Morgunblaðið - 14.03.2020, Side 41

Morgunblaðið - 14.03.2020, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2020 41 Embætti lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu laust til umsóknar Auglýst er laust til umsóknar embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fer með stjórn lögregluliðs í sínu umdæmi, þ.e. Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi og Kjósarhrepps. Hann annast daglega stjórn og rekstur lögreglunnar í umdæminu og ber ábyrgð á framkvæmd lögreglustarfa innan þess. Hjá embættinu starfa rétt um 300 lögreglumenn og tæplega 90 í öðrum störfum. Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996. Aðrar hæfniskröfur eru: • Góð yfirsýn og þekking á verkefnum lögreglunnar æskileg • Góð þekking og/eða reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar æskileg • Reynsla af stjórnun og stefnumótun æskileg • Rekstrarþekking og/eða reynsla er æskileg • Reynsla af alþjóðlegu samstarfi kostur • Mjög góð forystu-, samvinnu- og samskiptahæfni • Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni • Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti • Þekking á einu Norðurlandamáli æskileg Dómsmálaráðherra skipar lögreglustjóra til 5 ára í senn, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Miðað er við að skipað verði í embættið frá og með 1. maí 2020. Um laun og starfskjör lögreglustjóra fer eftir ákvörðun kjara- og mannauðssýslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Upplýsingar um starfið veitir Haukur Guðmundsson ráðuneytisstjóri í síma 545 9000. Umsóknarfrestur er til og með 30. mars 2020. Dómsmálaráðuneytið hefur ákveðið að fela nefnd að fara yfir þær umsóknir sem berast og á nefndin að skila ráðherra rökstuddu áliti á hæfni umsækjenda. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir. Umsóknum skal skila rafrænt á starf@dmr.is. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá, afrit af prófskírteinum, upplýsingar um umsagnaraðila og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfylli hæfniskröfur fyrir starfið. Umsækjandi skal í kynningarbréfi gera skýra grein fyrir hæfni sinni í samræmi við þær hæfniskröfur sem fram koma í 2. mgr. 28. gr. laga nr. 90/1996 og auglýsingunni. Í umsókn skulu enn fremur koma fram upplýsingar um: 1) menntun, 2) reynslu af stjórnun, 3) reynslu af lögmannsstörfum, saksókn, dómstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) upplýsingar um samskiptafærni og sjálfstæði, 6) aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf lögreglustjóra. Stjórnarráð Íslands Dómsmálaráðuneytið RÁÐNINGARRÁÐGJÖF RANNSÓKNIR Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.