Morgunblaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 58
58 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2020
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Vefverslunin alltaf opinwww.listverslun.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Kolibri trönur
í miklu úrvali, gæða-
vara á góðu verði
Kolibri penslar
Handgerðir þýskir penslar
í hæsta gæðaflokki
á afar hagstæðu verði
Ennþá meira úrval af
listavörum
WorkPlus
Strigar frá kr. 195
50 ára Soffía fæddist í
Vestmannaeyjum og
ólst þar upp og í Kópa-
vogi og býr í Kópavogi.
Hún er hjúkrunarfræð-
ingur að mennt frá HÍ
og er með MA-gráðu í
lýðheilsufræði frá HR.
Soffía er sérfræðingur hjá VIRK – starfs-
endurhæfingarsjóði.
Maki: Bernharð Ólason, f. 1967, verk-
fræðingur hjá Verkfræðistofunni Lotu.
Börn: Óli Sveinn, f. 1991, Guðbjörg Birta,
f. 1995, og Eiríkur, f. 1999, Bernharðs-
börn.
Foreldrar: Eiríkur Bogason, f. 1947, d.
2018, framkvæmdastjóri Samorku, og
Guðbjörg Ólafsdóttir, f. 1949, fv. stuðn-
ingsfulltrúi, búsett í Kópavogi.
Soffía
Eiríksdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þótt það sé stundum gott að fá at-
hygli skaltu gæta þess að það sé ekki á
annarra kostnað. Þú færð dásamlegar
fréttir af fjölskyldumeðlim.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú þarft að fara gætilega í ákvarð-
anatöku þinni því þú veist að ekki verður
aftur snúið. Leyfðu ástinni að blómstra.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Smám saman er það að renna
upp fyrir samstarfsmönnum þínum, hvílík
gersemi þú ert. Sýndu skoðunum annarra
þá virðingu sem þú vilt að menn sýni þín-
um.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gerðu allt sem þú getur til þess að
bregða út af vananum í dag. Hafðu stjórn á
skemmtanagleði þinni, þú þarft að hvíla
þig stundum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú þarft að vinna í því að ná tökum á
tilfinningum þínum. Komdu þér út úr klípu
sem þú komst þér í með gleðina að vopni.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Gættu þess að ofmetnast ekki nú
þegar allir vilja hrósa þér fyrir árangur þinn
í starfi. Styrkur þinn er mestur í mótvindi.
23. sept. - 22. okt.
Vog Allt sem tengist peningum og vinnu er
hagstætt í dag. Einhver snurða hefur
hlaupið á þráðinn í ástarsambandinu, láttu
daginn líða og sjáðu svo hvað morgundag-
urinn ber í skauti sér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Fjölskyldan og heimilið eru í
brennidepli hjá þér þessa dagana. Ekki
gera úlfalda úr mýflugu þó einhver hlaupi
ekki eftir öllu sem þú segir.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Varastu stóryrtar yfirlýsingar
og skuldbindingar sem kunna að koma þér
í koll. Nú er komið að uppskeru hjá þér eftir
margra vikna puð.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Flottur stíll felst í fleiru en að
kaupa fleiri flíkur. Ekki bíða of lengi með að
biðjast afsökunar. Við það teflirðu á tæp-
asta vað.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er engin ástæða fyrir þig til
þess að vera að væla yfir hlutunum. Margir
eru í sömu sporum og þú.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þótt enginn sjái framtíðina fyrir er
hægt að búa sig undir hana með marg-
víslegum hætti í smáu sem stóru. Taktu
þig á og farðu vel með sjálfa/n þig.
Kristlaug sat í stýrihóp um nor-
rænt vinabæjasamstarf með áherslu
á leikskólamál. Hún tók þátt í því
starfi frá upphafi 2001 og til 2018 og
Ég vildi síðan fá mér vinnu innan
bæjarmarkanna í Mosfellsbæ því
það er töluvert að keyra á hverjum
degi til Reykjavíkur.“
K
ristlaug Þórhildur
Svavarsdóttir er fædd
23. janúar 1960 á
Ólafsvegi 17 í Ólafs-
firði. „Ólafsfjörður var
yndislegur staður til að alast upp á,
fjaran var uppáhaldsleiksvæðið.
Enn þann dag í dag hefur fjaran
mikið aðdráttarafl fyrir mig. Pabbi
minn rak bifreiðaverkstæði og þar
var ég oft. Þegar ég var átta ára
tóku foreldrar mínir þá ákvörðun að
flytja til Akureyrar. Ég segi stund-
um að ég hafi verið flutt nauðungar-
flutningum því ég var ósátt við þessa
ákvörðun, til að byrja með.“
Kristlaug var í Grunnskólanum í
Ólafsfirði, Barnaskóla Akureyrar,
Gagnfræðaskóla Akureyrar,
Menntaskóla Akureyrar og útskrif-
aðist þaðan árið 1980. „Þá var ég
orðin móðir með tveggja ára barn og
gerði hlé á námi og fór út á vinnu-
markaðinn.“
Kristlaug starfaði sem leiðbein-
andi við grunnskóla Akureyrar
næstu árin, eða allt þar til hún fór í
leikskólakennaranám við Fóstur-
skóla Íslands og útskrifaðist sem
kennari 1995. Árið 1996 tók hún við
stöðu leikskólastjóra við leikskólann
Iðavöll á Akureyri. Því starfi gegndi
hún í 22 ár, til ársins 2019.
„Árið 2019 ákvað ég að prófa eitt-
hvað nýtt, áður en ég yrði of gömul.
Ég sagði upp stöðunni á Akureyri og
flutti til Mosfellsbæjar.“ Í dag starf-
ar hún sem aðstoðarleikskólastjóri
við leikskólann Reykjakot í
Mosfellsbæ.
„Ég kann mjög vel við mig í Mos-
fellsbæ, það er afskaplega mikil og
falleg náttúra hérna og margar
gönguleiðir sem ég er dugleg að
nýta mér. Mér kemur það í raun á
óvart hvað mér líkar vel hér fyrir
sunnan. Ég var með mikla fordóma
gagnvart höfuðborgarsvæðinu og
ætlaði aldrei að flytja hingað, en það
voru ákveðin tímamót hjá mér 2016,
ég fór í gegnum skilnað og ákvað að
breyta til og vera ekki alltaf í sama
farinu. Önnur dóttir mín býr hér í
Mosfellsbæ og það hafði mikið að
segja um að flytja hingað. Hin dóttir
mín býr í Bandaríkjunum og það
kom ekki til álita að flytja þangað.
sá hún um fjórar ráðstefnur sem
haldnar voru á Akureyri. „Markmið
verkefnisins er að mynda vettvang
fyrir leikskólafólk á Norðurlönd-
Kristlaug Svavarsdóttir leikskólakennari – 60 ára
Með dætrunum Frá vinstri: Gerður, sem býr í Connecticut, Kristlaug og Katrín Björg, sem býr í Mosfellsbæ.
Vildi breyta til og flutti suður
Leikskólakennarinn Kristlaug fluttist í fyrra í Mosfellsbæinn eftir að
hafa ávallt búið fyrir norðan, en hún var leikskólastjóri á Akureyri í 22 ár.
Norrænt samstarf Kristlaug á síðustu
ráðstefnunni sem hún stóð fyrir, 2016.
30 ára Una fæddist í
Reykjavík en ólst upp í
Linköping í Svíþjóð til
níu ára aldurs. Hún
flutti þá til Hafnar-
fjarðar en býr núna í
Reykjavík. Una er
myndlistarmaður og
útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands og
er með meistaragráðu frá ÉCAL í Laus-
anne í Sviss. Hún er nýbúin að opna sýn-
ingu í Hafnarhúsinu sem stendur til 15.
mars.
Maki: Logi Leó Gunnarsson, f. 1990,
myndlistarmaður.
Foreldrar: María Ólafsdóttir, f. 1960,
heimilislæknir í Reykjavík, og Steem
Magnús Friðriksson, f. 1961, læknir í
Gautaborg.
Una Björg
Magnúsdóttir
Til hamingju með daginn
Kópavogur Freya Elena Danko fædd-
ist 26. apríl 2019 kl. 19.27. Hún vó
3.568 g og var 51 cm löng. Foreldrar
hennar eru Ramona Diana Fratila og
Ioan Stefan Danko.
Nýr borgari