Morgunblaðið - 14.03.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.03.2020, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2020 Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Nú þegar íslenska krónan hefur gefið talsvert eftir vegna þeirra efnahagsþrenginga sem kórónu- veiran leiðir af sér vakna spurn- ingar hvort verðbólgan kunni að fara á kreik að nýju en hún hef- ur haldist lítil og stöðug síðustu misseri. Gylfi Magnússon, dós- ent við við- skiptafræðideild HÍ og fyrrver- andi efnahags- og viðskiptaráð- herra, var gest- ur í aukaþætti af Viðskiptapúlsinum, hlaðvarpi Viðskiptamoggans, í gær. Þar sagði hann ekki víst að verðbólgunnar myndi gæta í mikl- um mæli en að erfitt gæti reynst fyrir Seðlabankann og stjórnvöld að bregðast við henni ef það gerð- ist. „Það er eitt af því sem er áhyggjuefni ef krónan gefur eftir að það mun fyrr eða síðar skila sér inn í landið í gegnum innflutt verð- lag þannig að það er eitt af því sem þarf að hafa áhyggjur af. En það er auðvitað takmarkað hvað hægt er að beita sér gegn því vegna þess að aðgerðir til þess að verjast verðbólguskoti eru flestar þannig að þær kæla hagkerfið og það er eitthvað sem við viljum ekki núna.“ Þá bendir Gylfi á að sú staða sem nú er uppi geri það mögulega að verkum að hærra innflutnings- verð muni ekki koma fram í vísi- tölu neysluverðs. „Kalt hagkerfi þar sem er lítil eftirspurn og fyrirtæki geta ekki hækkað verð, það er kannski dálít- ið með innbyggða vörn gegn verð- bólguskoti.“ Þekktir varnarleikir Spurður um þær aðgerðir sem Seðlabanki og stjórnvöld hafa grip- ið til segir Gylfi að þær séu allar eftir handbókinni og eigi að geta gefið góða raun. Þó sé mikilvægt að gera sér grein fyrir að lægri stýrivextir þýði ekki endilega mikla nýfjárfestingu til skemmri tíma. Hins vegar séu þeir til þess gerðir að miðla fjármagni með auðveldari hætti út í kerfið. Hann telur að bankastofnanir muni taka tilmælum opinberra að- ila vel, jafnvel þótt bankar eins og aðrir hafi tilhneigingu til að halda að sér höndum í andrúmslofti eins og því sem nú ríkir. Armslengdin truflar ekki Hann segir að ríkisvaldið hafi ýmis vopn í búri sínu til þess að ýta á bankana að tryggja fyrir- tækjum lausafé meðan skaflinn gengur yfir hagkerfið. Þar geti heimatökin reynst hægari fyrir þær sakir að tveir af þremur við- skiptabönkum landsins eru í eigu ríkisins. Sú staðreynd að Banka- sýsla ríkisins var stofnuð til þess að tryggja svokölluð „armslengd- arsjónarmið“ þar sem stjórnmála- menn væru ekki með puttana í ákvörðunum innan bankakerfisins ætti ekki að aftra því. „Ég veit ekki nákvæmlega hvernig það yrði útfært en ríkið setur þessum fyrirtækjum auðvitað eigendastefnu og í henni er hægt að taka á þessum málum með ýms- um hætti.“ Fá tæki gegn verðbólgunni  Ríkið getur beitt eigendastefnu sinni Gylfi Magnússon Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Öryggisíbúðir Eirar til langtíma leigu Grafarvogi Reykjavík Eir öryggisíbúðir ehf. Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík.  522 5700 milli 8:00 og 16:00 virka daga. Nánari upplýsingar í síma 522 5700 virka daga milli kl. 8 og 16 eða sendið fyrirspurn á netfangið sveinn@eir.is Nokkrar tveggja og þriggja herbergja vandaðar öryggisíbúðir Eirar til leigu í Grafarvogi, Reykjavík. Eirborgir, Fróðengi 1—11, 112 Reykjavík. Eirarhús, Hlíðarhúsum 3—5, 112 Reykjavík. • Rólegt og notarlegt umhverfi með aðgengi að metnaðarfullri aðstöðu og þjónustu með það að markmiði að einstaklingurinn geti búið lengur heima. • Öryggisvöktun allan sólarhringinn. • Aðgengi að mötuneyti og félagsmiðstöð. • Góðar gönguleiðir í nágrenninu. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Þrátt fyrir sterka lausafjárstöðu Ice- landair Group er ástandið á mörkuð- um félagsins með því móti að stöðva verður útflæði lausafjár með öll- um ráðum. Þetta segir Steinn Logi Björnsson, fyrr- verandi fram- kvæmdastjóri hjá félaginu og frá- farandi forstjóri Blue Bird Nordic. Hann var í viðtali í Viðskiptapúlsin- um, hlaðvarpi ViðskiptaMoggans í gær. „Reiðufjárstaðan virðist vera góð en það má ekki vanmeta hversu hratt þetta brennur,“ segir hann spurður út í horfur félagsins á komandi vikum. Spurður út í aðgerðir þær sem fé- lagið hefur gripið nú til í því skyni að mæta afleiðingum ferðabanns Bandaríkjastjórnar bendir hann á að ekkert flugfélag í heiminum verði fyr- ir jafn harkalegum áhrifum af þeirri ákvörðun. Allt leiðakerfi félagsins byggi á því að flytja farþega til og frá Ameríku með tengipunkti við Evrópu á Keflavíkurflugvelli. „Félagið verða að fækka flugferðunum enn meira en það hefur gert,“ segir Steinn Logi og nefnir að það sé eina skjótvirka leiðin sem félagið búi yfir til þess að stöðva rennsli lausafjár út úr félaginu. Þannig megi losna við breytilegan kostnað á borð við eldsneytiskaup, yfirflugs- og lendingargjöld og þjón- ustukostnað á flugvöllum, einkum varðandi þjónustu með farangur. Hann segir að uppsagnir starfs- fólks hafi minni áhrif, enda fari slíkar aðgerðir ekki að skila árangri fyrr en einhverjum mánuðum eftir að til þeirra er gripið og að þá kunni þessi krísa mögulega að vera liðin hjá. „Maður vonar félagsins vegna að það verði góð viðbrögð við þeirri beiðni að fólk minnki starfshlutfall og taki sér launalaust leyfi.“ Segir hann að þar liggi verulegar fjárhæðir sem fyrirtækið muni um. Kjarasamningar flugmanna hjá Icelandair losna í sept- ember og segir Steinn Logi að endur- skoða verði kjarastefnu á vettvangi félagsins frá grunni ef ætlunin sé að byggja félagið upp til framtíðar. „Það er algjört lykilatriði að ein- hver lausn verði fundin á þessu ef Ice- landair á að vera lífvænlegt til fram- tíðar og byggjast eitthvað upp.“ Hann segir þó að sporin hræði. Þannig sé honum minnisstætt að eftir hryðjuverkaárásirnar á Tvíburaturn- ana í Bandaríkjunum í september ár- ið 2001 hafi forstöðumenn á markaðs- sviðinu sem hann stýrði á þeim tíma boðist til þess að taka á sig 15% launa- lækkun til að styðja við fyrirtækið í miklum hremmingum. Það hafi verið samþykkt af framkvæmdastjórn fyrirtækisins en að það yrði ekki gert nema allir tækju þátt. Þá hafi erindi verið sent á stéttarfélög flugmanna og flugfreyja og „pent nei“ hafi borist við því. Steinn Logi segir að launakostnað- ur sé hár í öllum samanburði við önn- ur flugfélög. Reyndar megi finna önn- ur félög með háan launakostnað, t.d. Lufthansa og British Airways, en að það séu fyrirtæki sem starfi að hluta til á allt annars konar markaði. Þau hafi mjög tryggan viðskiptamanna- hóp úr alþjóðlegu viðskiptalífi sem borgi mun hærri fargjöld. Lífæð Ice- landair sé hins vegar ferðamenn á markaði þar sem Icelandair ráði litlu sem engu um verðmyndun vörunnar, sé aðeins lítill þátttakandi á mjög stórum og óvægnum markaði. Nú þegar hefur þeim möguleika verið velt upp að ríkissjóður komi Icelanda- ir til aðstoðar ef lausafjárstaðan versni mjög hratt. Fyrir því eru for- dæmi í sögunni. Steinn Logi segir hins vegar ekkert sjálfgefið í þeim efnum. Áður fyrr hafi Icelandair verið lífæð fólksflutninga inn og út úr land- inu en nú séu mörg flugfélög sem bít- ist um ferðamennina. Þótt Icelandair hyrfi af markaðnum þýddi það ekki algjöra einangrun landsins þótt vissu- lega mætti búast við því að áfanga- stöðum sem Íslendingar hefðu úr að velja myndi sennilega fækka stórlega. Stöðva verður blæðinguna  Icelandair Group neyðist til að grípa til harðari niðurskurðar á flugáætlun sinni  Nýta þarf opna samninga við flugmenn í september til að bæta stöðu félagsins Morgunblaðið/Eggert Næðingur Icelandair stendur frammi fyrir stærri áskorunum en oftast áður. Steinn Logi Björnsson KÓRÓNUVEIRUFARALDUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.