Morgunblaðið - 23.01.2020, Síða 48
48 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2020
Það er ótrúlegt að
ég sé að skrifa minn-
ingargrein um Jón
Val en samt stað-
reynd sem ég þarf að
meðtaka. Jón Valur elskulegur
vinur minn er allur hér á jörð.
Það koma upp margar góðar
minningar. Við Jón kynnumst við
stofnun Íslensku þjóðfylkingar-
innar. Einnig vorum við sam-
ferða í kristilegum stjórnmála-
samtökum þar sem Jón stjórnaði
rösklega og samtaka í að berjast
fyrir landi og þjóð.
Fóstureyðingar voru baráttu-
mál okkar beggja. Þar stóð Jón
upp úr hér á landi. Hann barðist
„með kjafti og klóm“ við að verja
líf hinna ófæddu. Það sló oft í
brýnu á milli Jóns og andstæð-
inga hans í því máli svo og öðrum
málum. Alltaf var Jón eldklár og
svaraði málefnalega án þess að
vera með leiðindi. Það er eftir-
sóknarveður eiginleiki.
Jón Valur kunni að tjá sig svo
eftir var tekið og vakti gríðarlega
athygli á bloggsíðum og sam-
félagsmiðlum. Einn af styrkleik-
um hans var það sem ég sjálf tel
mikilvægt að búa yfir, það er að
standa alveg á sama hvað öðrum
finnst. Þetta að vinna að hugsjón-
um sínum hve mikill sem mótbyr-
inn og stundum óvildin í garð
manns er. Að ganga á móti
straumnum… það einkennir al-
vöru hugsjónafólk! Jón vann öt-
ullega við það sem hann tók að
sér og féll aldrei verk úr hendi.
Ekki voru efnisleg gæði honum í
huga en hugsjónir áttu hjarta
hans. Við vorum samstíga í póli-
tíkinni, bæði mjög ákveðið þjóð-
frelsisfólk. Því að vernda íslensk-
Jón Valur Jensson
✝ Jón Valur Jens-son fæddist 31.
ágúst 1949. Hann
lést 5. janúar 2020.
Útför Jóns fór
fram 16. janúar
2020.
an menningararf,
auðlindir og sjálf-
stæði vann hann að
af heilindum bæði í
skrifum og sannar-
lega í verki.
Fráfall Jóns Vals
Jenssonar er landi
og þjóð gríðarlegt
áfall. Þar fór mjög
mikil þekking og
greind, baráttuvilji
og manngæska.
Allt þetta er vandfundið í einum
og sama einstaklingi. Þetta var
hann Jón Valur vinur minn. Við
Jón áttum það sameiginlegt að
eiga trú á hinn eina sanna Guð og
frelsarann Jesú Krist. Ég veit því
hvar Jón Valur er nú, í góðum
höndum. Það huggar mig í
söknuðinum.
Við vorum góðir vinir og
margar stundirnar ræddum við
saman. Það voru dýrmæt sam-
skipti. Við ræddum stjórnmál,
fósturdeyðingar eins og þú rétt-
nefndir þann sorglega atburð
þegar barn er deytt í móðurkviði,
stjórnmál, persónuleg og heilsu-
tengd mál en hjúkrunarfræðing-
urinn María ráðlagði vini sínum
allt það besta. Á stundum svolítið
óþekkur að fara eftir leiðbeining-
um vinkonu þinnar.
Jón kom á Ljósanótt á heimili
mitt sl. haust og skemmti sér
konunglega ásamt vini sínum
Gúnda. Hann hafði ætlað að
koma oft, mikið var ég glöð að
það gekk upp í þetta sinn, grun-
aði aldrei að hann kæmi ekki
meir á Ljósanótt.
Takk, elsku Jón minn, fyrir
dýrmæta vináttu og samveru-
stundir sem ég ylja mér við nú.
Takk fyrir ljóðin þín, snillingur,
sakna þín! Sjáumst í himninum
þar sem engin sorg, sjúkdómar
eða stríð geisa. Á meðan verðum
við sem eftir sitjum að vera án
þín í baráttunni fyrir Íslandi. Það
er söknuður og stórt skarð í
hópnum okkar sem er vandfyllt.
Kvöldið er komið og sólin sest
í lífi þínu vinur.
Í lífsins nýjar víddir ferð.
Skil eigi, spyr, en Drottinn veit best.
Ég treysta honum verð.
(María Magnúsdóttir)
Þín vinkona,
María.
Genginn er góður drengur.
Jón Valur Jensson, guðfræð-
ingur og baráttumaður góðra
verka, hefur nú allt of snemma
gengið til Guðs síns. Þess Guðs
sem hann sótti visku sína, hug-
sjónir og trú til.
Leiðir okkar Jóns lágu fyrst
saman fyrir rúmum áratug þeg-
ar Íslendingar upplifðu „hrunið
mikla“ – haustið 2008. Við störf-
uðum í hópi hugsjónafólks sem
kallaðist Samstaða þjóðar. Öllum
fannst okkur ekki ná nokkurri
átt að ábyrgðarmenn gætu skot-
ið sér undan ábyrgð og að stjórn-
völd okkar hygðust láta okkur
Íslendinga greiða ósannaðar
kröfur erlendra þjóða.
Jón Valur, meðal annarra, átti
mikinn þátt í að skora á forseta
Íslands að vísa málinu í þjóðarat-
kvæðagreiðslu – sem síðan hafn-
aði greiðslu „Icesave-kröfunnar“
sem svo nefndist. Hér gekk Jón
Valur fram af festu og óeigin-
girni, knúinn þeirri réttlætis-
kennd og þjóðarást sem honum
bjó í brjósti. Hann safnaði undir-
skriftum, skrifaði á bloggsíður,
talaði stundum í útvarp og oft
mátti sjá hann á mótmælafund-
um á Austurvelli.
Minningin um stundir okkar
Jóns saman er góð, hvort sem við
ræddum þjóðmál, trúmál eða
dægur- og fjölskyldumál. Ávallt
var hann til í rabb og jafnan fór
maður fróðari af hans fundi.
Aðeins eitt kom í veg fyrir að
Jón Valur hefði tíma til að hitt-
ast, eða rabba; það var ef börnin
hans voru að koma í heimsókn –
þau gengu fyrir. Þeim sendi ég
innilegar samúðarkveðjur og bið
þess að þau gangi í ljósi þess
Guðs sem gekk með föður þeirra
og hann trúði staðfastlega á.
Jón Valur, þér vil ég þakka
vináttu þína og góð orð. Það veit
ég líka að raddar þinnar verður
saknað í umræðu og átökum sem
fram undan eru. Ég hefði gjarna
vilja eiga með þér lengri stund,
en það vita allir að „enginn ræð-
ur sínum næturstað“.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Baldur Ágústsson.
Við Jón Valur kynntumst,
þegar ég var liðlega tvítugur, og
urðum góðir vinir. Þá vorum við
báðir glaðir stúdentar. Hann
skrifaði mér síðast tölvupóst 2.
janúar, og það kvöld töluðum við
saman í síma. Áttum reyndar von
á að eiga fleiri samtöl.
Langt er síðan Jón Valur vakti
hjá mér áhuga á því að vinna í
þágu lífs og sérstaklega gegn
fóstureyðingum, og hjá hvorug-
um okkar átti sá áhugi eftir að
daprast. Það á við um fleiri mik-
ilvæg málefni, sem tengjast
kristnu siðferði og eru því miður
ekki eins óumdeild og á fyrri tíð.
Ég er þakklátur fyrir þá sam-
fylgd.
Þetta tengist kannski því, að
við vorum báðir að upplagi
kristnir menn. Og við áttum
reyndar eftir að feta sömu braut
innan kristindóms, þótt ekkert
sammæli væri okkar á milli um
það. Við gerðumst sem sagt báðir
kaþólikkar. Mig grunar að heil-
agur Tómas Aquinas hafi ekki
sízt valdið nokkru um það, því að
báðir lásum við verk hans með at-
hygli, Jón í Cambridge en ég í
Keflavík. Nema Jón valdi sér
Þorlák biskup að nafndýrlingi, og
ég hef reynslu af því, að hann er
sannarlega máttugur. Ég bið
hann að biðja fyrir Jóni Val. Ég
valdi mér hins vegar Ólaf konung
að nafndýrlingi, og þar er ekki
heldur í kot vísað.
Jón var skeleggur baráttu-
maður í stjórnmálum, til dæmis
því að hafna samningum um Ice-
save og inngöngu Íslands í ESB
og ýmsum pökkum og tilskipun-
um frá Brussel. Ég er líka þakk-
látur honum fyrir það. Þjóðin
þarf að fara varlega.
Jón Valur var ættfræðingur
góður og hélt oft námskeið til að
kenna áhugasömu fólki fræði sín,
hafði safnað prýðilegum bóka-
kosti í því skyni. Nú kemur upp í
hugann, að við lögðum í nokkur
skipti saman krafta okkar til að
leysa erfið viðfangsefni. Eitt af
þeim var hann Jón Ófeigsson
yngri, sem fæddist á Jónsmessu
1776 og ólst upp í Hvammi í Lóni.
Steingrímur biskup skráði, að
hann hefði 1806 siglt og ætlað til
Austur-Indía. Hvað svo? Það var
lengi óráðin gáta, þangað til við
Jón Valur komumst yfir hol-
lenzka þýðingu á skírnarvottorði
Jóns, sem C.G. Reihete, löggiltur
skjalaþýðandi, skráði árið 1820.
Þá laukst allt upp, og við sann-
færðum sjálfa okkur um, að Jón
þessi hefði setzt að í Hollandi,
verið smiður og (eftir frekari
rannsókn) átt árið 2000, þegar
við vorum að velta því fyrir okk-
ur, niðja á lífi í Hollandi. Þetta
þótti okkur víst báðum skemmti-
legt.
Nú er ekki annað eftir en að
óska Jóni vini mínum alls góðs á
Guðsríkis braut, þakka honum
langa og góða samfylgd, votta
fjölskyldu hans samúð mína og
biðja alsæla Maríu og heilagan
Þorlák að vera með honum. Jú,
og biðja Drottin Guð að vekja
upp fleiri jafn skelegga, rökfasta
og gagnfróða baráttumenn fyrir
kristnum sið á Íslandi.
Sigurður Ragnarsson.
Lífsgleði og
hjálpsemi er það
sem einkenndi
Guddu. Hún tók
okkur opnum örmum þegar við
komum til Wiesbaden sumarið
1991 og þessi fyrstu kynni gerðu
það að verkum að hún og fjöl-
skyldan hennar urðu okkar fjöl-
skylda næstu árin. Það virtist
vera ótrúlega auðvelt og sjálf-
sagt fyrir Guddu að hafa okkur
inni á heimilinu í nokkrar vikur
áður en við fengum okkar eigin
Guðbjörg Bergs
✝ GuðbjörgBergs fæddist
3. október 1951.
Hún lést 9. janúar
2020.
Útför Guð-
bjargar fór fram
17. janúar 2020.
íbúð og það hafði
mjög mótandi áhrif
á afstöðu okkar til
þess að hjálpa öðr-
um. Þegar Glói
fæddist var ómet-
anlegt að hafa
Guddu til staðar og
hún þjónaði sannar-
lega hlutverki
ömmunnar fyrstu
þrjú æviár hans.
Gudda fylgdist allt-
af með af áhuga og var mjög
hvetjandi og uppbyggileg og
þegar hún heyrði að Glói ætti
von á barni gladdist hún af öllu
hjarta. Við minnumst hennar af
virðingu og væntumþykju og
geymum yndislegar minningar
um hjartahlýjan töffara.
Ólöf Breiðfjörð og
Gunnar Guðbjörnsson.
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við
andlát og útför okkar ástkæru móður,
tengdamóður, ömmu og systur
JÓRUNNAR LINDU JÓNSDÓTTUR
íþróttakennara.
Aldís Buzgò Valmir Qeleposhi
Heiðdís Buzgò Eggert Orri Hermannsson
Dagný Lára Stefánsdóttir
Ólafur Ólafsson Alda Konráðsdóttir
Svala Haukdal Jónsdóttir Kjartan Oddur Þorbergsson
Þórdís Elva Jónsdóttir Hafsteinn Ágústsson
Guðríður Erna Jónsdóttir Ólafur Ágúst Gíslason
Sími 5 @utfarir.is · www.utfarir.is· 67 9110 · utfarir
Rúnar Geirmundsson
Sigurður Rúnarsson
Þorbergur Þórðarson
Elís Rúnarsson
Stofnað 1990
Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda hlýju og
samúð við andlát og útför okkar ástkæra
sonar, bróður, mágs og frænda,
PÁLS KRISTINS PÁLSSONAR,
Hólmasundi 2,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á bráðadeild og deild A 6 á
Landspítalanum í Fossvogi, sem og forstöðumanns og
starfsfólks sambýlisins Hólmasundi 2.
Páll Kristinn Pálsson
Elsa María Ólafsdóttir
Tryggvi Þór Pálsson
Ólafur Sölvi Pálsson
Margrét Kristín Pálsdóttir
og fjölskyldur þeirra
✝
Okkar bestu þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts okkar
ástkæru,
GUNNARS MAGNÚSSONAR
sem lést 5. maí 2019
og
GÍSLÍNU ÞÓRARINSDÓTTUR
sem lést 29. desember 2019,
áður til heimilis að Litlagerði 14 í Reykjavík.
Enginn gleymist sem hefur verið elskaður.
Hjartans þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Reykjavík fyrir frábæra
umönnun, hlýju og kærleika. Starf ykkar er ómetanlegt.
Guðbjörg Gunnarsdóttir Ólafur Guðjónsson
Arnar Þór Gunnarsson Ester Guðbjörnsdóttir
Harpa Gunnarsdóttir Guðmundur Baldursson
Magnús Gunnarsson Margrét B. Jóhannsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn