eldri borgara
vítt og breitt fyrir hrun. „En það er
liðin tíð,“ bætir hann við með eftir-
sjá. Segir samt að Húnatríóið sé enn
til. „Við spilum mest okkur til
skemmtunar en höfum líka spilað
fyrir eldri borgara og höfum hug á
að gera meira af því enda hafa æ
fleiri í eldri kantinum tekið mark á
gildi hreyfingar fyrir heilsuna.“
Ragnar byrjaði sem húsvörður í
Melaskóla 1999 og vann sem slíkur í
12 ár auk þess sem hann sinnti gang-
brautarvörslu við skólann. Hann
segir að mikil tónlistarmenning hafi
verið í skólanum og fljótlega hafi
hann byrjað að æfa með tónmennta-
kennurunum. „Áður en ég vissi af
var ég byrjaður að spila á jólaböll-
unum og hef nú gert það í tuttugu ár
í röð.“
Jólalögin eru ofarlega í huga og
Ragnar segir gaman að spila fyrir
krakkana. „Það er meiriháttar að
spila fyrir börnin því þau eru svo vel
með á nótunum og taka hraustlega
undir í söng.“ Ekki sé síðra að spila
fyrir eldra fólkið. „Þá er aðalatriðið
að halda uppi stemningu með réttu
lögunum. Gömlu dansarnir eru vin-
sælastir og eldri lög, sem til dæmis
Raggi Bjarna og Vilhjálmur Vil-
hjálms hafa sungið og fólk þekkir,
koma öllum alltaf í stuð. „Litla sæta
ljúfan góða“ sem Vilhjálmur söng í
gamla daga er sérstaklega vinsælt.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Litlu jólin í Melaskóla á dögunum Frá vinstri: Marta Hrafnsdóttir tónmenntakennari, Sveinn Bjarki Sveinsson,
verkefnastjóri smíða og hönnunar, Ragnar Leví Jónsson og Svava María Þórðardóttir tónmenntakennari.
Ragnar þenur nikkuna
Hefur spilað fyrir börnin á litlu jólunum í Melaskóla í 20 ár
Þykir ekki síður gaman að leika fyrir dansi eldri borgara
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900
Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061
Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900
alnabaer.is
Við erum sérhæfð í
gluggatjöldum
TWIN LIGHT RÚLLUGRDÍNA
PLÍ-SÓL GARDÍNUR
GLUGGATJÖLD
SCREEN RÚLLUGARDÍNUR