Morgunblaðið - 23.01.2020, Síða 16

Morgunblaðið - 23.01.2020, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2020 Glæsilegar danskar innréttingar í öll herbergi heimilisins Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is Mán. – Fim. 10–18 Föstudaga. 10–17 Laugardaga. 11–15 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Bóndadagurinn er á morgun og sala á þorrabjór hefst í Vínbúðunum í dag. Alls verða 14 tegundir þorra- bjórs í boði þetta árið og ætti bjór- áhugafólk að finna sitthvað for- vitnilegt í hillum verslana. Einn af þeim bjórum sem vekja athygli nafnsins vegna er Linda B. Í ljós kemur að þar er um samstarfsverk- efni tveggja brugghúsa að ræða, hins fornfræga Víking brugghúss og RVK Brewing sem hefur verið að gera sig gildandi síðustu misseri. „Ég hef verið með það á bak við eyrað í nokkur ár að fá að vinna með Baldri og er himinlifandi með að það hafi gengið upp. Hann er sá sem hefur starfað lengst allra brugg- meistara á Íslandi og ég kem víst næstur í röðinni. Þetta er því risa- samstarf,“ segir Valgeir Valgeirs- son, bruggmeistari hjá RVK Brew- ing. Með Lindubuff í farteskinu Valgeir hefur starfað sem brugg- meistari hér á landi síðan 2007 en Baldur Kárason hefur verið aðal- bruggari Víking brugghúss frá árinu 1993 og hefur á þeim tíma þróað yfir fimmtíu bjóra. Þeir félagar brugg- uðu saman stóran og mikinn bjór í Imperial Stout-stíl, 10,5% að styrk- leika, sem meðal annars er bragð- bættur með Lindubuffi. „Hugmyndin var sú fyrst maður var að fara að brugga fyrir norðan að notast við einhverja norðlenska vöru. Sælgætisgerðin Linda var stofnuð á Akureyri og Lindubuffin eru því norðlenskt sælgæti. Við vor- um með nokkra kassa af Lindubuff- um og það kom á daginn að þau hentuðu mjög vel í bjórinn, þau komu með smá kakó og vanillusætu sem blandast vel við sterka tóna frá apótekaralakkrís. Þetta tikkar í öll boxin og ég er himinlifandi með út- komuna,“ segir Valgeir. Við fótskör meistarans Valgeir hefur í gegnum tíðina bruggað marga Imperial Stout- bjóra. Þrátt fyrir alla reynslu Bald- urs gat Valgeir við þetta tækifæri miðlað þekkingu sinni. „Ég leit á þetta sem ákveðið tæki- færi fyrir mig því Víking hefur aldr- ei bruggað í þessum bjórstíl. Það var gaman að taka þátt í að skapa eitt- hvað nýtt á þeim bæ,“ segir Valgeir, en stefnt er að því að Baldur heim- sæki Valgeir í RVK Brewing síðar á árinu og samstarfið verði endur- tekið. Þá má búast við því að Valgeir fái að nema við fótskör meistarans. Þeir reyndustu tóku höndum saman  Valgeir og Baldur notuðu Lindubuff í þorrabjórinn Morgunblaðið/Eggert Samstarf Bruggmeistararnir Valgeir Valgeirsson og Baldur Kárason fögnuðu útkomunni á Prikinu á dögunum. Útlendingastofnun segir að góður árangur hafi náðst við afgreiðslu um- sókna um alþjóðlega vernd hjá stofn- uninni í fyrra. Afgreiddum umsóknum fjölgaði um 42% miðað við árið á undan, óaf- greiddum umsóknum fækkaði um 37% frá ársbyrjun auk þess sem málsmeðferðartími styttist verulega eftir því sem leið á árið. Fram kemur á heimasíðu Útlend- ingastofnunar, að umsóknir um al- þjóðlega vernd hafi verið 867 og fjölgaði lítillega milli ára en flestir umsækjendur komu frá Venesúela og Írak. Alls voru umsækjendur af 71 þjóðerni. Hlutfallslega voru um- sóknir um vernd flestar á Íslandi af Norðurlöndunum. Þá segir að fjöldi einstaklinga sem Útlendingastofnun veitti vernd hafi aldrei verið meiri á einu ári sem skýrist af því hve stór hluti umsækj- enda hafði þörf fyrir vernd og hve mörg mál tókst að afgreiða. „Til viðbótar við þá 376 einstak- linga, sem fengu jákvæða niðurstöðu hjá Útlendingastofnun, fengu sam- tals 155 einstaklingar veitta alþjóð- lega vernd eða mannúðarleyfi hjá kærunefnd útlendingamála, sem að- standendur flóttamanna hér á landi eftir umsókn til Útlendingastofnun- ar eða sem kvótaflóttamenn í boði ís- lenskra stjórnvalda. Í heild fékk því 531 einstaklingur alþjóðlega vernd, viðbótarvernd eða dvalarleyfi af mannúðarástæðum hér á landi árið 2019,“ segir á vef Útlendingastofn- unar. Aldrei fleirum verið veitt vernd á einu ári  Afgreiddum umsóknum fjölgaði um 42% Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Þrátt fyrir að atvinnuleysi hafi auk- ist hér á landi á seinustu misserum, er það þó enn mun minna á Íslandi en í meirihluta aðildarríkja Efna- hags- og framfarastofnunarinnar (OECD). Atvinnuleysi er einnig minna hér á landi en á öðrum löndum á Norðurlöndunum samkvæmt ný- birtum tölum OECD um atvinnu- ástandið í OECD-ríkjum. Sá samanburður sýnir að hér á landi var 3,6% atvinnuleysi í nóvem- ber síðastliðnum. Af 36 aðildarríkj- um OECD mælist minna atvinnu- leysi en hér á landi í átta ríkjum, þ.á m. eru Bandaríkin með 3,5% at- vinnuleysi, Pólland 3,2% atvinnu- leysi og Holland 3,5%. Minnst var at- vinnuleysið í nóvember í Tékklandi og Japan þar sem það var 2,2% í báð- um löndunum. Samkvæmt tölum OECD var at- vinnuleysið í aðildarlöndunum að meðaltali 5,1% í nóvembermánuði. 6,3% atvinnuleysi mælist að meðal- tali í ríkjum Evrópusambandsins og 7,5% að meðaltali á evrusvæðinu. Ef litið er á samanburð á atvinnu- ástandinu á Norðurlöndunum má sjá að atvinnuleysi í Noregi var lítið eitt meira þar en á Íslandi í október eða 3,8% (nóvembertölur eru ekki birtar fyrir Noreg). Önnur lönd á Norður- löndum búa hins vegar við mun meira atvinnuleysi, það var 7,3% í Svíþjóð í nóvember, 6,7% í Finnlandi og 5,2% í Danmörku. Með versnandi atvinnuástandi hér á landi að und- anförnu hefur staða Íslands í sam- anburði OECD versnað á skömmum tíma. Árið 2017 mældist atvinnuleys- ið minnst hér á landi meðal allra OECD ríkja, þegar það var 2%. Ári síðar var Ísland í þriðja neðsta sæt- inu á lista yfir atvinnuleysið í aðild- arlöndunum en þá mældist 2,7% at- vinnuleysi á Íslandi en í nóvember sl. var Ísland í níunda neðsta sætinu eins og fyrr segir. Upplýsingar um atvinnuleysi meðal ungs fólks í flestum aðildar- ríkjum OECD hafa verið sláandi. Skv. tölum OECD voru t.a.m. rúm 20% ungs fólks á aldrinum 15 til 24 ára í Svíþjóð án atvinnu í nóvember sl. Á Spáni reyndist vera 32,1% at- vinnuleysi í þessum aldurshópi, 11,6% í Kanada, 16,9% í Finnlandi en 5,9% í Þýskalandi. Hér á landi var 9,9% atvinnuleysi meðal 15 til 24 ára fólks í nóvember. OECD birtir einnig reglulega upplýsingar um atvinnuþátttöku í aðildarríkjunum og þar hefur Ísland lengi skorið sig úr vegna mikillar þátttöku landsmanna á vinnumark- aði. Á þriðja ársfjórðungi nýliðins árs voru 82,7% fólks á aldrinum 15 til 64 ára hér á landi virkir á vinnu- markaði. Sviss er eina landið í OECD auk Íslands sem nær 80% markinu í atvinnuþátttöku sem var 80,5% þar í landi. Til samanburðar var atvinnuþátttaka í Noregi 75,7%, Í Svíþjóð 77% og í Danmörku var hún 75,1%. Atvinnuþátttaka í lönd- um Evrópusambandsins var að með- altali 69,3% og meðaltal allra OECD ríkjanna reyndist vera 68,9%. Atvinnuleysi á Norðurlöndum og í löndum OECD Nóvember 2019* 6% 4% 2% 0% Ísland Noregur* Svíþjóð Danmörk Finnland 3,6% 3,8% 7,3% 5,2% 6,7% ESB-lönd, meðaltal: 6,3% OECD-ríki, meðaltal: 5,1% *Tölur fyrir Noreg eru frá okt. Heimild: OECD. Í 9. sæti á lista yfir minnst atvinnuleysi  Minnst hér meðal Norðurlandanna Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Við störf Atvinnustig er hátt á Ís- landi í samanburði OECD.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.