Morgunblaðið - 23.01.2020, Qupperneq 50
50 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2020
Umsækjendur skulu senda umsóknir ásamt fylgiskjölum til stjórnar Leikfélags
Reykjavíkur í tölvupósti á netfangið stjorn@borgarleikhus.is. Umsókn skal fylgja
ítarleg lýsing á menntun og starfsreynslu. Einnig skal umsækjandi lýsa framtíðarsýn
sinni á hlutverk, starfsemi og verkefni Borgarleikhússins.
Leikfélag Reykjavíkur auglýsir starf leikhússtjóra Borgarleik hússins laust
til umsóknar. Leikhússtjóri ber listræna ábyrgð á starf semi leikhússins og
rekstrarlega ábyrgð gagnvart stjórn félagsins. Til leikhússtjóra eru gerðar
kröfur um menntun á sviði leiklistar auk umfangsmikillar þekkingar og
reynslu af starfi leikhúsa. Ráðið er í starfið til fjögurra ára, en samkvæmt
samþykktum LR er heimilt að endurráða leikhússtjóra í önnur fjögur ár.
Stefnt er að því að nýr leikhússtjóri hefji störf við undirbúning leikársins
2021–2022 í samvinnu við núverandi leikhússtjóra í ársbyrjun 2021,
en taki svo formlega við stjórn Borgarleikhússins í júlí 2021.
Umsóknarfrestur er til 30. janúar 2020
borgarleikhus.is
Borgarleikhússtjóri
STARFSSVIÐ:
•
félagsins skv. opinberum kröfum og stöðlum.
• Umsjón og ábyrgð á gæðahandbók félagsins.
• Umsjón og ábyrgð á innri úttektum, vörulýsingum, merk-
ingum framleiðsluvara, áhættugreiningum og birgjamati.
• Umsjón og ábyrgð á gæðaeftirliti,
s.s. sýnatökum og skráningum.
• Þátttaka í vöruþróun og umbótaverkefnum.
• Samskipti við eftirlitsstofnanir, úttektaraðila og kaupendur.
HÆFNISKRÖFUR:
• Fagleg þekking og reynsla af gæðakerfum er skilyrði.
• Menntun á sviði matvæla- eða næringarfræða
er mikill kostur.
• Góð íslensku- og enskukunnátta.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Góð samskiptafærni.
• Geta til að starfa sjálfstætt og frumkvæði.
• Ákveðin og fagleg vinnubrögð.
Við leitum að drífandi einstaklingi til að leiða
gæðastarf fyrirtækisins.
Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að viðkomandi
Ora er einn elsti og rótgrónasti matvælaframleiðandi landsins,
!
" #$%
& ' () &(
* + '-
./0
Umsóknarfrestur er til og með 27. janúar 2020
+
$+ &
(
" www.isam.is.
1
$+
2 %%3
4"
& 5$ 6$
*$)
7$)
netfang: elisabet@isam.is "
" 522-2703.
GÆÐASTJÓRI
ORA
ISAM ehf. • BLIKASTAÐAVEGUR 2-8 • 112 REYKJAVÍK • isam.is
Framkvæmdastjóri
Félag forstöðumanna ríkisstofnana (FFR) leitar
að framkvæmdastjóra í hálft starf. Starfið felst í
daglegum rekstri, bókhaldi og utanumhaldi um
starfsemi félagsins í samræmi við lög þess, fjár-
hagsáætlun og ákvarðanir stjórnar. Framkvæmda-
stjóri tekur virkan þátt í þróun á nýju vinnuumhverfi
forstöðumanna, annast upplýsingagjöf, hefur
umsjón með fundum og fræðslumálum félagsins
og vinnur að hagsmunamálum félagsmanna.
Framkvæmdastjóri heyrir undir stjórn félagsins.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Þekking á starfsumhverfi forstöðumanna
ríkisstofnana æskileg
- Kunnátta í tölfræðilegri greiningu æskileg
- Góð íslenskukunnátta og geta til að tjá sig á erlendu
tungumáli
- Skipulagshæfileikar og hæfni til að sinna
fjölbreyttum verkefnum
- Öguð vinnubrögð og lipurð í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og
rituðu máli
- Góð tölvukunnátta
Félag forstöðumanna ríkisstofnana er samstarfs- og
hagsmunafélag en einnig tengiliður við stjórnvöld
varðandi gagnkvæm málefni félagsmanna og stofnana.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi aðildarfélags BHM.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar
og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 3. febrúar 2020 og
skulu umsóknir berast á netfangið ffr@ffr.is. Öllum
umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veita Margrét Hauksdóttir, formaður
Félags forstöðumanna ríkisstofnana,
mh@skra.is og Halldór Ó. Sigurðsson,
halldor@rikiskaup.is
Rafverktaki óskast
Byggingafélag óskar eftir rafverktaka.
Sími 66 45 900
Starfsfólk óskast
við forprófun PISA rannsóknarinnar
Menntamálastofnun leitar að starfsfólki við alþjóð-
lega menntarannsókn OECD sem nefnist PISA
(Programme for International Student Assessment).
Um er að ræða verktöku í mars og apríl 2020 og
felst verkefnið í fyrirlögn prófsins í 10. bekk grunn-
skóla á höfuðborgarsvæðinu og kóðun á opnum
svörum nemenda. Starfið krefst reynslu af starfi
með unglingum, góðrar tölvu- og enskukunnáttu og
skipulags- og samstarfshæfileika. Æskilegt er að
umsækjendur hafi menntun á háskólastigi.
Umsóknarfrestur er til 3. febrúar nk.
Umsóknir skulu sendar á netfangið
svanhildur.steinarsdottir@mms.is.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við Svanhildi
í síma 514-7500 eða með tölvupósti.