Morgunblaðið - 19.03.2020, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 19.03.2020, Blaðsíða 54
54 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2020 BADMINTON Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Kristófer Darri Finnsson hefur ver- ið í fremstu röð í badminton á Ís- landi síðustu ár. Hefur hann m.a. unnið til gullverðlauna á Íslands- mótum og Reykjavíkurleikum og verið í landsliðinu. Þá var Kristófer kjörinn badmin- tonmaður ársins 2017 eftir að hafa orðið Íslandsmeistari í tvíliðaleik, en þann titil hefur hann tvisvar unnið og einnig orðið Íslandsmeistari í tvenndarleik undanfarin tvö ár. Síðastliðið tæpt ár hefur hann spilað í næstefstu deild Danmerkur með Kastrup Magleby Badminton- klub í Kaupmannahöfn. Kristófer er hins vegar kominn aftur heim, þar sem kórónuveiran setti strik í reikn- inginn. Búið er að skella í lás í bili hjá klúbbnum og þá hafa Danir lok- að landamærum sínum. „Ég hef verið að spila fyrir bad- mintonklúbb í Kastrup í liðakeppni í 1. deild. Við höfum verið að spila í úrslitakeppni þar sem sæti í efstu deild er undir, en við vorum ekki sérstaklega líklegir til að fara upp,“ útskýrði Kristófer í samtali við Morgunblaðið. „Ég fékk tilboð frá þjálfara hjá klúbbnum í maí á síð- asta ári og ákvað að slá til. Maður sér eftir öllu sem maður gerir ekki,“ bætti hann við. Gerði lítið annað en að spila Kristófer lék ekki sem atvinnu- maður í Danmörku og þurfti því að leita sér að vinnu meðfram því að spila badminton. „Ég reyndi að taka verkefni eins og ég gat en ég var ekki með neina fasta vinnu. Ég var þannig séð ekki að gera mikið annað en að spila.“ Hann fékk fréttir í síðustu viku um að búið væri að loka klúbbnum og því var réttast að koma sér heim sem fyrst. „Þjálfarinn setti sig í samband við mig eftir æfingu og sagði að það væri búið að loka öllu og það yrðu ekki æfingar næstu tvær vikurnar,“ sagði Kristófer. Á leiðinni heim af æfingunni tók hann eftir því að fólk var byrjað að hamstra. „Ég hjólaði heim og sá fullt af fólki vera að kaupa klósett- pappír á leiðinni,“ sagði hann léttur. „Ég fór strax að skoða flug daginn eftir og þjálfarinn sendi á mig og sagði mér að fara að koma mér heim. Ég get ekki kvartað, þar sem þetta hefði getað farið mun verr og ég mögulega ekki komist heim. Það var byrjað að fresta leikjum í deild- inni þar sem einhverjir spilarar greindust með veiruna.“ sagði Krist- ófer. Hann útilokar ekki að fara aftur út þegar ástandið batnar og ætlar þá ekki að vera einn síns liðs. „Ég ætla mér að klára nám hér heima og svo er aldrei að vita nema ég fari út aft- ur og reyni að vinna mig upp heims- listann með félaga mínum heima á Íslandi (Davíð Bjarna Björnssyni). Við höfum verið að spila saman t.d með landsliðinu og það gekk miklu betur en við áttum von á. Við höfum verið að spila vel á móti strákum sem eru á topp 75 í heiminum. Okkur langar að prófa og sjá hvort við komumst eitthvað,“ sagði hann. Erfitt að verða atvinnumaður Kristófer viðurkennir að það séu litlar tekjur í íþróttinni í dag og það sé erfitt að vera atvinnumaður í bad- minton. „Það er varla hægt nema þú sért algjörlega á toppnum og fáir pen- inga frá auglýsingum. Það er ekki möguleiki hérna heima á Íslandi. Ég fékk aðeins meira í Danmörku en ég vil klára námið mitt meðfram þessu svo ég eigi það ekki eftir. Ég hef verið að keppa mikið meðfram því sem ég er í skóla,“ sagði Kristófer í samtali við Morgunblaðið. Þjálfarinn sagði mér að drífa mig heim  Kristófer Darri Finnsson leikur badminton með Kastrup í Danmörku Ljósmynd/BSÍ Badminton Kristófer Darri Finnsson er kominn heim frá Danmörku. Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, ákvað á fundi sínum í gær að fresta heimsmeistarakeppni fé- lagsliða í karlaflokki sem átti að fara fram sumarið 2021. Frestunin er tilkomin vegna þess að bæði Evr- ópukeppni karla 2020 og Ameríku- bikarnum 2020 (Copa America) hef- ur verið frestað til ársins 2021 af völdum kórónuveirunnar. Eftir fjarfund þar sem fulltrúar heims- álfanna hjá FIFA ræddu málin gaf sambandið út yfirlýsingu um að það yrði ákveðið síðar hvenær ný HM félagsliða myndi fara fram. Heimsmeistara- mótinu frestað AFP Meistarar Liverpool er ríkjandi heimsmeistari félagsliða. Forráðamenn ensku úrvalsdeild- arinnar í knattspyrnu íhuga nú að þeir leikir sem eru eftir af tíma- bilinu verði allir spilaðir fyrir lukt- um dyrum vegna kórónuveirunnar. Fyrir síðustu helgi var tilkynnt að leikjum deildarinnar yrði frestað til 4. apríl hið minnsta. Samkvæmt fréttum á Englandi er nú stefnt að því að þeir 92 leikir, sem eftir eru af tímabilinu, verði allir spilaðir fyrir luktum dyrum. Þá munu allir leikirnir fara fram á hlutlausum velli og verða þeir allir sendir út í beinni útsendingu. Enski boltinn fyrir luktum dyrum? AFP England Enska úrvalsdeildin gæti verið leikin án áhorfenda. 19. mars 1964 Frétt í Morgunblaðinu: Kven- fólkið í meistaraflokkum handknattleiksliðanna hefur séð um það að baráttuþráð- urinn á Hálogalandi hefur ekki alveg fallið niður á með- an landslið karla var í Tékkó- slóvakíu. Leikirnir á mánu- dagskvöld voru harðir mjög og stúlkurnar ófeimnar hvor við aðra og allharðhentar svo að á sumum sá á eftir. 19. mars 1974 „Ætli Framliðið hafi ekki yfir meiri breidd að ráða en hin liðin í 1. deild- inni og það hafi gert gæfumun- inn fyrir okkur í vetur,“ segja Oddný Sigsteins- dóttir og Sylvía Hallsteinsdóttir við Morgunblaðið eftir að hafa orðið Íslandsmeistarar í hand- knattleik kvenna með liði Fram sem tapaði aðeins einu stigi allt tímabilið. 19. mars 1986 Kristján Arason, einn fremsti handboltamaður landsins, gengur til liðs við þýska stór- liðið Gummers- bach og semur við það til tveggja ára. „Gummersbach er eitt af bestu félagsliðum heimsins og mig langaði að reyna mig á þeim vígstöðvum,“ segir Kristján við Morgunblaðið en Gum- mersbach kaupir hann af B- deildarliðinu Hameln. 19. mars 1992 Viðburður á þessum degi: Ís- lenska karlalandsliðið í hand- knattleik sigrar Holland, 30:20, í fyrsta leik sínum í B-heimsmeistarakepppninni í Austurríki. „Flugeldasýning í Linz“ segir í fyrirsögn Morgunblaðsins. Valdimar Grímsson skorar 6 mörk og Sigurður Sveinsson 5 og Berg- sveinn Bergsveinsson ver 17 skot í leiknum. 19. mars 1998 Morgunblaðið segir frá því að hinn 11 ára gamli Pavel Ermol- inskij sé yngsti leikmaður úr- valsdeildarinnar í körfubolta frá upphafi. Pavel var á leikskýrslu hjá ÍA í leik gegn Njarðvík, kom ekki inná en fékk leikinn skráðan. Þjálfari liðsins var faðir hans, Alexander Ermol- inskij. 19. mars 2004 „Lífið heldur áfram, ég kvíði engu þó ég hafi þurft að segja skilið við knattspyrnuna,“ seg- ir fótboltamaðurinn Andri Sigþórsson í viðtali við Morgunblaðið. Andri neyddist til að leggja skóna á hilluna vegna alvarlegra hnémeiðsla en hann hafði þá ekki spilað leik eftir að hafa meiðst illa í leik með Molde í norsku úr- valsdeildinni vorið 2002. 19. mars 2010 „Markmiðinu er ekki náð,“ segir Páll Kolbeinsson, þjálf- ari karlaliðs KR í körfubolta, eftir að lið hans tryggir sér deildarmeistaratitilinn með sigri á Snæfelli í Stykkishólmi, 90:86. KR fær 36 stig, Keflavík 34 og Grindavík 32 stig í þremur efstu sætunum. Á ÞESSUM DEGI KÖRFUBOLTI Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Keppnistímabilinu 2019-20 í körfu- boltanum lauk í gær þegar stjórn KKÍ ákvað á fundi í hádeginu að hætta keppni og reyna ekki að leika síðar lokaumferðir efstu deilda og úr- slitakeppni um Íslandsmeistaratitl- ana. Óvissa vegna kórónuveirunnar er að sjálfsögðu ástæðan en keppni var hætt síðasta föstudagskvöld þegar ein umferð var eftir af Dominos-deild karla og þrjár eftir af Dominos-deild kvenna. Engir Íslandsmeistarar eru krýnd- ir árið 2020 en efstu lið í hverri deild fyrir sig, úrvalsdeildum og 1. deildum karla og kvenna, voru úrskurðuð deildarmeistarar. Neðstu lið úrvals- deilda falla og efstu lið 1. deilda koma upp í staðinn en umspil var fellt nið- ur. Sexfaldir Íslandsmeistarar KR í karlaflokki geyma því Íslandsbik- arinn sjöunda árið í röð og Valskonur sem eru Íslandsmeistarar frá 2019 halda Íslandsbikar kvenna á Hlíð- arenda annað ár. Heildarniðurstaðan er sem hér segir:  Stjarnan er deildarmeistari karla 2020. Stjörnumenn hefðu þurft að vinna Fjölni til að tryggja sér þann titil. Annars hefðu Keflvíkingar getað náð honum með því að sigra ÍR.  Fjölnir fellur úr úrvalsdeild karla. Það lá þegar fyrir.  Þór á Akureyri sleppur við fall en liðið hefði þurft að vinna útileik við KR til að eiga von um að halda sér uppi. Þór hefði þá getað sent ann- aðhvort Val eða Þór frá Þorlákshöfn niður í 1. deild. Þór Þ. átti eftir leik við Njarðvík og Valur átti eftir að mæta Haukum.  Höttur vinnur 1. deild karla og fer upp í úrvalsdeild. Höttur var í harðri baráttu við Hamar um sigur í 1. deild og liðin áttu eftir að mætast í nánast hreinum úrslitaleik. Þá áttu Breiðablik, Vestri og Álfta- nes öll möguleika á að tryggja sér úr- valsdeildarsæti í gegnum umspil 1. deildarinnar.  Valur er deildarmeistari kvenna 2020 en liðið hafði þegar tryggt sér þann titil þó þremur umferðum væri ólokið.  Grindavík fellur úr úrvalsdeild kvenna. Liðið hefði þurft að vinna þrjá síðustu leikina til að halda sér uppi og senda Breiðablik niður.  Fjölnir vinnur 1. deild kvenna og fer upp í úrvalsdeild. Fjölnir var með efsta sætið tryggt þó liðið ætti þrjá leiki eftir. Ljósmynd/KKÍ/Jónas Meistararnir Valur og Stjarnan eru deildarmeistarar árið 2020. Engir meistarar á árinu 2020  KKÍ ákvað að tímabilinu væri lokið og úrskurðaði um deildarmeistara og fall Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.