Morgunblaðið - 14.03.2020, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 14.03.2020, Blaðsíða 50
50 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2020 HAGRÆÐING án þess að það bitni á gæðum Hafðu samband og við gerum fyrir þig þarfagreiningu og tilboð í ræstingar- þjónustu án allra skuldbindinga. Kleppsmýrarvegur 8 | 104 Reykjavík | 581 4000 | solarehf.is | solarehf@solarehf.is Tónleikar verða haldnir í Deiglunni á Akureyri í kvöld, laugardag, klukkan 11 þar sem eyfirskir trúba- dorar af ýmsum toga og á ólíkum aldri hefja upp raust sína. Er yfir- skrift tónleikanna „Söngvar á sex- tugu dýpi“. Fram koma þau Aðalsteinn Svan- ur Sigfússon, Arnar Tryggvason, Arna Valsdóttir, Guðmundur Egill Erlendsson, Kristján Pétur Sig- urðsson, Helgi Þórsson, Sigurður Ormur Aðalsteinsson og Þórarinn Hjartarson. Í tilkynningu segir að á þessum tónleikum, sem blásið er til í tilefni af sextugsafmæli Aðalsteins Svans, sé stefnt að því að ná stemningu í líkingu við þá sem einatt ríkti í listasetrinu Populus tremula hand- an götunnar í Listagilinu á Ak- ureyri. Aðgangur er ókeypis og öll- um heimill meðan húsrúm leyfir. Söngvaskáld Aðalsteinn Svanur Sigfússon fagnar sextugsafmæli og blæs til tónleika. Eyfirskir trúbadorar halda tónleika Aldís Arnardóttir sýningarstjóri verður á morgun, sunnudag, klukk- an 15 með leiðsögn um yfirlitssýn- inguna á verkum Ásgerðar Búa- dóttur, Lífsfletir, sem nú stendur yfir í vestursal Kjarvalsstaða. Ásgerður (1920-2014) var braut- ryðjandi á sviði listvefnaðar á Ís- landi og í verkum hennar sameinast aldagamlar aðferðir handverksins og frjáls sköpun nútímamyndlistar. „Sérstaða Ásgerðar var að hún var menntuð í myndlist og notar eingöngu ull í sína myndlist,“ sagði Aldís í samtali við Morgunblaðið. Hún hafi byrjað í fígúratífu og farið „fljótlega að færa sig yfir í óhlut- bundið, abstrakt form með sterkri náttúrutengingu og heldur því í gegn. Hún er alltaf að hugsa um rými … líka að vefurinn sé lifandi. Hún er alltaf að reyna á mörk mið- ilsins, möguleika hans og takmörk- un.“ Sýningarstjórinn Aldís Arnardóttir við verkið Bláin eftir Ásgerði Búadóttur. Segir frá list Ásgerðar Búadóttur Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is Ingvi Þór Kormáksson sendi á dög- unum frá sér sína þriðju bók og aðra skáldsögu, Stigið á strik, sem bóka- útgáfan Sæmundur gefur út. Bókin er í grunninn glæpasaga en með nokkuð léttu yfirbragði, að sögn Ingva. „Eftir að hafa lesið bókina sagði konan mín að þetta væri „leti- krimmi“,“ segir Ingvi sposkur. „Frá- sögnin er líklega frekar í rólegri kantinum heldur en í einhverjum hamagangi.“ Sagan segir frá Atla Jóni, manni á miðjum aldri, sem eiginkonan hefur yfirgefið um stundarsakir. „Það hafði fundist lík af félaga hans árið áður og óvíst um dauðdaga hans. Atli fer að kanna mál sem þessi félagi hans hafði komist á snoðir um. Hann fer í þetta svolítið af því að honum leiðist,“ segir Ingvi. Málið sem Atli fer að kanna snertir tónlistarbransann sem Ingvi kann- ast nokkuð við en hann hefur bæði starfað sem hljómlistarmaður og bókasafnsfræðingur. „Þessi látni félagi hafði verið hljóðmaður og þetta mál varðandi hann tekur svo stefnu sem Atli hafði ekki búist við. Ýmislegt óvænt kem- ur upp á,“ segir Ingvi en aðal- persónan lendir í aðstæðum sem hún ræður illa við. Inn í frásögnina flétt- ast síðan nokkrar sögur úr tónlistar- bransanum, bæði sannar og lognar. „Ég hélt að sú sem ritstýrði myndi kippa þessu öllu út en svo kom í ljós að hún vildi frekar bæta við sögum.“ Nennir ekki að vera til Ingvi segir meginviðfangsefni bókarinnar vera miðaldra karlinn sem veit ekki alveg hvað hann á að gera við líf sitt. Eins og áður segir er aðalsöguhetjan fráskilin auk þess sem hún hefur fengið leið á starfi sínu. „Ég er kannski að skoða hvern- ig stendur á því að hann er svo leiður á lífinu að hann nennir eiginlega ekki að vera til.“ Fyrri skáldsaga Ingva, Níunda sporið, kom út fyrir páskana 2016 og Stigið á strik nú í byrjun febrúar. Spurður hvort það sé meðvituð ákvörðun hans að taka ekki þátt í jólabókaflóðinu segir Ingvi svo ekki vera. „Þegar fyrri skáldsagan kom út var dálítið um afþreyingarbækur fyrir páskana. Útgefandi hennar var að pæla í því sem kallað er á Norður- löndum „påskekrim“ eða páska- krimmar. Nú er annar útgefandi og hann tók þá ákvörðun að gefa út enn fyrr. Við sammæltumst um að sleppa jólabókaflóðinu enda var meira en nóg gefið út af bókum þá.“ Komið sjálfum sér á óvart Ingvi hlaut Gaddakylfuna árið 2009 fyrir bestu glæpasmásöguna, „Hliðarspor“, sem kom út ári síðar í smásagnasafni Ingva sem nefnist Raddir úr fjarlægð. „Ég ætlaði að aldrei að gefa út neitt meira enda aldrei gengið með rithöfund í mag- anum.“ Frændi Ingva hafi hinsvegar bent honum á söguefni sem síðar varð að Níunda sporinu. „Þegar hún var komin út um páskana 2016 komst ég í dálítið stuð og skrifaði fyrsta upp- kast að þessari sögu. Svo lagði ég hana frá mér og gerði ekkert með hana lengi vel. Svo fór ég að kíkja á þetta af og til og á endanum var sag- an tilbúin,“ segir Ingvi en hann ráð- gerði að hafa bækurnar þrjár enda nokkur tenging á milli Níunda sporsins og Stigið á strik. „Ég byrjaði svo á þriðju sögunni fyrir um tveimur árum en lagði þau skrif frá mér,“ segir Ingvi og sér ekki fram á að taka upp pennann og klára þriðju bókina, í bili að minnsta kosti. „Maður skyldi aldrei segja aldrei en eins og málin standa þá er áhuginn ekki nógu mikill. Maður verður nú að geta skemmt sjálfum sér til að geta skemmt öðrum.“ Þó að Ingvi segi sögur sínar ekki hefðbundnar glæpasögur þá hefur hann þrifist lengi í kringum slíkar sögur. Hann vann lengi á Borgar- bókasafninu og hélt nokkrum sinn- um stutt námskeið um glæpasögur í tengslum við starfið. „Ég er líka í Hinu íslenska glæpafélagi og var um skeið í dómnefndum fyrir glæpa- sagnaverðlaun, bæði Blóðdropann og Glerlykilinn. „Það er því kannski eðlilegt að þegar maður prufar að skrifa sjálfur þá fer það eitthvað í þessa áttina.“ Bókaskrifin hafa þó komið honum á óvart. „Ég er svolítið hissa á þessu, að það séu komnar út eftir mig tvær bækur,“ segir Ingvi að lokum. Letikrimmi af bestu gerð  Ingvi Þór Kormáksson hefur sent frá sér sína aðra glæpasögu  Fjallar um nýfráskilinn mann með lítinn tilgang í lífinu  „Frásögnin í rólegri kantinum“ Morgunblaði/Arnþór Birkisson Páskakrimmi Ingvi Þór segir nýja bók sína ekki hefðbundna glæpasögu heldur nokkurt léttmeti. „Letikrimma“ kallar eiginkona hans söguna. Þrátt fyrir að samkomubannið á Íslandi taki ekki gildi fyrr en á miðnætti aðfaranótt mánudags ákváðu stjórnendur ýmissa lista- stofnana og skipuleggjendur list- viðburða að fella niður viðburði um helgina. Stjórnendur Þjóðleik- hússins ákváðu að fella niður allar sýningar helgarinnar í varúðar- skyni, þeirra á meðal var frumsýn- ingin á Kópavogskróníku sem vera átti í Kassanum í kvöld. Tónleikar kórs Clare College í Cambridge sem vera áttu í Hallgrímskirkju í dag falla niður. Opnun sýningar Huldu Leifsdóttur sem fram átti að fara í Gallerí Göngum í Háteigs- kirkju á morgun hefur verið frest- að um mánuð. Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur aflýst öllum tón- leikum frá og með deginum í dag og til 13. apríl. Stjórnendur Borgarleikhússins ákváðu að fresta ekki sýningum helgarinnar og því var Bubbasöng- leikurinn Níu líf frumsýndur í gær- kvöldi. Alls verða sýndar tíu sýn- ingar í leikhúsinu um helgina áður en fjögurra vikna samkomubannið tekur gildi. Í samráði við sýnendur ákváðu stjórnendur Tjarnarbíós að fresta eða fella niður sýningar á Djáknanum á Myrká, VHS og vin- um og Polishing Iceland sem fara áttu fram um helgina. Barnasýn- ingarnar Lífið og Hans klaufi fara fram samkvæmt áætlun um helgina. Sagnfræðingafélag Íslands hefur ákveðið að fresta öll- um fyrirlestrum á vegum sínum næstu vikurnar. Bókamarkaðinum á Laugardalsvelli lýkur á morgun og er boðið upp á heimsendingar- þjónustu. Bókamarkaðinum sem hefjast átti á Akureyri 25. mars hefur verið frestað fram til 1. maí. Fjölda listviðburða aflýst um helgina Ljósmynd/Grímur Bjarnason Líf Björn Stefánsson í söngleiknum Níu líf sem frumsýndur var í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi og er sýndur alla helgina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.