Morgunblaðið - 14.03.2020, Blaðsíða 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2020
:
Glæsilegt páskablað
fylgirMorgunblaðinu
föstudaginn 3. apríl
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569 1105 – kata@mbl.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA
fyrir mánudaginn 30.mars
–– Meira fyrir lesendur
SÉRBLAÐ
Gómsætur og girnilegur matur
Páskasiðir – Ferðalög – Viðburðir
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Guðríður Þorbjarnardóttir, einnig
þekkt sem Guðríður víðförla, er í
brennidepli í heimildarmynd sem
nefnd er í höfuðið á henni, heimildar-
myndinni Guðríður hin víðförla.
Framleiðendum kvikmyndarinnar,
Önnu Dís Ólafsdóttir og Jóhanni
Sigfússyni, þótti vitneskja almenn-
ings um Guðríði vera af skornum
skammti miðað við það hversu
merkileg persóna hún var. Snemma í
ferlinu komst Anna Dís raunar að
því að Eiríks saga
rauða hefði í raun
fremur átt að
heita Guðríðar
saga Þorbjarnar-
dóttur.
Heimildar-
myndin er tekin
upp í fjórum lönd-
um vegna þess
hve víðförul Guð-
ríður var en bæði
erlendir og íslenskir aðilar koma að
gerð myndarinnar, til að mynda
þekkt bresk leikkona sem mun fara
með hlutverk Elísabetar drottningar
í næstu þáttaröð af Crown.
„Við áttuðum okkar á því við upp-
haf framleiðsluferlisins að það væru
hreinlega fáir einstaklingar, sér-
staklega af yngri kynslóðinni, sem
vissu eitthvað um Guðríði Þor-
bjarnardóttur eða vissu að hún hefði
verið til yfir höfuð. Fólk kannast við
Leif Eiríksson og þessar helstu
hetjur en Guðríður virtist vera svo-
lítið týnd í þessum hópi landkönn-
uða. Þegar við fórum að kafa nánar
ofan í sögu hennar sáum við hvað af-
rek hennar eru einstök í heimssög-
unni,“ segir Anna Dís.
Fór átta sinnum yfir hafið
Samkvæmt Íslendingasögum
fæddist Guðríður á Snæfellsnesi,
ferðaðist bæði til Grænlands og
Norður-Ameríku og bjó þar í þrjú
ár. Hún lagði síðar aftur á hafið, til
Noregs og aftur heim. Síðar fór hún
til Rómar á efri árum. „Þegar við
fórum að telja þetta saman hefur
hún farið átta sinnum yfir hafið á
ævinni. Það gerði hún á víkingaskipi.
Hún var svona geimfari síns tíma,“
segir Anna Dís, sem bendir á að
merkilegt sé að kona sem var uppi á
árunum 980-1050 eftir Krist hafi allt-
af komist heil heim.
„Hún ferðast um svo mörg og mis-
munandi menningarsvæði á þessum
ferðum. Bara það að hún hafi ekki
verið drepin einhvers staðar fyrir
misskilning eða óheppni finnst mér
mjög merkilegt. Alltaf náði hún ein-
hvern veginn heim, einhvern veginn
náði hún í höfn aftur. Hún hlýtur að
hafa verið frábær í mannlegum sam-
skiptum. Svo var hún auðvitað klár
kona, hún hefur getað lesið vel í fólk
og aðstæður til þess að ná alla leið.
Hún deyr í hárri elli, hún hefur
örugglega verið komin töluvert á efri
ár þegar hún deyr í Skagafirði. Þetta
er náttúrulega alveg stórkostlega
merkileg ævi og ótrúlegt afrek, ég
tala nú ekki um á þessum tíma þegar
siglt var á opnum víkingaskipum yfir
Atlantshafið.“
Gísli Sigurðsson, rannsóknar-
prófessor hjá Árnastofnun, var
framleiðendum heimildarmyndar-
innar innan handar í öllu ferlinu.
„Stærstan hluta upplýsinga um Guð-
ríði er að finna í Eiríks sögu rauða.
Eitt af því fyrsta sem Gísli sagði
okkur var að ef sú saga væri skrifuð í
dag myndi hún ekki heita Eiríks
saga rauða heldur Guðríðar saga
Þorbjarnardóttur. Þar með var ekki
aftur snúið fyrir okkur, við urðum að
gera þessa heimildarmynd. Maður
skoðar þessar sögur með öðrum
gleraugum í dag og sér afrekin
kannski í öðru ljósi.“
Mæðgur leika Guðríði
Þrátt fyrir að framleiðendum
myndarinnar hafi þótt töluvert vanta
upp á vitund almennings á Guðríði
víðförlu koma ýmsir fræðimenn
fram í kvikmyndinni, jafnt erlendir
sem íslenskir, sem segja frá Guðríði
af miklum ákafa. Sömuleiðis kemur
fjöldi fólks að gerð heimildar-
myndarinnar.
„Ég og Jóhann Sigfússon sem
stöndum að Profilm erum búin að
gera þessa mynd saman ásamt frá-
bærum alþjóðlegum hópi fólks.
Maður gerir lítið einn í þessum
bransa,“ segir Anna Dís.
Þar má nefna að Anna Dís leik-
stýrði heimildarmyndinni og skrifaði
handritið og stjórnaði Jóhann kvik-
myndatöku. Af leikurum sem koma
fram ber helst að nefna leikkonurnar
þrjár sem leika Guðríði á mismun-
andi æviskeiðum.
„Sú sem leikur mest er Kristín Ís-
old Jóhannesdóttir. Hún er nítján
ára gömul og það var alveg frábært
að vinna með henni. Móðir hennar,
Elfa Björk Vigfúsdóttir, leikur Guð-
ríði eldri og dóttir okkar [Jóhanns],
María Dís Jóhannsdóttir, leikur
Guðríði þegar hún er barn svo við
förum vel yfir æviskeið Guðríðar þar
sem við erum með þrjár mismunandi
Guðríðar með okkur í þessu.“
Tóbak í silki fyrir höfðingjann
Það er ekki bara fjöldi fólks sem
kemur að gerð heimildarmyndar-
innar heldur koma einnig margir
staðir við sögu.
„Við kvikmynduðum myndina hér
heima á Íslandi, í Skotlandi, í Noregi
og í Kanada, meðal annars með
frumbyggjum þar. Það var frábær
lífsreynsla og yndislegt fólk og urðu
til margar skemmtilegar sögur í
kring um það,“ segir Anna.
Það tók drjúgan tíma að fá að
kvikmynda hjá frumbyggjunum í
Kanada en að lokum var það þess
virði.
„Það tók marga mánuði að fá leyfi
til þess. Fyrst þurfti að fá einn ind-
jánahöfðingjann til að samþykkja,
sem vísaði síðan á þann næsta.
Þegar við hittum þann indjánahöfð-
ingja sem var með okkur í upptök-
unum færðum við honum tóbak að
þeirra sið, innbundið í rauðan silki-
klút, og þökkuðum honum fyrir að
taka á móti okkur og að leyfa okkur
að kvikmynda á svæði hans. Einmitt
á því augnabliki flaug tignarlegur
örn yfir okkur. Hann tók andann á
lofti og sagði: „Örninn er kominn.
Þið megið bara gera hvað sem þið
viljið!“ Örninn er mikilvægt tákn hjá
indjánunum, táknar eina fuglinn
sem snert hefur andlit skaparans,
auk þess líta þeir á fjaðrir hans sem
heilagar. Þeir sýndu okkur þann
heiður að blessa okkur öll í upp-
tökuteyminu með sérstökum
indjánanöfnum, „spirit names“ eins
og þeir kölluðu það. Við þá athöfn
vorum við blessuð með arnar-
fjöðrum, reykelsum og góðum ósk-
um. Þetta er dásamlegt náttúrufólk
og hitti okkur öll í hjartastað.“
Guðríður hin víðförla er sköpuð í
samstarfi við ýmsa aðila.
„Við tölum við RÚV og fengum frá
þeim vilyrði um stuðning. Svo feng-
um við góðan stuðning frá Kvik-
myndamiðstöð Íslands og í þessu
ferli talaði ég við BBC í Skotlandi og
fékk þar meðframleiðendur sem
voru með okkur alla leið. Á sam-
tölum okkar við þessa aðila varð
okkur ljóst að það höfðu fáir heyrt
um þessa sögu þó að allir væru
spenntir fyrir víkingum. Þeir sem
við töluðum við fengu líka strax
áhuga á Guðríði og sögu hennar,
meðal annars vegna þess að hún er
nánast óþekkt meðal almennings.“
Eins og áður segir var það Önnu
Dís mikilvægt að sagan kæmist til
skila til almennings og einnig út fyr-
ir landsteinana.
„Þetta verður að vera aðgengilegt.
Við búum myndir okkar til eins og
við séum að búa þær til fyrir erlenda
áhorfendur. Við göngum því út frá
því að áhorfendur hafi ekki neina
grunnþekkingu á viðfangsefninu.“
Anna Dís er framkvæmdastjóri
kvikmyndafyrirtækisins Profilm,
sem fagnaði 30 ára afmæli nýverið.
„Við búum til sjónvarpsefni og
höfum búið til sjónvarpsefni hjá
Profilm í 15 ár, mest fyrir erlendan
markað vegna þess að þar er mark-
aðurinn til að dreifa heimildar-
myndum. Stuðningur að heiman er
þó líka alltaf gríðarlega mikilvægur,
yfirleitt alltaf upphafið á ferlinu og
það gerist lítið án hans. Við búum þó
yfirleitt til alþjóðlegar heimildar-
myndir, allar okkar myndir hafa ver-
ið með alþjóðlega dreifiaðila, þessi er
það líka og er þegar farin að seljast
þó svo að kaupendur séu ekki búnir
að sjá lokaútgáfuna. Guðríður er því
að hefja „nýtt ferðalag“ á sjónvarps-
stöðvar út um allan heim og kvik-
myndahátíðir.“
Leikkona Crown les undir
Imelda Staunton, þekkt bresk
leikkona sem Anna Dís lýsir sem
einni af þjóðargersemum Breta, er
þulur heimildarmyndarinnar.
„Þegar ég bókaði hljóðstúdíóið
okkar í London til að taka upp þular-
textann sögðu þau einmitt „Imelda,
she is a national treasure.“ Hún mun
fara með hlutverk Elísabetar drottn-
ingar í næstu þáttaröð af Crown og
eru um þessar mundir í sýningu
þættirnir Flesh and Blood þar sem
Staunton fer með eitt aðalhlutverk-
anna.
Mig langaði að sjálfsögðu að fá
stærsta nafnið sem ég gæti fengið til
þess að lesa undir þessa mynd, það
auðvitað hjálpar sölunni á heim-
ildarmyndinni á enskumælandi
svæðum. Staunton var alveg frábær.
Við sendum henni upptökur af fram-
burði íslensku nafnanna í þulartext-
anum svo hann færi ekki á milli mála
áður en hún mætti í upptökuna. Það
var virkilega dásamlegt að fá hana
með okkur í þetta og við vorum að
grínast við hana að við værum
reiðubúin að hjálpa henni að sækja
um íslenskan ríkisborgararétt ef hún
væri orðin leið á þessu Brexit-
dæmi,“ segir Anna og hlær.
Guðríður hin víðförla verður frum-
sýnd 18. mars kl. 18 á Stockfish-
kvikmyndahátíðinni sem fer fram í
Reykjavík í mars. Sömuleiðis fer
hún í sýningu á RÚV.
Guðríður víðförla hefur nýtt ferðalag
Ævi Guðríðar víðförlu eru gerð skil í nýrri heimildarmynd á Stockfish Beðið var í tvo mánuði
eftir leyfi til kvikmyndunar hjá frumbyggjum Saga Eiríks hefði átt að vera saga Guðríðar
Anna Dís
Ólafsdóttir
Víðförul Kristín Ísold Jóhannesdóttir er ein þriggja kvenna sem leika Guðríði hina víðförlu í heimildarmyndinni.