Morgunblaðið - 23.01.2020, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 23.01.2020, Qupperneq 53
úr því myndast tengingar sem eru svo skemmtilegar,“ segir Greipur. „Svo er hér í boði klassa háskóla- menntun í listum í Listaháskólanum, sem ekki skal vanmeta. Þar er mikill suðupottur. Mér finnst alltaf gaman að fylgjast með því sem næstu kyn- slóðir listamanna eru að gera. Já, og afleiðan af þessari lagköku er auðvit- að sprúðlandi menningarlíf, alger bragðsprengja,“ segir hún. – Farið þið á sýningar og á tónleika í hverri viku? „Ég held að það komi alveg ein- hverjar vikur sem maður gerir ekki neitt en flestar vikur fer ég á eitthvað. Framboðið er svo ótrúlegt, tónleikar oft í viku, opnanir og leiksýningar. Það er hægt að vera í fullri vinnu við þetta. Og það er auðvitað kjarni málsins. Maður verður að velja,“ segir hann og Edda tekur undir. „Stundum þarf ég pásu, það er eins og hugurinn mettist og ég þarf svigrúm til að vinna úr því sem ég hef safnað saman í líkamanum og get þá ekki hugsað mér að fara á sýn- ingar eða annað og langar bara að vera heima eða í Heiðmörk. En al- mennt séð þá er það að fara á sýn- ingar eðlilegur hluti af hversdeginum mínum, það er eins og það gerist af sjálfu sér, það togar. Það er alltaf eitt- hvað að græða, líka við að sjá og finna það sem talar ekki til manns og það er ekki síður mikilvægt. Annars er svo margt sem hægt er að gera að heiman og stundum á það betur við, og stund- um bendum við lesendum okkar líka á eitthvað þannig,“ segir hún. Hvað gefur það ykkur að sinna menningarlífi af krafti? „Krafturinn sveiflast upp og niður, en það getur verið verulega mikið kikk að sjá og finna eitthvað verða úr engu, að sjá lítið hugmyndakorn verða að heilu verki, jafnvel heilli sýn- ingu eða heilli hátíð. Hugmyndir eru ókeypis, það er framkvæmdin á þeim sem er aðalmálið. Nema þær séu and- virði hundraða milljóna, svo ég snúi málinu upp í þversögn og vísi í tvo listamenn. En það er þetta ferli sem getur verið svo nær- andi, alger alkemía. Með því að vinna og eiginlega lifa í menningarlífinu bætir maður alltaf einhverju við sig, þó það sé eins og heim- urinn þenjist út í sömu andrá, sem hann svo sem gerir. Maður finnur fávísi sína betur eftir því sem maður lærir meira og það er ósköp ágætt líka. Kannski eins og í matargerð, þeim mun fleiri brögð sem maður smakkar og lærir á, þeim mun skýrara verður hvað maður á eftir að smakka mikið af heiminum. Þetta er einhvern veg- inn svona í listinni líka, hún er óþrjót- andi en það er hægt að komast nær listinni í sjálfum sér í smáskömmtum, uppgötva stórkostlega hluti innra og ytra með því að smakka. Samtakamátturinn í menningarlíf- inu á Íslandi er líka ósköp fallegur, meðal listamanna og liststofnana/ staða ríkir hjálpsemi og greiðvikni umfram samkeppni, sem er mikil blessun, enda er það ekki sjálfgefið, þó það sé sjálfsagt. Þó kerfin marg- umtöluðu þurfi á endurskilgreiningu að halda þá er góður andi í menningarlífinu og það er (andlega) gefandi að hrærast í því,“ segir hún. Eru listir ykkar stærsta áhugamál? „Ég veit ekki hvort það er hægt að orða það þannig að menningin sé stærsta áhugamálið, jú ábyggilega, en það er svo margt sem mótar menn- ingu og snúið að skilgreina hvar hún hefst og endar. Hvernig sem sú skil- greining er, þá vitum við að hún er það sem skilgreinir okkur sem sam- félag umfram allt annað. Svo þetta er ákveðin afstaða líka. Ég hef mjög ein- læga, ábyggilega barnslega trú á list- inni, hún er bæði svo máttug og dul- arfull, mild og gjöful. Einskonar nærandi afl sem finnur sér leið ef maður treystir því og hleypir inn í líf sitt, kannski svona eins og páfarnir guði. Er það ekki, Greipur,“ spyr hún. „Hún er eins og þú, máttug og dul- arfull, mild og gjöful,“ segir hann og hlær. „En ef hægt er að setja alla list- viðburði undir einn hatt þá má segja að mest af frítíma mínum fari í það. Og ef það er mælikvarði þá get ég svarað þessu játandi,“ segir Greipur. „Ég hefði annars áhuga á að heyra meiri og dýpri umfjöllun um listir al- mennt séð. Á málþingi um tungutak um listina, sem Bandalag íslenskra listamanna stóð fyrir í Hörpu um næstsíðustu helgi, kom meðal annars fram að við mættum taka okkur páf- ana tvo (kvikmyndina The Two Po- pes, sem við mæltum með í síðasta fréttabréfi og mælum eindregið með að fólk horfi á) og kaþólsku kirkjuna sérstaklega til fyrirmyndar um það eitt (og aldeilis ekki margt annað) að tala meira um kjarna málsins. Páf- arnir töluðu um guð og við gætum tal- að meira um listina – ekki listamann- inn, ekki listfræðina, heldur verkin sjálf, listina sjálfa. Ég er sammála þessu, kannski getur litla fréttabréfið okkar orðið kveikja að slíku samtali í einhverjum hópum,“ segir hún. Eitt að lokum, þið látið áskrift að fréttabréfinu kosta smá, af hverju? „Okkur langar að veita áskrif- endum vandað efni og auðvitað leggj- um við mikla vinnu í þetta. Við vönd- um okkur. Svona á því ekki að vera ókeypis,“ segir hann. „Ég held að það felist líka ákveðin tenging í því, þá er móttaka bréfsins meðvitað valin af viðkomandi. Svona eins og að fá sér kött í Kattholti. Það gefur víst betri raun ef fólk er látið borga fyrir kettina, þá hugsar það betur um þá. Mjög skrýtið,“ segir hann. „Og ég nenni heldur ekki að skrifa og skrifa fyrir ruslkörfur pósthólfa út um allan bæ. Það geta bara aðrir ver- ið í því,“ segir hann. „Ég er annars að reyna að venja mig á að hætta að tala um peninga, það er skemmtilegra að tala um listina, sérstaklega ef maður er blank- ur. Þetta er í sannleika sagt eiginlega til að minna á að þekking í menningu er dýrmæt, alveg eins og þekking í öðrum greinum. Svo kostar þetta nú ekki mikið. Fréttabréfið kemur út annan hvern sunnudag og kostar eins og sæmilegt súkkulaðistykki í hvert sinn,“ segir hún. „Mig langar í súkkulaði,“ segir Greipur. „Jæja, við þurfum að þjóta. Er þetta ekki bara komið? Og takk fyrir hlý orð, Greipur. Þú ert líka ágætur,“ segir hún. „Hugmyndir eru ókeypis, það er fram- kvæmdin á þeim sem er aðalmálið. Nema þær séu andvirði hundraða milljóna, svo ég snúi málinu upp í þversögn og vísi í tvo listamenn. En það er þetta ferli sem getur verið svo nær- andi, alger alkemía.“ Morgunblaðið/Eggert Greipur og Edda Kristín eru sérfræðingar í menningarlífi borgarinnar. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2020 NÝR ÞÁTTUR AF HEIMILISLÍFI Þættir Mörtu Maríu Jónasdóttur, Heimilislíf, hafa algerlega slegið í gegn en fyrsti þáttur fór í loftið í júní 2017. Það voru mikil viðbrigði fyrir Agnesi M. Sigurðardóttur biskup Íslands að flytja til Reykjavíkur eftir að hafa búið á Vestfjörðum nánast allt sitt líf. Agnesi finnst einna skemmtilegast að vera í vinnunni og njóta samvista við fjölskyldu sína. Vinsælasti þátturinn á Smartlandi! SMARTLAND MÖRTUMARÍU
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.