Morgunblaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 60
60 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2020
England
Manchester United – Burnley ............. (0:2)
Jóhann Berg Guðmundsson var ekki í
leikmannahópi Burnley. Leiknum var ekki
lokið þegar blaðið fór í prentun, sjá mbl.is/
sport/enski.
Leicester – West Ham ............................. 4:1
Tottenham – Norwich .............................. 2:1
Grikkland
Larissa – Panetolikos.............................. 2:2
Ögmundur Kristinsson varði mark Lar-
issa í leiknum.
EM karla 2020
MILLIRIÐILL I, Vín:
Króatía – Spánn.................................... 22:22
Hvíta-Rússland – Austurríki............... 36:36
Tékkland – Þýskaland ......................... 22:26
Lokastaðan:
Spánn 5 4 1 0 153:127 9
Króatía 5 4 1 0 127:113 9
Þýskaland 5 3 0 2 141:125 6
Austurríki 5 1 1 3 139:156 3
Hvíta-Rússland 5 1 1 3 138:160 3
Tékkland 5 0 0 5 122:139 0
MILLIRIÐILL II, Malmö:
Portúgal – Ungverjaland..................... 34:26
Noregur – Slóvenía .............................. 33:30
Ísland – Svíþjóð .................................... 25:32
Kristján Andrésson þjálfar Svíþjóð.
Lokastaðan:
Noregur 5 5 0 0 157:135 10
Slóvenía 5 3 0 2 138:132 6
Portúgal 5 2 0 3 146:142 4
Svíþjóð 5 2 0 3 120:122 4
Ungverjaland 5 2 0 3 126:140 4
Ísland 5 1 0 4 126:142 2
Undanúrslit í Stokkhólmi á morgun:
17.00 Spánn – Slóvenía
19.30 Noregur – Króatía
Leikur um 5. sætið á laugardag:
15.00 Þýskaland – Portúgal
Leikið er um bronsverðlaun kl. 17.30 á
laugardag og úrslitaleikurinn hefst kl.
15.30 á sunnudag.
Danmörk
Aarhus United – Esbjerg.................... 23:23
Rut Jónsdóttir skoraði eitt mark fyrir
Esbjerg.
Frakkland
Toulon – Nice....................................... 21:24
Mariam Eradze skoraði eitt mark fyrir
Toulon.
Noregur
Oppsal – Byåsen .................................. 25:33
Thea Imani Sturludóttir lék ekki með
Oppsal.
Dominos-deild kvenna
KR – Valur ............................................ 62:77
Keflavík – Breiðablik ........................... 81:51
Grindavík – Haukar..................... (frl.) 70:78
Staðan:
Valur 17 15 2 1429:1118 30
KR 17 12 5 1291:1099 24
Keflavík 17 12 5 1262:1185 24
Haukar 17 11 6 1219:1188 22
Skallagrímur 16 10 6 1089:1041 20
Snæfell 16 4 12 1070:1264 8
Breiðablik 17 2 15 1068:1333 4
Grindavík 17 1 16 1103:1303 2
Evrópubikarinn
UNICS Kazan – Galatasaray ............. 94:69
Haukur Helgi Pálsson skoraði 10 stig
fyrir UNICS, tók eitt frákast og átti eina
stoðsendingu á 24 mínútum.
Staðan í E-riðli: UNICS Kazan 2/1, Ry-
tas 2/1, Mónakó 1/2, Galatasaray 1/2.
NBA-deildin
Dallas – LA Clippers........................ 107:110
Knattspyrnu-
maðurinn Hösk-
uldur Gunn-
laugsson er
alkominn heim í
Breiðablik og
skrifaði í gær
undir þriggja ára
samning við
Kópavogs-
félagið. Hösk-
uldur fór frá
Blikum í sænska félagið Halmstad
sumarið 2017 en var lánaður aftur
heim á síðasta tímabili og skoraði 7
mörk í 20 deildaleikjum. Hann lék
sinn fyrsta A-landsleik gegn Kan-
ada á dögunum. vs@mbl.is
Höskuldur laus
frá Halmstad
Höskuldur
Gunnlaugsson
EM 2020
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Ísland hafnaði í 11. sæti á EM karla
í handknattleik en liðið lauk keppni
á mótinu í Malmö í gær. Ísland
mætti þá gestgjöfunum Svíum sem
unnu öruggan sigur 32:25. Svíar
höfðu góð tök á leiknum mestallan
tímann. Náðu að komast í 4:1, 13:8
og voru yfir 18:11 að loknum fyrri
hálfleik. Eins og daginn áður þurfti
íslenska liðið að fara út í síðari hálf-
leikinn sjö mörkum undir.
Í gær var enginn neisti til staðar í
liðinu til að saxa á forskotið eins og
sást þó á móti Norðmönnum.
Hverju sem um er að kenna þá
virkuðu menn mjög daufir í þessum
síðasta leik mótsins. Væntanlega
voru menn orðnir þreyttir andlega
og líkamlega. Fyrir vikið var leik-
urinn sá slakasti hjá íslenska liðinu
í mótinu. Þeir kaflar sem voru góðir
hjá liðinu voru mjög stuttir.
Sænska liðið naut sín við þessar
aðstæður og Svíarnir litu miklu bet-
ur út en í öðrum leikjum í milliriðl-
inum. Þeir hafa verið í vandræðum í
sókninni þar sem spilið hefur verið
mjög hægt og þunglamalegt. Gegn
Íslenska liðinu skoruðu þeir 18
mörk í fyrri hálfleik og alls 32
mörk. Virtust ekki hafa mikið fyrir
því. Í markinu lék Mikael Appel-
gren vel og var valinn maður leiks-
ins af mótshöldurum. Ekki í fyrsta
skipti í sögunni sem sænskur mark-
vörður leikur vel gegn Íslandi á
stórmóti.
Illa gekk að stöðva blæðingu
Sveiflurnar í leikjum og á milli leikja
voru miklar hjá Íslandi á mótinu. Þjálf-
arateymið hlýtur af þeim sökum að velta
fyrir sér sálræna þættinum. Hæpið er
að slíkt megi eingöngu skrifa á lík-
amlega þáttinn. Íslenska liðið var yngra
á HM í fyrra en nú komu þrír leikmenn
vel yfir þrítugt aftur inn í hópinn og
tveir þeirra, Guðjón og Björgvin, mjög
reyndir.
Þess vegna kemur manni nokkuð á
óvart hversu liðið er sveiflukennt í leik
sínum. Þegar blæðing átti sér stað gekk
illa að stöðva blæðinguna eins og sást í
síðari hálfleik gegn Ungverjum og í
fyrri hálfleik gegn Norðmönnum.
Hvar stöndum við eftir 3 ár?
Margir leikmenn sem eiga framtíðina
fyrir sér komu við sögu í mótinu. Ég vil
hrósa Guðmundi landsliðsþjálfara og
hans teymi sérstaklega fyrir það að tefla
Viktori Gísla og Hauki fram af alvöru í
mótinu. Af og til eignumst við Íslend-
ingar leikmenn sem hafa hæfileika til að
komast í heimsklassa í handboltanum.
Þá þarf að gefa þeim tækifæri til að
dafna og þeir Viktor og Haukur hafa nú
kynnst því við hvað er að eiga.
Þá geta menn eins og Elvar, Ýmir,
Sigvaldi, Viggó, Janus, Arnar Freyr og
Sveinn átt mörg stórmót eftir með
landsliðinu ef þeir halda áfram að bæta
sig. Margir fleiri eiga framtíðina fyrir
sér sem ekki voru í eldlínunni nú eins og
Ómari Ingi Magnússnon, Gísli Krist-
jánsson, Óðinn Þór Ríkharðsson og
Teitur Örn Einarsson. Ég er ekki viss
um að Norðmenn og Svíar valti yfir Ís-
land eftir tvö til þrjú ár.
Ísland í 11.
sæti á EM
í Svíþjóð
Slæmt tap gegn Svíþjóð í síðasta
leiknum Dauft yfir okkar mönnum
Malmö Arena, EM karla, milliriðill II,
miðvikudag 22. janúar 2020.
Gangur leiksins: 4:1, 6:3, 9:6, 13:8,
15:10, 18:11, 20:12, 23:15, 26:17,
27:20, 30:23, 32:25.
Mörk Svíþjóðar: Linus Arnesson 7,
Jerry Tollbring 5/1, Andreas Nilsson
5, Lukas Nilsson 5, Jim Gottfridsson
4, Max Darj 1, Kim Du Rietz 1, Fredric
Pettersson 1, Daniel Pettersson 1,
Valter Chrintz 1, Simon Jeppsson 1.
Varin skot: Mikael Appelgren 13/1,
Andreas Palicka 1.
Utan vallar: 8 mínútur.
SVÍÞJÓÐ – ÍSLAND 32:25
Mörk Íslands: Kári Kristján Krist-
jánsson 5, Bjarki Már Elísson 5/1,
Guðjón Valur Sigurðsson 4, Alexand-
er Petersson 3, Sigvaldi Björn Guð-
jónsson 2, Haukur Þrastarson 2,
Ólafur Guðmundsson 1, Sveinn Jó-
hannsson 1, Viggó Kristjánsson 1,
Janus Daði Smárason 1.
Varin skot: Viktor Gísli Hallgrímsson
5, Björgvin Páll Gústavsson 2.
Utan vallar: 0 mínútur.
Dómarar: Matija Gubica og Boris
Milosevic, Króatíu.
Áhorfendur: 7.153.
Þrefaldir meistarar Vals eru komnir
með sex stiga forskot á toppi Dom-
inos-deildar kvenna í körfubolta eft-
ir sannfærandi 77:62-sigur á KR á
útivelli í gærkvöldi. Aðeins munaði
tveimur stigum á liðunum fyrir síð-
asta leikhlutann, en í honum var Val-
ur miklu sterkari og tryggði sér að
lokum öruggan sigur.
Einverjir höfðu áhyggjur af Val í
desember, er liðið tapaði tveimur
leikjum á skömmum tíma, en nýja
árið byrjar vel fyrir Valskonur. Þær
hafa nú unnið fjóra leiki í röð. Hel-
ena Sverrisdóttir er komin á fullt á
ný eftir meiðsli og þegar hún spilar
vel á ekkert lið möguleika í Val. Það
verður erfitt að sjá eitthvert lið
stöðva Valslestina, sem fer hraðar
með hverri umferðinni sem líður.
KR þarf að fá meira frá Danielle
Rodriguez til að eiga möguleika
gegn Val, en sú bandaríska skoraði
aðeins 16 stig í gær. Micheline
Mercelita spilaði sinn fyrsta leik
með Val í gær og skoraði fjögur stig
og tók tíu fráköst.
Keflavík átti ekki í neinum
vandræðum með að vinna Breiðablik
á heimavelli, 81:51. Keflavík er nú
með 24 stig, eins og KR. Það hefur
vantað stöðuleika í Keflavíkinga til
að veita Valskonum alvörukeppni á
toppnum. Keflavík hefur unnið tvo
og tapað tveimur í síðustu fjórum.
Keflavík leikur við Val í næstu um-
ferð og er ljóst að deildarmeist-
aratitilinn verður afar fjarlægur
draumur með tapi. Breiðablik hefur
tapað níu leikjum í röð og er í miklu
basli.
Haukar fóru upp í fjórða sætið
með 78:70-sigri á Grindavík á útivelli
í framlengdum leik. Grindavík hefur
spilað mun betur síðustu vikur en í
byrjun leiktíðar, en stigin standa á
sér og eru nýliðarnir aðeins með tvö
stig í neðsta sæti. Grindavík hefur
fengið tvö stig úr síðustu fjórum
leikjum en tapleikirnir hafa allir
komið eftir mjög jafna leiki. Haukar
töpuðu fyrir Skallagrími í síðustu
umferð en hafa unnið sex af síðustu
sjö. Það verða væntanlega Haukar
og Skallagrímur sem berjast um
fjórða sætið, síðasta sætið sem gefur
þátttökurétt í úrslitakeppninni. jo-
hanningi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hlíðarendi Valskonan Kiana Johnson og KR-ingurinn Hildur Björg Kjart-
ansdóttir í hörðum slag í toppleik liðanna í gærkvöld.
Meistararnir
að stinga af
Valskonur með sex stiga forskot