Morgunblaðið - 23.01.2020, Side 1
F I M M T U D A G U R 2 3. J A N Ú A R 2 0 2 0
Stofnað 1913 19. tölublað 108. árgangur
HEILSU - OG LÍFSSTÍLSDAGAR Í NETTÓ
23. JANÚAR - 2. FEBRÚARYNNTU ÞÉR ÖLL
RÁBÆRU TILBOÐIN Í
EILSUBÆKLINGI NETTÓ25%
AFSLÁTTUR
AF HEILSU- OG
LÍFSSTÍLSVÖRUM
ALLT AÐ
VEGAN KETÓ LÍFRÆNT K
RÍLIN
HOLLUSTA UPPBYGGING UM
HVERFI
Ofurtilboð á
hverjum degi!
FENEYJAVERK
HRAFNHILDAR Í
HAFNARHÚSINU NYTHÆSTA KÚABÚIÐ
VÉLARNAR
MALA EINS OG
Í GAMLA DAGA
BÆNDURNIR Á HURÐARBAKI 22 HOLLVINIR ÓÐINS 28MENNING 64
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sérfræðingar búast við áframhaldandi aukn-
ingu á framleiðslu lax í sjókvíum. Framleiðslan
eykst væntanlega um 5-7 þúsund tonn í ár og
fer yfir 30 þúsund tonna markið og gæti farið í
35-37 þúsund tonn á næsta ári. Aukningin
verður þó ekkert í líkingu við það sem varð á
síðasta ári þegar framleiðsla á laxi tvöfaldaðist.
Áætlanir þessar grundvallast á upplýsingum
um aukingu í útsetningu laxaseiða í sjókvíar. Á
síðasta sumri voru settar út um 9,3 milljónir
seiða, tveimur milljónum seiða meira en árið
áður, samkvæmt upplýsingum Matvælastofn-
unar. Raunar hefur seiðunum fjölgað taktvisst
um tvær milljónir seiða á ári í þrjú ár.
Öll aukningin úr sjókvíum
Öll aukningin í fiskeldi á síðasta ári kom úr
sjókvíum og mest úr fjörðum Vestfjarða og
Austfjarða. Um þrír fjórðu laxaframleiðslunn-
ar koma frá þessum tveimur eldissvæðum og
frá fjórum stærstu fiskeldisfyrirtækjunum.
Arnarlax sem er með höfuðstöðvar á Bíldudal
er langstærsti framleiðandi laxaafurða. Fram-
leiddi 11.700 tonn á síðasta ári sem er 23%
aukning frá fyrra ári. Hin sjóeldisfyrirtækin
eru yngri en öll í örum vexti og framleiddu 4 til
5 þúsund tonn í fyrra.
Framleiðsla á bleikju jókst meira á síðasta
ári en áætlanir gerðu ráð fyrir, eða um 29%.
Búist er við áframhaldandi jafnri og stöðugri
aukningu. Mjög hefur dregið úr eldi á regn-
bogasilungi hér við land en breyting á því er í
aðsigi því að minnsta kosti tvö fyrirtæki eru að
undirbúa eldi.
Áframhaldandi aukning
Framleiðsla á laxi tvöfaldaðist á nýliðnu ári og stefnir í frekari aukningu í
sjókvíaeldi í ár og á næsta ári Arnarlax er langstærsti framleiðandinn
MFramleiðsla á laxi tvöfaldaðist »10
„Þetta er íslenska verkið mitt og auðvitað
verðum við líka að flytja það hér,“ segir
breski tónlistarmaðurinn Damon Albarn um
nýtt tónaljóð sitt, The Nearer the Fountain,
More Pure the Stream Flows. Verkið hefur
hann samið hér á landi og hverfist það um út-
sýnið út um gluggana á húsi hans í útjaðri
Reykjavíkur. Albarn mun í vor flytja tón-
verkið með 25 manna hljómsveit í virtum tón-
leikasölum í Evrópu og er uppselt á þá alla,
fyrir utan lokatónleikana sem hann nefnir og
verða 12. júní í Eldborgarsal Hörpu.
„Mig hefur lengi langað til að skapa tón-
verk sem fjallar um það að horfa út um
gluggann minn hérna. Þetta er svo heillandi
og síbreytilegt sjónarspil,“ segir Albarn með-
al annars um verkið í samtali við Morgun-
blaðið. Damon Albarn sló fyrst í gegn með
hljómsveitini Blur sem náði gríðarlegum vin-
sældum. Hann hefur síðan starfað með sveit-
um eins og Gorillaz og The Good, the Bad &
the Queen, en hann segist aldrei fyrr hafa
skapað verk eins og það með rætur í útsýni
frá húsinu sem hann byggði sér hér. »62
Tónaljóð
Albarns frá
Reykjavík
Ljósmynd/Linda Brownlee
Stemningar „Lífið hér er eins og brunnur
sem ég eys nú úr,“ segir Albarn um Ísland.
Lýkur tónleikaferð
með verkið í Hörpu
List er líkast þegar Japaninn Nobuyuki Tajiri sker bláuggatúnfisk
rétt eins og hann gerði á Sushi Social við Þingholtsstræti í Reykjavík í
gær. Á heimsvísu er Tajiri, sem starfar í Barcelona á Spáni, einn sá
fremsti í sínu fagi. Því mættu margir í gær til að fylgjast með meist-
aranum að störfum á veitingastaðnum þar sem túnfiskveisla er nú
yfirstandandi og margt girnilegt á boðstólum.
Tajiri með bláuggatúnfisk á borðinu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Haukur Herbertsson, rekstrarstjóri
Mountaineers of Iceland, segir fyrirtækið
harma að hópur í vélsleðaferð skyldi verða
veðurtepptur við rætur Langjökuls.
Hins vegar telur hann að of mikið sé gert
úr því að gul viðvörun var gefin út þennan
dag. Samkvæmt skilgreiningu hafi slíkt veð-
ur óveruleg áhrif á samgöngur.
Haukur segir í ítarlegu viðtali við
Morgunblaðið í dag að hugsanlega hefði
mátt kalla fyrr á björgunarsveitir. »18
Ýkjur um gula viðvörun