Morgunblaðið - 19.03.2020, Page 58
58 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2020
Tunguhálsi 10
Sími 415 4000
www.kemi.is
kemi@kemi.is
Þetta hefði svo auðveldlegagetað farið illa. Þettahljómaði eins og ansi hæpinhugmynd þegar hún var
kynnt: að búa til söngleik byggðan á
ævi og tónlist Bubba Morthens. Í
fyrsta lagi: er eitthvað ósagt um þann
mann? Eitthvað sem við vitum ekki
frá fyrstu hendi um þennan óstöðv-
andi sagna- og tjáningarmann sem
hefur staðið í forgrunni á þjóðarsvið-
inu síðan áður en við af miðaldrakyn-
slóðinni fermdumst? Og annað: verð-
ur þetta ekki bara tákrullandi stór-
hittarasjó með mishæpnum afsök-
unum fyrir því að flytja helstu smelli?
Og talandi um þá: hver á eiginlega að
syngja þessi lög svo eitthvert bragð
verði að sem jafnast á við eða minnir
allavega á meistarann sjálfan?
En þetta fer allt vel. Oftast á al-
gerlega óvæntan og og stundum
mótsagnarkenndan hátt. Eitt er nú
að auðvitað er það ekkert endilega
verkefni leikhússins að segja okkur
einhver ný tíðindi. Heldur einmitt að
minna okkur á, spegla og kryfja það
sem við þegar vitum. Þannig verða
alþekktir áfangar í lífi stjörnunnar,
sigrar og skipbrot í bland við
skondnar atvikssögur, tilefni til upp-
rifjunar og endurmats í nýju sam-
hengi. Frumsýningarsalurinn rifn-
aði til dæmis þegar barnungum
Ásbirni var sett fyrir að skrifa orðið
„bomba“ á skólatöfluna, vitandi full-
vel hvernig það myndi fara. Og já,
auðvitað eru stórsmellirnir eins og
vörður á leiðinni. Vitaskuld hefði
aldrei komið til greina að sniðganga
Ísbjarnarblús, Hiroshima, Afgan,
Rómeó og Júlíu eða Blindsker. En
samhengið er alltaf rétt og stundum
óvænt. Og notkun á minna þekktum
lögum oft brilljant: að grafa upp hið
sniðuga og lúmskt sjálfshæðna Ég
hata þetta bít til að fylgja útúrkók-
uðum Bubba á veiðilendur Safari
þegar fyrstu endalokin nálgast. Eða
teikna sögusvið upphafsins með
hinni stórkostlegu og sjaldheyrðu
Dauðakynslóð Egósins.
Eftir á að hyggja var líka ástæðu-
laust að hafa áhyggjur af handrits-
gerðinni. Afrek Ólafs Egils Egils-
sonar í Elly sýndi okkur að þetta
gerir hann öllum betur: að fella sam-
an framvindu og fyrirframgefna tón-
list þannig að hvort styðji, spegli,
dýpki og ögri hinu. Og varðandi
þetta með að fylla fótspor mannsins:
auðvitað er það ekkert hægt. En það
þarf heldur ekkert. Að deila verkefn-
inu, persónunni, í marga hluta, laus-
lega eftir tímabilum og enn lauslegar
eftir eiginleikum og afstöðu er ein
leið, og að henni valinni opnast ótal
tæknilegir möguleikar sem hér eru
þaulnýttir til að ýta undir þá tilfinn-
ingu að við séum að deila sögunni.
Sögu sem við erum löngu farin að
líta á sem sameign okkar hvort sem
er. Þessi uppdeiling fríar sýninguna
líka að mestu undan þeim eðlislæga
vanda að það er ekki hægt að leika
að maður hafi rokkstjörnuútgeislun.
Fyrir vikið gátu Bubbarnir ein-
beitt sér að því að lifa persónuna og
búa í aðstæðum hennar, og leystu
það öll framúrskarandi vel, frá
dásamlegum litla-Bubba Hlyns Atla
Harðarsonar til vígamóðs sátta-
Bubba Vals Freys Einarssonar með
viðkomu hjá ólgandi reiða-Bubba
Rakelar Bjarkar Björnsdóttur,
ómótstæðilega gúanó-Bubba Arons
Más Ólafssonar, tryllta utangarðs-
Bubba Björns Stefánssonar, kók-
drifna egó-Bubba Halldóru Geir-
harðsdóttur, brotthætta edrú-Bubba
Hjartar Jóhanns Jónssonar og grát-
hlægilega góðæris-Bubba Jóhanns
Sigurðarsonar. Góðu heilli var
ákveðið að láta ekkert þeirra herma
eftir þessum næst-eftirhermdasta
manni Íslandssögunnar, en áhuga-
fólk um þá list fær engu að síður sitt-
hvað fyrir snúð sinn: smámyndir af
þjóðþekktu fólki birtast hér og þar,
frá dýrðlegri Silju Aðalsteinsdóttur
Estherar Talíu Casey til morðfynd-
ins Þórarins Tyrfingssonar frá
Jóhanni, en auk allra Bubbanna
bregða þau sér öll í ýmis hlutverk í
því sameiginlega verkefni að rekja
þessa miklu sögu. Allt gengur þetta
lipurlega og fallega fyrir sig. Eftir-
minnilegir hápunktar eru margir og
fleiri rifjast upp eftir því sem lengra
líður. Vert er að geta sérstaklega
túlkunar Estherar Talíu á móðurinni
Grethe. Flutningur hennar á Talað
við gluggann eitt af mörgu í sýning-
unni sem grætti mann og gleymist
seint.
Annars hvílir áhrifamáttur Níu
lífa merkilega lítið á tilþrifum, hvað
þá fullkomnun, í flutningi laganna.
Enginn Bubbanna er þarna á þeim
forsendum að vera söngleikjahetja
eða rokkguð og þau nálgast tónlist-
ina öll á sínum forsendum, syngja
með sínu nefi. Það kemur aldrei að
sök en gefur tóninn, ef svo mætti
segja, um hverskonar sýning þetta
vill vera. Og varpar stundum
óvæntri birtu á eitthvað sem maður
var hættur að heyra, eins og t.d. þeg-
ar Halldóra, einn næmasti textaleik-
ari okkar, lætur mann hlusta á Fjöll-
in hafa vakað eins og í fyrsta sinn
eftir öll þessi ár, og í dúett-útgáfunni
af Rómeó og Júlíu í meðförum Arons
og Rakelar. Eða þá uppbrotið með
Stál og hníf, sem mann langar ekki
að kjafta frá hvernig er. Alla hina
ólíku hljóðheima fangar stórfín
hljómsveitin undir stjórn Guð-
mundar Óskars Guðmundssonar.
Einna síst frumkraft Utangarðs-
manna. Pönkið lætur illa að stjórn
og þegar það er komið í bönd leik-
hússins er það ekki lengur það sjálft.
Það myndi kannski hjálpa að hækka
bara duglega í hljóðkerfinu. Það er
ekki á hverjum degi sem ég bið um
það.
Kóreógrafía Lee Proud þjónar
sýningunni fullkomlega og styður
hana í að verða aldrei einbert söng-
leikjasjó. Dansararnir þrír, Katrín
Mist Haraldsdóttir, Sólbjört Sigurð-
ardóttir og Sölvi Viggósson Dýr-
fjörð, gefa hárrétta orku í heildina
og gegna mikilvægum smáhlut-
verkum hér og þar, og það sama má
segja um stúlknakórinn. Ein af þess-
um hugmyndum sem maður skilur
ekki alveg og getur ekki greint vit-
rænt, en virkar þegar maður mætir
henni.
Umgjörðin vinnur vel í þágu þess-
arar miklu og margþættu sögu. Í
glæsilegu afmælisljóði Hallgríms
Helgasonar í leikskránni er Bubba
líkt við fjall og þau eru nokkur hér
hjá Ilmi Stefánsdóttur og reynast til
ýmiss nýtileg. Allt flæðir fumlaust
upp og niður hlíðarnar, hvort sem
það er fiskvinna eða kassagerð, og
þeim mun sterkari áhrifin þegar allt
er skyndilega horfið af sviðinu og
sögunni víkur að Staðarfelli. Lýsing
Björns Bergsteins Guðmundssonar
meistaraleg og mikilvæg. Búningar
Filippíu I. Elísdóttur pottþéttir, og
halda skemmtilega til skila íkon-
ískum fötum á borð við frakkann
með loðkraganum og GCD-
skyrturnar. Að ógleymdum fölgulu
sólgleraugunum.
Meira að segja fötin eru kafli í
samtímasögunni. Partur af okkur.
Og þegar maðurinn birtist sjálfur
undir lok frumsýningarinnar, eftir
að farginu hafði loks verið svipt af
sálinni, og tók undir í lokasöngnum,
var okkur auðvitað öllum lokið. Full-
ur salur af ást, virðingu, hugrekki og
listfengi.
Þetta hefði getað farið illa en gerði
það svo sannarlega ekki.
Lítill drengur gleymdi sér
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Hugrekki „Fullur salur af ást, virðingu, hugrekki og listfengi,“ segir í leikdómi um Níu líf sem fjallar um líf Bubba Morthens.
Borgarleikhúsið
Níu líf bbbbb
Leiktexti og leikstjórn: Ólafur Egill
Egilsson. Tónlist og söngtextar: Bubbi
Morthens. Útsetningar og tónlistar-
stjórn: Guðmundur Óskar Guðmunds-
son. Danshöfundur: Lee Proud. Drama-
túrg: Andrea Elín Vilhjálmsdóttir.
Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir. Bún-
ingar: Filippía I. Elísdóttir. Lýsing: Björn
Bergsteinn Guðmundsson. Hljóð: Gunn-
ar Sigurbjörnsson og Þórður Gunnar
Þorvaldsson. Myndband: Elmar
Þórarinsson og Andri Björn Birgisson.
Leikgervi: Elín Sigríður Gísladóttir.
Raddþjálfun: Kristjana Stefánsdóttir.
Kórstjórn: Sigríður Soffía Hafliðadóttir.
Kórar söngskólans Domus Vox, Stúlkna-
kór Reykjavíkur og Aurora. Skólastjóri
Margrét Pálmadóttir. Hljómsveit: Aron
Steinn Ásbjarnarson, Guðmundur Óskar
Guðmundsson, Hjörtur Ingvi Jóhanns-
son, Þorvaldur Þorvaldsson og Örn Eld-
járn. Leikendur: Aron Már Ólafsson,
Björn Stefánsson, Esther Talía Casey,
Halldóra Geirharðsdóttir, Hjörtur
Jóhann Jónsson, Jóhann Sigurðarson,
Rakel Björk Björnsdóttir, Valur Freyr
Einarsson, Baldur Björn Arnarsson,
Gabríel Máni Kristjánsson og Hlynur
Atli Harðarson. Dansarar: Katrín Mist
Haraldsdóttir, Sólbjört Sigurðardóttir
og Sölvi Viggósson Dýrfjörð. Frumsýn-
ing á Stóra sviði Borgarleikhússins
föstudaginn 13. mars 2020.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST