Morgunblaðið - 23.01.2020, Síða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2020
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Heilsa kúnna á Hurðarbaki í Flóa
stórbatnaði og nytin jókst í kjölfarið
við það eitt að bændurnir fóru að
gefa maísköggla með öðru fóðri fyr-
ir rúmu ári. Búið rauk upp lista um
mestu meðalafurðir eftir hverja kú
og endaði í efsta sætinu á nýliðnu
ári.
Hjónin Fanney Ólafsdóttir og
Reynir Þór Jónsson hafa verið í bú-
skap frá árinu 2004 að þau komu inn
í félagsbú með einkahlutafélags-
formi með foreldum hennar, Ólafi
Einarssyni og Kristínu Stefáns-
dóttur. Ólafur er ættaður frá
Hurðarbaki en ólst upp á næsta bæ,
Dalsmynni. Þau keyptu Hurðarbak
og árið 1974 byrjuðu þau að byggja
upp. Fanney og Reynir eru nú að
taka alfarið við búskapnum þótt
Ólafur og Kristín eigi enn hlut í
Hurðarbaksbúinu ehf. og hjálpi
mikið til. „Þau eru ekki bundin yfir
þessu og bera ekki lengur ábyrgð,“
segir Reynir Þór.
Breyting á kjarnfóðri
Á undanförnum árum hefur
Hurðarbaksbúið verið á lista yfir
þau 50 kúabú sem skila mestu af-
urðum að meðaltali og hæst farið
upp í 16. sæti árið 2016 með 7.771
kíló mjólkur eftir hverja kú.
Sprengjan kom á nýliðnu ári þegar
búið fór upp í fyrsta sætið með
8.678 kíló. Þau eru með rúmlega 50
kýr mjólkandi, fjölguðu aðeins eftir
að byggt var nýtt fjós árið 2017.
Fanney og Reynir koma með
ýmsar skýringar þegar þau eru
spurð um ástæður árangurs þeirra
og taka fram að þetta séu engin
töfrabrögð, það sama geri margir
aðrir bændur. Reynir nefnir að
gróffóðurtöflur skipti höfuðmáli.
Þau segjast búa frekar vel því land-
ið sé gott til ræktunar á grasi og
korni.
Bændurnir á Hurðarbaki tóku
mjaltaþjón í gagnið í nýja fjósinu.
Afurðirnar hafa aukist, bæði vegna
nýrra húsakynna og bættrar að-
stöðu fyrir kýr og fólk, auk þess
sem aðgangur kúnna að mjaltaþjóni
eykur nyt þeirra.
Reynir nefnir að gott starf hafi
verið unnið í kynbótum á íslenska
mjólkurkúastofninum og það skili
aukinni framleiðslu á hverju ári.
Enn megi bæta þar í. Hjónin leggja
bæði mikið upp úr góðu eftirliti með
gripunum og segja að hver einasta
ferð út í fjós skili sér. Þau eru í
þessu starfi af ástríðu. „Við njótum
þess að vera bæði í þessu á fullu og
erum samstíga,“ segir Fanney.
Þá er ótalin breyting sem þau
gerðu á kjarnfóðurgjöf fyrir rúmu
ári og minnst er á í upphafi viðtals-
ins. „Við vorum að glíma við fram-
leiðslusjúkdóma, aðallega súrdoða.
Okkur var bent á að bæta við maís-
kögglum, sem eru mjög orkuríkt
fóður. Með því náðum við góðu jafn-
vægi í fóðrun, kýrnar urðu heil-
brigðari og nytin stórjókst. Við er-
um nú búin að vera í góðum málum
í tólf mánuði,“ segir Fanney.
Þau eru heppin með gripi.
Kýrnar mjólka nokkuð jafnt. Engin
metkýr er í þeirra fjósi. Fanney
segir að þau ættu að geta haldið
nokkuð jafnri framleiðslu áfram en
segir að kvígur séu að bætast í hóp-
inn og þær mjólki minna í upphafi.
Ekki vegna launanna
Sígild spurning er hvernig gangi
í kúabúskapnum um þessar mundir.
Þau segja að hægt sé að hafa það
ágætt ef skuldir séu ekki miklar.
„Við erum ekki með há laun miðað
við vinnutíma. Gætum sjálfsagt haft
betri laun fyrir jafn mikla vinnu í
annarri vinnu. Það fer enginn út í
búskap vegna launanna,“ tekur
Reynir fram.
„Markmiðið er að geta greitt
okkur laun og að geta lifað á þessu
án þess að vinna annað,“ segir
Fanney. Reynir hefur í gegnum tíð-
ina unnið mikið af bæ, meðal annars
verið við rúning og ekið mjólkurbíl,
en hefur dregið mjög úr slíkri
vinnu.
Þau nefna bæði búskapinn þegar
spurt er um áhugamál. Reynir seg-
ist vera áhugasamur um ræktun
búfjár. Þau eru með um 200 kindur
á vetrarfóðrum auk hrossa og fær
Reynir útrás fyrir áhuga á kynbóta-
starfi þar og í fjósinu.
Þau eiga stóra fjölskyldu, fimm
börn á aldrinum fjögurra til sextán
ára, og fylgja þeim eftir í íþróttum
og öðru tómstundastarfi. Ekki eru
þau enn búin að sjá út framtíðar-
bændur á Hurðarbaki en segja að
elstu synirnir séu áhugasamir
vinnumenn á sumrin og börnin séu
alltaf dugleg að hjálpa til þegar á
þurfi að halda.
Bæði eru þau á kafi í félags-
málum, jafnt í heimasveit sinni og á
héraðsvísu. Fanney starfar í ung-
mennafélaginu, HSK og kvenfélag-
inu og Reynir er í forystu búnaðar-
félagsins, sauðfjárræktarfélagsins
og afréttarmálafélags og er í stjórn
Félags kúabænda á Suðurlandi.
Flest félagsmálastörfin tengjast
búskapnum eða íþróttum barnanna.
Rekist á veggi
Lengi hefur verið rætt um að
ættliðaskipti séu erfið í búskap.
Unga fólkið eigi erfitt með þær
fjárfestingar sem fylgi því að
kaupa jörð og bú. Fanney er ekki
viss um að ættliðaskipti gangi bet-
ur þótt búið sé í einkahlutafélagi
eins og raunin er hjá þeim á Hurð-
arbaki. Þau hafi allavega rekist á
veggi. „Hugmyndin með stofnun
félagsins var að hjálpa okkur að
komast inn í reksturinn. Kannski
var ekki hugsað nóg um það hvern-
ig við gætum eignast þetta að lok-
um,“ segir hún.
Náðu jafnvægi með maískögglum
Bændurnir á Hurðarbaki í Flóa náðu eftirtektarverðum árangri í mjólkurframleiðslu á nýliðnu ári
Ungu hjónin eru að taka við rekstrinum á bænum Býlið er nú orðið nythæsta kúabú landsins
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Í fjósinu Bændurnir á Hurðarbaki í Flóa, Reynir Þór Jónsson og Fanney Ólafsdóttir, hafa ástríðu fyrir kúabúskap.
Þau fara frekar fleiri ferðir til eftirlits í fjósið en færri enda segja þau að hver ferð skili árangri.
Ljósmynd/Reynir Þór Jónsson
Hurðarbak Fjósið er nýtt, tekið í notkun árið 2017 ásamt mjaltaþjóni. Aðstaða
fyrir kýrnar batnaði að mun og vinnuaðstaða bændanna.
Afurðamestu kúabúin 2019
Meðaltal eftir hverja árskú
Býli Skýrsluhaldarar Árskýr Kg mjólkur
1. Hurðarbak, Flóa Hurðarbaksbúið ehf. 54,1 8.678
2. Hvammur, Barð. Ólöf og Valgeir 38,8 8.394
3. Hraunháls, Snæf. Guðlaug og Eyberg 28,2 8.307
4. Stóru-Tjarnir, Þing. Stóru-Tjarnir ehf. 54,8 8.294
5. Brúsastaðir, Vatnsd. Brúsi ehf. 47,0 8.292
6. Hóll, Svarfaðard. Karl Ingi og Erla Hrönn 50,6 8.286
7. Kirkjulækur, Fljótshl. Eggert, Jóna, Páll, Kristín 59,2 8.270
8. Hvanneyri, Borg. Hvanneyrarbúið ehf. 73,8 8.262
9. Miðdalskot, Laugard. Hermann og Sigrún 43,3 8.223
10. Grund, Svarfaðard. Friðrik Þórarinsson 53,2 8.208
Kýr Kg mjólkur Bú
1. Svana 14.345 Flatey, A-Skaft.
2. Spurning 13.617 Birtingaholt, Árn.
3. Rækja 13.515 Flatey, A-Skaft.
4. Píla 13.476 Garður, Ey.
5. 1377801-0643 13.219 Lyngbrekka, Dal.
6. Muska 13.206 Grund, Svarf.
7. Hera 12.968 Smjördalir, Árn.
8. Djassa 12.930 Reykir, Skeið
9. Aría 12.860 Flatey, A-Skaft.
10. Lokka 12.795 Berustaðir, Rang.
Afurðamestu kýrnar 2018
Heimild: rml.is
13 vítamín og 16 steinefni · 18 aminósýrur · Blaðgræna · Omega GLA fitusýrur
SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans
Hrein orka, eflir einbeitingu, eykur
súrefnismettun, gefur heilbrigða
næringaríka orku sem virkar
allan daginn.
Eflir mótstöðu og er góð vörn gegn
flensum. Frábært gegn þreytu, sleni
og pirringi, auðugt af járni.
Inntaka: Allur aldur.
Nánari upplýsingar
á www.celsus.is
Fæst í apótekum, Hagkaup, Heilsuhúsinu og víðar | netsala á celsus.is
Fjölvítamín náttúrunnar,
hreint og ómengað
Engin tilbúin næringaefni
22 ára
VELGENGNI
Á ÍSLANDI