Morgunblaðið - 19.03.2020, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 9. M A R S 2 0 2 0
Stofnað 1913 66. tölublað 108. árgangur
ALLT FYRIR GÓÐA HELGI Í NÆSTU NETTÓ-VERSLUN!
Lægra verð - léttari innka Tilboðin gilda 19. - 22. mars
Grísalæri
Purusteik
ca 2,5 kg
598K
ÁÐUR: 1.495 KR
Bleikjuflök
Ektafiskur
2.099KR/KG
ÁÐUR: 2.999 KR/KG
R/K
/KG
G
Ananas
Gold Del Monte
220KR/KG
ÁÐUR: 439 KR/KG
-30%
-60%
u
-50%
LÆTUR SÉR EKKI
LEIÐAST Á TÍMA
VEIRUNNAR
NÍU LÍF
BUBBA
Á SVIÐI
BORIS ÍHUGAR
BORGARA-
LAUN
bbbbb 58 VIÐBRÖGÐ VIÐ VEIRUNNI 35ÍSABELLA Í DANMÖRKU 14
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Örn Almarsson, íslenskur efna-
fræðingur búsettur í Massachusetts
í Bandaríkjunum, er einn þeirra
sem vinna nú að
mögulegu bólu-
efni gegn kór-
ónuveirunni sem
veldur CO-
VID-19 sjúk-
dómnum. „Við
erum búin að
vera að starfa að
þróun á svona
efnum í nokkur
ár hjá Moderna,
og þessi ákveðni
vírus er mjög nýr, genasamsetning
hans var ekki þekkt fyrr en í byrj-
un þessa árs,“ segir Örn í samtali
við Morgunblaðið og segir að
bandaríska heilbrigðisstofnunin
(NIH) hafi hvatt til þess að unnið
yrði að bóluefni gegn veirunni með
hraði, og fyrirtækið sem Örn starf-
ar hjá, Moderna, hafi tekið það
verkefni að sér.
Örn útskýrir að einstakt sé að
mál séu unnin með slíku hraði sem
í þessu tilviki og segir að þeim hafi
tekist að senda nýtt bóluefni til
NIH 42 dögum eftir að genaröð vír-
ussins varð þekkt. Hann segir hins
vegar að nú sé einungis um að
ræða fyrsta stig en heilmikil vinna
eigi eftir að eiga sér stað áður en
fullbúið bóluefni gegn kórónu-
vírusnum verður komið á markað.
Spurður hvenær búast megi við því
að fullbúið bóluefni geti verið kom-
ið á markað, ef allt gengur eftir,
segist hann halda að það sé eftir
um ár.
Spurður um eigin bakgrunn seg-
ir Örn að hann hafi lært efnafræði
við Háskóla Íslands en flutt síðan
til Kaliforníu í Bandaríkjunum til
að leggja stund á framhaldsnám og
síðan unnið við lyfjaþróun síðustu
25 árin. Hann hefur verið búsettur
í Bandaríkjunum síðustu 30 ár.
Vinnur að
bóluefni
gegn
veirunni
Íslendingur í hópi
bandarískra vísinda-
manna
Örn
Almarsson
Stærstu heildsölur landsins horfa nú
til þess að eiga fjögurra til fimm
mánaða birgðir af helstu vörum fyrir
heimilin í landinu, í stað tveggja til
þriggja mánaða birgða áður.
Ólafur Ó. Johnson, framkvæmda-
stjóri Ó. Johnson & Kaaber, segir að
fyrirtækið hafi brugðist við aukinni
spurn eftir helstu vörum og aukið
lager sinn. Hann ítrekar að ekkert
hökt sé á framboði vara hjá birgjum
fyrirtækisins og ekkert bendi til
vöruskorts neins staðar frá.
Spurður að því hvaða vörur hafi
selst hraðast nefnir hann t.d. Palmo-
live-sápur og tilbúna rétti frá Find-
us.
Ari Fenger forstjóri 1912, sem
rekur heildsöluna Nathan og Olsen,
Ekruna og Emmessís, segir við
Morgunblaðið að birgðastaðan sé
góð. „Við höfum verið með þriggja
mánaða birgðir en í ljósi mikillar
sölu höfum við verið að bæta í og
reynt að auka aðeins birgðir miðað
við eðlilega stöðu. Við horfum þá til
4-5 mánaða birgða.“
Vigdís Sjöfn Ólafsdóttir, fjármála-
stjóri heildsölunnar Garra, sem
þjónustar veitingamarkaðinn, hótel,
mötuneyti og skólaeldhús, segir að
fyrirtækið sé vel birgt enda sé önnur
staða hjá þeim en heildsölum sem
sinna dagvörumarkaði. „Við pössum
upp á það núna að panta bara það
sem þörf er á. Við pöntum því minna
af þessum fínu vörum, en einblínum
frekar á það sem er almenns eðlis.“
Þó að markaðurinn sé erfiður nú
um stundir sjái hún að veitingahús
bregðist við með því að bjóða heim-
sendingu og það muni vega upp á
móti samdrætti.
Í sóttkví við komu til landsins
Tilkynnt var í gær að allir Íslend-
ingar sem koma utanlands frá verði
nú að fara í 14 daga sóttkví. Erlend-
um ferðamönnum er hins vegar ekki
skipað í sóttkví þar sem þeir stoppa
stutt við og minni smithætta er af
þeim að sögn sóttvarnalæknis.
Læknir á bráðamóttöku telur að
smit af völdum kórónuveirunnar
verði um 700 um næstu mánaðamót.
Kórónuveiran heldur áfram að
taka sinn toll af íslenskri ferðaþjón-
ustu. Íslandshótel, stærsta hótel-
keðja landsins, ætla að loka nokkr-
um gistihúsa sinna. Áður hefur
komið fram að CenterHótel ætla að
loka fimm af sjö hótelum sínum.
Eitthvað er um það að erlent hót-
elstarfsfólk sé að snúa aftur til síns
heima.
Vilja eiga allt að fimm
mánaða vörubirgðir
Heildsalar segja birgðastöðu góða Íslendingar í sóttkví við komu að utan
MKórónuvera »2, 4, 6, 10,
18, 26-36
Morgunblaðið/Eggert
Vörur Birgðastaða íslenskra heildsasla er sögð góð en þeir vilja samt auka vörubirgðir vegna ástandsins. Myndin er af lager Ó. Johnson & Kaaber.