Morgunblaðið - 23.01.2020, Side 62
62 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2020
Síðustu þrjá áratugi hefur Damon
Albarn verið einn þekktasti og vin-
sælasti dægurtónlistarmaður Breta
og hefur getið sér orð sem söngv-
ari, hljóðfæraleikari, laga- og
textahöfundur og upptökustjóri,
ýmist í sólóverkefnum eða með öðr-
um og ólíkum listamönnum. Albarn
sló fyrst í gegn sem söngvari og
leiðtogi hljómsveitarinnar Blur,
sem sendi fyrstu plötuna frá sér ár-
ið 1991. Hljómsveitin varð á ár-
unum þar á eftir ein sú vinsælasta á
heimsvísu og seldust plötur hennar
í bílförnum. Blur kemur enn saman
af og til en Albarn hefur verið með
mörg önnur hljómsveitarverkefni í
gangi. Þekktastar eru sveitirnar
Gorillaz, sem hann stofnaði árið
1998 við annan mann en Albarn
rekur nú einn og fær til liðs við sig
hópa ólíkra listamanna hverju sinni
er hann hljóðritar, og súpergrúpp-
urnar The Good, the Bad & the
Queen og Rocket Juice & the Moon.
Í fyrrnefndu eru einnig Paul Sim-
onon úr The Clash, Simon Tong úr
The Verve og hinn heimskunni
trymbill Tony Allen, og í hinni er
Allen líka auk Flea, bassaleikara
Red Hot Chili Peppers.
Damon Albarn er rúmlega fimm-
tugur og hlaut fyrir þremur árum
OBE-orðu úr hendi Bretadrottn-
ingar, fyrir mikilsverð tónlistar-
störf.
Svalir Albarn fremstur í Blur sem sló í gegn snemma á tíunda áratugnum.
Heimsþekktur og
áhrifamikill listamaður
VIÐTAL
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Mig hefur lengi langað til að skapa
tónverk sem fjallar um það að horfa
út um gluggann minn hérna. Þetta
er svo heillandi og síbreytilegt
sjónarspil,“ segir breski tónlistar-
maðurinn Damon Albarn. Hann
þagnar og horfir út í éljakófið sem
byrgir þá stundina sýn í hvassviðr-
inu sem lemur á húsi hans í Staða-
hverfinu nyrst í Reykjavík. „Sjónar-
hornin eru sífellt að breytast hérna,“
bætir hann svo við hugsi. „Stundum
er loftið ótrúlega tært og kyrrt – og
Snæfellsjökull beint fyrir framan
mig! Þarna,“ segir hann og bendir
norður yfir Faxaflóann. „Hann blas-
ir oft við með öllum sínum smá-
atriðum. Stundum finnst mér hann
vera svo nærri að það er eins og
toppurinn gnæfi yfir okkur hér. En í
önnur skipti, eins og núna, þá byrgir
veðrið sýn, snjór eða regn. Glugg-
arnir hér eru eins og linsur sem
beinast að heillandi náttúrunni.“
Damon Albarn kom fyrst til Ís-
lands fyrir tæpum aldarfjórðungi,
árið 1996, á hátindi vinsælda hljóm-
sveitarinnar Blur sem hann leiddi
sem söngvari og var orðinn heims-
þekktur fyrir. Hann var fyrst einn á
ferð og kynnti sér næturlífið, eins og
fjallað var þá um í fréttum. Skömmu
síðar var Blur byrjuð að hljóðrita
nýja plötu í London en meðlimirnir
komu síðan allir til Reykjavíkur og
luku hér upptökum á fimmtu breið-
skífu sveitarinnar, sem var einfald-
lega nefnd eftir henni, Blur. Albarn
kveðst hafa bundist landinu sterkum
böndum á þessum tíma og skömmu
seinna festi hann sér lóð og hóf að
byggja hús hér í úthverfi borgar-
innar, með þessu tilkomumikla út-
sýni yfir ströndina og hafið, í átt að
Snæfellsjökli og Esju. Og þetta út-
sýni er kveikjan að og efniviðurinn í
nýju tónverki listamannsins, The
Nearer the Fountain, More Pure the
Stream Flows, sem hann mun flytja
ásamt stórri hljómsveit, með
strengjum og blásurum, í rómuðum
tónleikasölum í nokkrum evrópskum
stórborgum Evrópu í vor. Þegar til-
kynnt var um þá tónleika seldist
strax upp á þá alla, enda viðburður
að Damon Albarn leggi upp í ferð
með nýtt og spennandi tónverk. Í
dag er síðan upplýst um loka-
tónleika ferðalagsins, en þeir verða í
enn einni rómaðri tónleikahöll – sem
stendur við Faxaflóann aðeins
nokkru vestar en tónverkið var sam-
ið, í Eldborgarsal Hörpu 12. júní.
Stórhljómsveit í stofu Albarns
Þegar ég sæki Damon Albarn
heim í útjaðri Reykjavíkur er komið
hádegi og hlé hefur verið gert á
hljómsveitaræfingu í stofu lista-
mannsins. Ellefu manna strengja-
og blásarasveit, auk tækniliðs og
upptökumanns, hefur undanfarna
daga verið að æfa undir stjórn út-
setjarans og hljómsveitarstjórans
André de Ridder hluta úr þessu nýja
tónverki Albarns. Sveitin er aðallega
skipuð breskum tónlistarmönnum
en einnig nokkrum íslenskum.
Stemningin er heimilisleg þar sem
listamennirnir sitja í rúmgóðri og
hlýrri stofunni og snúa allir að
flennistórum gluggum með útsýni til
hafsins, sem hverfur af og til í élja-
hryðjurnar. Þar úti stígur hópur
hrafna loftdans og virðast þeir njóta
þess að leika í veðurhamnum.
Þetta er í þriðja sinn sem tón-
listarmenninir koma til landsins og
æfa verkið í nokkra daga heima hjá
Albarn. Við einn gluggann er píanó
tónskáldsins og á því bunki af texta-
blöðum sem hann er að vinna í.
Þegar tónleikaröðin var kynnt, að
Albarn myndi flytja ásamt stórri
hljómsveit nýtt verk í tónleikahöll-
um á borð við Fílharmóníuna í París,
Barbican í London og Bozar í Bruss-
el, var sagt að það væri samið undir
áhrifum af einstakri náttúru Íslands,
landi miðnætursólarinnar. Þar
mætti finna jökla, eldfjöll, hveri,
tignarleg fjöll og einstakt hálendi, í
landi á mótum Norður-Ameríku og
Evrópu, og þar væri uppspretta
verks Albarns, sem hefði dvalið
reglulega á Íslandi í hátt í þrjá ára-
tugi.
Heillaður af náttúrunni hér
Við Albarn ræðum um verkið nýja
á neðri hæð hússins, þar sem tveim-
ur stólum hefur verið komið fyrir við
lítið borð í svefnherbergi hans – og
eins og í stofunni uppi snúa stólarnir
að gluggunum og útsýninu sem hann
kveðst aldrei fá nóg af.
„Þegar ég er hér í húsinu hef ég
nær alltaf dregið frá, svo ég geti
fylgst með náttúrunni, sumar sem
vetur,“ segir Albarn og bætir við að
sér finnist þessi tími árs líka hríf-
andi hér, þegar nóttin er svo löng og
sólin lágt á himni.
Hann segist lengi hafa verið heill-
aður af náttúrunni hér og líka alls
kyns þjóðsögum og ævintýrum sem
henni tengjast. Hann nefnir sem
dæmi að fyrir mörgum árum hafi
hann fyrst hrifist af Bjarnafossi við
Búðir á Snæfellsnesi, en þá hafi
hann verið á ferð að vetrarlagi og ís-
lenskur kunningi sagt sögur af
skessu sem byggi í fossinum og ver-
um sem kæmu þar úr hafinu. Þegar
umboðsmaður Albarns spurði hann
fyrir ekki svo löngu hvort það væri
eitthvert ögrandi verkefni sem hann
virkilega langaði að hella sér í, þá
sagðist hann lengi hafa gengið með
þann draum að skapa verk um út-
sýnið frá gluggunum sínum hér í
Reykjavík. Og það mætti krydda
með sögum eins og þeim sem hann
heyrði á sínum tíma á Snæfellsnesi.
„Titillinn á verkefnið kom úr ljóðinu
„Love and Memory“ eftir John
Clare og ég gaf umboðsmanninum
hann með stuttri lýsingu sem hann
gæti notað til að selja miða á tón-
leikaröðina,“ segir Albarn og bætir
brosandi við að þegar hafi miðarnir
á þá alla selst upp – „fyrir utan á
tónleikana hér í Hörpu!“ – og hann
var ekki enn farinn að festa nótu á
blað.
Fimm eða sex sinnum í fyrra
„Ég hef komið eins mikið hingað
og ég hef getað,“ segir Albarn, sem
er annars búsettur ásamt fjölskyldu
sinni í London. „Ég var hér fimm
eða sex sinnum á síðasta ári. Ég hef
verið að semja hér, og stundum með
aðra tónlistarmen með mér og ég
hef reynt að fá þá til að fanga með
mér þær furðulegu tilfinningar sem
kvikna við að horfa hér út,“ segir
hann með þungri áherslu á orðin
furðulegu tilfinningar.
„Í dag heyrum við heldur betur í
veðrinu, enda stormur úti, en oft er
hér algjör þögn. Fólk bregst við
þessum aðstæðum á áhugaverðan
hátt og þegar þau leika á hljóðfærin
hvet ég þau til að leika og túlka nátt-
úruna og landslagið fyrir utan, að
leika eins og smáfuglarnir flögra úti
og horfa hér út á Hrosshólma og
Geldinganes, og tjá dans hrafnanna.
Undanfarið hef ég gefið hröfnunum
að éta hér úti og þeir eru ótrúlegir –
þvílíkar kúnstir! Það er ágætt að
„Þetta er íslenska verkið mitt“
Hinn kunni breski tónlistarmaður Damon Albarn semur tónaljóð út frá útsýninu frá heimili sínu í
Staðahverfi Reykjavíkur Tónleikaferð með verkið um Evrópu lýkur í Eldborgarsal Hörpu 12. júní
Ljósmynd/Linda Brownlee
Íslandslag „Sjónarhornin eru sífellt að breytast hérna,“ segir Damon
Albarn um útsýnið frá heimili sínu í Reykjavík. „Stundum er loftið ótrúlega
tært og kyrrt – og Snæfellsjökull beint fyrir framan mig!“
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
Augnlyfting
Einstökmeðferð til að lyfta
slappri húð á augnsvæði
• Dregur úr hrukkumog línum
• Hjálpar húðinni að endurnýja sig
Er ástand húðarinnar verra
en aldurinn gefur til kynna?
15%
afslátturí janúar